Hús & Búnaður - 01.08.1972, Qupperneq 6

Hús & Búnaður - 01.08.1972, Qupperneq 6
Veggklæðning ÞVÍ EKKI AÐ LÍFGA UPP Á VEGGINA? Það, sem þú þekur veggina með í dag, er ekki lengur hægt að afgreiða með orð- inu veggfóður. Orðið veggklæðning er miklu víðtækara og um leið nærtækara, því það getur ekki siður átt við efni úr taui eða plasti, eins og pappír. 2. Framleiðslan er orðin svo fjölbreytt, að um nær ótæmandi möguleika er að ræða. Hægt er að velja um dumbungslegt vinyl, skinandi plötur af ýmsum gerðum, svo ekki sé minnst á úrvalið af flosi, ef ein- hver dæmi eru nefnd. Þar fyrir utan eru veggklæðningar orðnar mun ódýrari en áður var og því er mun auðveldara fyrir fólk að nota sér þá möguleika, sem þær gefa. Flestar veggklæðningar, sem framleidd- ar eru í dag, eru gerðar úr þvottheldum efnum, og viðhaldskostnaðurinn verður því hverfandi, miðað við gömlu betrekkin. Þegar amma var ung, var sífelld hræðsla um að betrekkið yrði óhreinkað, og þá var jú ekki hægt að þvo óhreinindin af, og svo voru bragðdaufir litir allsráðandi. Nú þykir sjálfsagt að nota fjörleg blóma- mynstur, og jafnvel stærðfræðileg mynstur vekja enga hneykslun. Sömu sögu er að segja um hrufótta áferð. Fleira og fleira fólk klæðir nú innveggi með ýmsum efn- um af ýmsum gerðum og geta látið ævin- týralöngunina ráða því, á hvað það horfir. Það er af, sem áður var. Vinyl er töfraorðið í heimi veggklæðn- inga. Það getur bæði verið um að ræða pappirsvinyl og tauvinyl, og hægt er að þvo flestar tegundir vinyls með vatni og sápu. Það þarf aðeins að gæta þess, hvort tekið sé fram á klæðningunni, þegar hún 4. 6

x

Hús & Búnaður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hús & Búnaður
https://timarit.is/publication/1071

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.