Hús & Búnaður - 01.08.1972, Blaðsíða 13

Hús & Búnaður - 01.08.1972, Blaðsíða 13
TÁNINGATASKA hnappi, sem gerður er úx samanrúlluðum fléttingi með snúru úr eðlilega litum flétt- ing. Saumið grænan þunnan flétting á hliðarnar. Taskan er síðan fóðruð með bómullarefni. Sníðið efnið eftir diski eða öðru slíku. 1. Útflúrið. 2. Kögrið: A: Setjið hnút á miðjuna. B: Kögrið beygt saman. C: Kögrið saumað á röngunni tii að taskan komi saman. 3. Axlarólin kemur í miðju á botni og hliðum töskunnar. BLÓMAKARFA Efni: Ca. 150 g bast og sultukrukka. Bastið er fléttað í langan flétting og þessi hér á myndinni er ca 5 m langur og 1 cm breiður, en þetta fer auðvitað allt eftir stærð krukkunnar. Fléttið til við- bótar þunnan flétting úr sex þráðum og þarf hann að vera 75-100 cm. Saumið flatan botn í passandi stærð og haldið síðan áfram upp eftir því, sem lög- un kemur á körfuna og mælið við og við, hvort stærðin passar við krukkuna. Þegar komið er upp í hálfa hæð, eða þar sem formið fer að breytast, þá herðið meira að, svo karfan nái lögun krukkunnar og sömu hæð. I lokin er saumaður einn umgangur upp yfir opið á krukkunni. Til skrauts er síðan þunni fléttingurinn saumaður í hring utan um körfuna. Haldið er gert úr flétting og búið til kögur á endunum. BLÓMAKARFA LÍTIL BLÓMAKARFA Efni: Ca 200 g bast fléttað í einn flétting, 1 cm á breidd og ca 8 cm langan, svolítið köflótt og rósótt bómullarefni í fóður og ef til vill má nota mislita bastafganga til að skreyta hliðarnar. Körfubotninn er um 10 cm að ummáli. Um leið og byrjað er á hliðunum, verður strax að laga körfuna þannig, að hún fari strax að breikka við hvern hring. Það er áríðandi að gera þetta jafnt, svo karfan fái fallegt útlit. Þessi karfa er ekki stór, aðeins 17 cm á hæð og ummálið efst um 25 cm. Gætið að því að endarnir verði eins lítið sýnilegir og unnt er. Hankarnir eru gerðir úr tveim 30 cm fléttingum. Körfunni er lokað með hnappi, sem gerður er úr samanrúllaðri fléttu og snúru, sem gerð er úr lítilli fléttu, sem gerð er úr sex fléttum. Ef það á að vera útsaumur á töskunni, er hann gerður úr bastafgöngum í fallegum litum og bezt að gera það áður en fóðrið er sett í. SEFSKÓR Efni: Ca 300 g af basti í eðlilegum litum, sem fléttað er í tvær fléttur 5 m langar og um 1.5 cm hreiðar. nokkrir bláir, rauðir og grænir bastþræðir í útsauminn og hálfur metri af köflóttu bómullarefni í fóður. Fáið mál af fætinum með því að stíga á pappírsblað og draga línu meðfram og saumið sólann eftir málinu. Hér eru flétt- urnar lagðar eins og sýnt er á mynd 1. LÍTIL BLCMAKARFA Þegar sólinn er orðinn nægilega stór, eru saumaðar fjórar umferðir upp af hon- um og þá liggja flétturnar eins og venju- lega og saumaðar zig-zag, eins og sjá má af mynd 2. A þessu stigi er auðveldast að setja fóðrið í skóna. Hliðarnar eru fóðr- aðar með ræmum, en hafið pappírsspjald undir fóðrinu á botninum, því þá verða skórnir sterkari. Yfirborðið er sporbaugslaga plata, eins og sýnt er á mynd 3 og fer stærðin eftir stærð skósólanna. Hér eru flétturnar flatar og saumaðar zig-zag. Aður en yfirborðið er saumað á, er gott að sauma út eitthvert fallegt mynstur á það (mynd 4). 1. Skósólinn. 2. Saumið fjórar umferðir upp af honum. 3. Yfirborðið. 4. Fyrirmynd. Frh. á bls. 19 SEFSKÓR 13

x

Hús & Búnaður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hús & Búnaður
https://timarit.is/publication/1071

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.