Hús & Búnaður - 01.08.1972, Blaðsíða 20

Hús & Búnaður - 01.08.1972, Blaðsíða 20
uppréttur, og vanskapaðir og veikburða fingur hans voru þess ekki megnugir að halda á sandspöðum og fötum þeim, sem börnin okkar léku sér með. Það eina, sem þau gátu gert, var að búa til litla sandkast- ala og hrúgur og láta hann síðan þeyta þeim sundur með krampakenndum sveiflum vanmáttugra handa sinna. En þetta veitti honum mikla gleði, sem hann lét í ljós með óskiljanlegum kokhljóðum og sínu undarlega brosi, fullu af hamingju, og við vissum varla, hvort við áttum heldur að hlægja eða gráta við þessa sjón. Móðir hans sagði okkur frá högum sínum. Það eina, sem hún gat leyft sér, var að ferðast á ódýran hátt niður til Hastings nokkrum sinnum á ári. Faðir Kalla hafði dáið úr krabbameini stuttu eftir fæðingu drengsins. Hún hafði verið ekkja í tíu ár og hafði aðeins eftirlaunin til að lifa af. I rauninni væri ekkert, sem hægt væri að gera Kalla til bata. Hún þyrfti að fæða hann og klæða og sinna öllum líkamlegum þörfum hans. Hann yrði aldrei fær um að tala, hefði ekkert vald yfir vöðvum þeim, sem stjórna talfærunum. Auk þess var greindarstig hans mjög lágt. Læknar þeir, sem hún hafði leitað til, höfðu undantekningarlaust ráðlagt henni að koma honum fyrir á hæli. „Það yrði séð vel um hann," sögðu þeir, „og þú gætir heimsótt hann vikulega." „En myndi hann njóta ástar og hlýju?" spurði hún síðan. „Hann myndi njóta mjög góðrar um- önnunar," sagði konan mín. „Bróðir minn og konan hans eiga son ..." „Nei," greip hún fram í. „Hann er sonur minn og ég vil ekki vera án hans. Vissu- lega er hann oft erfiður, þegar hann er þreyttur og eitthvað amar að honum, en eru ekki öll börn þannig?" Þegar hún sagði þetta, mættust augu min og konu minnar, og það augnaráð sagði meira en nokkur orð fá mæit. „En oftast er hann góður drengur, veitir mér gleði. Hann er hamingjusamur og sáttur við tilveru sína." Við losuðum nú göngujárnin af fótum Kalla, og ég og móðir hans bárum hann niður að fjöruborðinu. Við héldum þannig á honum, að hann gat buslað í sjónum og börnin mín tíndu saman skeljar handa honum. Allir skemmtu sér konunglega, en einkum þó Kalli litli. Þannig leið dagurinn, hraðar en við gerðum okkur grein fyrir, og við urðum að hraða okkur við að hjáipa þeim að ná lesdnni til Lundúna. Eg ýtti hjólastólnum til stöðvarinnar, og yngsta barnið okkar fékk að sitja í stólnum hjá Kalla. „Þakka ykkur fyrir," sagði móðir hans. „Það hefur verið svo ánægjulegt að geta rætt við ykkur, og Kalli hefur skemmt sér konunglega við að leika við börnin ykkar. Er það ekki, Kalli?" Hann brosti og reyndi að veifa með smárri, vanskapaðri hendi sinni. Þegar lest- in lagði frá brautarpallinum og við veifuð- um þeim í kveðjuskyni, tók ég eftir því, að tárin streymdu niður vanga konu minn- ar. „Hvað er að, mamma?" spurðu börnin. „Eg er að gráta, vegna þess, hve ég er hamingjusöm," sagði hún, „en þó svo döp- ur." „Vegna Kalla litla?" spurðu þau. Við kinkuðum kolli og gátum varla komið upp nokkru orði, svo hrærð vorum við. „Af hverju er Kalli svona?" spurðu þau. Síðar um kvöldið, þegar tími gafst til, reyndum við að útskýra það nánar fyrir þeim, með orðum, sem ef til vill voru gagnslaus og veittu þeim litla skýringu. Orð eins og gen, litningar, erfðaeiginleikar og því um líkt. En nú fundum við, hve þakklát og hamingjusöm við í rauninni gátum verið, sem áttum heilbrigð og hraust börn. Hversu fráleitt og heimskulegt það er, að láta heilbrigð og eðlileg ærsl þeirra hafa áhrif á líf okkar og hamingju; og okkur varð hugsað til móður Kalla litla og hlutskiptis hennar, sem opnað hafði augu okkar. HESTAR DIOMEDESAR Frh. af bls. 11 um, því að ég álít fólk svo illgjarnt — það trúir alltaf því versta um náungann.“ „Þér vitið að það er orðið mjög algengt að segja að fólk neyti eit- urlyfja,“ hélt Chatmy áfram. „Það var einhver sem sagði mér núna um daginn, að ungar stúlkur væru í eðli sínu sjúkar í eiturlyf, og það verð ég að segja að er ekki fallegt að heyra. Og ef eitthvað er dular- fullt eða einkennilegt í fari þeirra, þá er „eiturlyf“ alltaf orðið við- kvæðið, og það verð ég að segja að er ódrengilegt, líka. Þetta er sagt um frú Larkin, og þó að mér standi alveg á sama um þá konu, þá held ég í alvöru að það sé ekki annað en að hún sé dálítið viðutan. Hún er ákaflega mikil vinkona þessa Anthony Hawkers yðar, og ég gæti vel trúað að það væri þess vegna sem hún ræðst svona á Grantsysturnar — segir að þær séu mannætur! Það mætti segja mér að þær séu strákaflennur, ekki nema að litlu leyti þó, en mér finnst það ekki svo mikið tiltökumál. Þær eru fríðar og föngulegar stelpur, allar.“ Loks komst Poirot að. „Hver er frú Larkins?“ „Frú Larkins? Góði minn, hvað þýðir að spyrja mig hver hún sé? Hvað er hver nú á dögum? Það er sagt, að hún sitji vel hest og sé sæmilega efnuð. Hún var gift vel- stæðum embættismanni í London. Hann er dáinn — hún er ekki skil- in. Hún hefur ekki verið hér lengi, kom skömmu á eftir Grant og dætr- um hans. Ég hef alltaf haldið að hún — Cathmay hefðarfrú þagnaði. Munnur hennar opnaðist og augun stóðu út úr höfðinu. Hún laut fram og sló Poirot snöggt á handarbakið með flötum bréfhníf, sem hún hélt á. An þess að taka eftir því, að hann kveinkaði sín, hrópaði hún æst: „Já, náttúrlega! Það er þess vegna, sem þér eruð hér núna! Svo að þér eruð þá svona! Þér verðið að segja mér allt eins og það er, undandráttarlaust! “ „Nú, hvað á ég að segja yður?“ Cathmay sló aftur til Poirots, en hann komst með lagi undan högg- inu. „Verið þér ekki með þessa upp- gerð, Poirot! Ég skil fyrr en skellur í tönnunum. Auðvitað eruð þér á þessum slóðum út af einhverjum glæp — og þér notið mig eins og eitthvert fræðakver! Jæja, getur það verið um morð að ræða? Hver hefur dáið nýlega? Enginn, sem ég man eftir nema Louisa gamla Gil- more, og hún var komin á níræðis- aldur og þar að auki búin að vera heilsulaus lengi, Ekki getur það verið hún. Veslingurinn hann Leo Staverton var næstum búinn að drepa sig í veiðitúr og er allur reifaður — ekki getur það verið

x

Hús & Búnaður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hús & Búnaður
https://timarit.is/publication/1071

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.