Morgunblaðið - 28.11.2011, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.11.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2011 Lengi leit út fyrir að mjög erfittyrði að ná kjarasamningum á milli leikskólakennara og viðsemj- enda þeirra. Þúsundir foreldra vörp- uðu öndinni léttar þegar saman gekk.    En sjálfsagt hafaekki allir verið með gleðibragði eft- ir átökin.    Forsvarsmennleikskólakennara og fé- lagsmennirnir sjálfir hafa sjálfsagt talið að þeir ættu meira inni.    Viðsemjendur þeirra hafa ef til villtalið sig hafa neyðst til að ganga lengra í launhækkunum en gott var.    Öll þessi viðbrögð eru gam-alkunnug og hafa einkennt margan slaginn á vinnumarkaði í áratugi.    En það sem nú hefur gerst er nýtt.    Borgarstjórnarmeirihlutinn, Dag-ur og barnavinurinn Besti, ákváðu að ná aftur bakdyramegin hluta af þeim hækkunum sem þeir „misstu“ til leikskólakennara.    Dagur B. Eggertsson sagði um-búðalaust, af þessu tilefni, að þar sem leikskólakennarar hefðu með kjarasamningum náð meiru fram en sumir aðrir, hefði verið ákveðið að taka af þeim „auka- greiðslur“ sem aðrir fengju.    Það þarf að fara langt aftur til aðfinna lúalega leiki af þessu tagi í samskiptum opinbers aðila við starfs- menn sína. Trúir Dagur B. því virki- lega að ekki komi dagur eftir þennan dag? Dagur B. Eggertsson Stendur B. fyrir bakdyramegin? STAKSTEINAR Veður víða um heim 27.11., kl. 18.00 Reykjavík -3 skýjað Bolungarvík -3 skýjað Akureyri -2 léttskýjað Kirkjubæjarkl. -1 skýjað Vestmannaeyjar 2 skýjað Nuuk -10 skafrenningur Þórshöfn 3 skúrir Ósló 7 heiðskírt Kaupmannahöfn 10 skýjað Stokkhólmur 10 léttskýjað Helsinki 8 skúrir Lúxemborg 7 súld Brussel 10 léttskýjað Dublin 7 léttskýjað Glasgow 7 skúrir London 11 heiðskírt París 12 skýjað Amsterdam 10 léttskýjað Hamborg 10 skýjað Berlín 10 skýjað Vín 2 þoka Moskva 2 skúrir Algarve 17 léttskýjað Madríd 13 heiðskírt Barcelona 16 léttskýjað Mallorca 17 skýjað Róm 16 heiðskírt Aþena 10 léttskýjað Winnipeg -10 þoka Montreal 8 alskýjað New York 13 heiðskírt Chicago 5 alskýjað Orlando 22 alskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 28. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:37 15:55 ÍSAFJÖRÐUR 11:10 15:33 SIGLUFJÖRÐUR 10:54 15:14 DJÚPIVOGUR 10:13 15:18 Súpa í matsalnum í Gunnarsholti kl. 12:30. Ráðstefnan sett kl. 13:00 Fyrirlesarar verða: Anna María Ágústsdóttir Arna Hauksdóttir Hreinn Óskarsson Ísólfur Gylfi Pálmason Kjartan Þorkelsson Magnús Tumi Guðmundsson Sigrún Karlsdóttir Sigurjón Einarsson Sveinn Runólfsson Ráðstefnaner öllumopin Ekkert þátttökugjald Eldgosavá í Rangárþingi Forvarnir – afleiðingar- framtíðarsýn Ráðstefna í Gunnarsholti 1. desember 2011 kl. 13 - 16 Rótarýklúbbur Rangæinga Róbert B. Róbertsson robert@mbl.is Við rannsóknir fornleifafræðinga á kumlateigum í Þegjandadal í Suð- ur-Þingeyjarsýslu fundust fornleif- ar sem renna undir það stoðum að mannfórnir hafi verið stundaðar í heiðnum sið. Í Þegjandadal upp- götvaðist L-laga torfveggur, sem talinn er hafa verið byggður fyrir kristnitöku. Í stórri holu í veggn- um fundust brot af höfuðkúpu manneskju, kjálki af ketti og ýmis önnur dýrabein, m.a. kjálki af kind og nokkur nautgripabein. Þá fund- ust óhreyfð bein nýbura í mjög lít- illi gröf þétt við hlið torfveggjar- ins. Þetta kemur fram í kynningar- riti Urðarbrunns, þekkingarfélags á Laugum í Þingeyjarsveit. Unn- stein Ingason, formaður félagsins, sagði að þessi fundur væri mjög áhugaverður og að það væri eitt- hvað mjög skrýtið þarna í gangi. ,,Það sem gefur ímyndunaraflinu lausan tauminn er þessi samsetn- ing af beinum,“ sagði Unnsteinn. ,,Í sjálfu sér eru beinaleifar í holu ekkert skrýtnar; þetta gæti t.d. bara verið ruslahola, en þarna voru ekki mannætur og kötturinn hefur aldrei verið étinn hér á landi þann- ig að þessi bein eiga ekki að vera saman í ruslaholu.“ Lilja Pálsdóttir, einn fornleifa- fræðinganna sem komu að þessari rannsókn, segir að ekki sé hægt að fullyrða að þarna sé um mannfórn- ir að ræða. ,,Það að setja fórnir í stoðarhol- ur er þekkt fyrirbæri, en Rómverj- ar gerðu þetta þegar þeir byggðu hús og voru þá bein ungbarna oft notuð,“ sagði Lilja. ,,Ég vil nú ekki segja að það sé hægt að fullyrða að þarna sé um mannfórnir að ræða, en samsetning beinanna er mjög athyglisverð. Við vitum ekki hvort að þetta er eitthvað sem bendir til fórnar þar sem ekki er vitað mikið um fórnir hér á Íslandi á þessum tíma.“ Mannfórnir í heiðnum sið?  Í holu í torfvegg fundust brot af höfuðkúpu manns, kjálki af ketti og fleira  Bein af nýbura fundust í lítilli gröf við hlið veggjarins  Athyglisverð samsetning Ljósmynd/David Stott Fornleifafundur Uppgraftrarsvæðið á Ingiríðarstöðum í Þegjandadal. Um sjö milljónir króna söfnuðust þegar ferming- arbörn um land allt gengu í hús fyrr í mán- uðinum með bauk Hjálp- arstarfs kirkj- unnar. Und- anfari þess var fræðsla til um 2.700 fermingarbarna um aðstæður í fátækum löndum Afríku. Féð rennur til vatnsverkefna Hjálparstarfsins í Afríkulöndunum, Eþíópíu, Malaví og Úganda. Alls 66 prestaköll tóku þátt í verkefninu. Enn eiga þó nokkrir eftir að telja og leggja inn þannig að upphæðin á eftir að hækka og nálgast upphæð- ina sem safnaðist í fyrra en þá söfn- uðust 8 milljónir króna. Fermingarbörn söfnuðu sjö milljónum króna Þurrkur Skortur á hreinu vatni í Afríku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.