Morgunblaðið - 28.11.2011, Blaðsíða 24
24 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞÚ ERT SÁ EINI SEM ÉG
ÞEKKI SEM GETUR SLASAÐ
SIG VIÐ AÐ HORFA Á SKÝ
SAFNA FRÍMERKJUM,
SPILA FÓTBOLTA,
LÆRA DANS...
ÉG REYNI AÐ
FORÐAST
ÁHUGAMÁL
ÞAÐ MÁ JAFNVEL
SEGJA AÐ ÞAÐ SÉ
ÁHUGAMÁLIÐ MITT
DREKKTU MJÓLKINA ÞÍNA SVO
ÞÚ VERÐIR STÓR OG STERKUR EINS
OG HANN PABBI ÞINN
FÆ ÉG
ÞÁ LÍKA SKEGG
EINS OG HANN?
SKELLIBJALLA Á
EFRI ÁRUM ÉG ER
Á FLUGI OG
NÚ GET ÉG
EKKI LENT!
MÉR ÞYKIR VÆNT UM AÐ KÆR-
ASTAN ÞÍN SÉ AÐ HJÁLPA OKKUR
EN ÉG ER BARA EKKI ÁNÆGÐUR MEÐ
NÝJA SLAGORÐIÐ HENNAR
MÉR
FINNST
ÞAÐ
FRÁBÆRT
HVAÐ
MEÐ AÐ VIÐ
SPYRJUM
STARFSFÓLKIÐ
ÁLITS?
EF ÞÉR
FINNST ÞAÐ
BETRA ÞÁ
SKULUM VIÐ
GERA ÞAÐ
ER ÞÉR
ALVARA?
HA, HA,
HA,
ÓTRÚLEGT
ER BAÐ-
HERBERGIÐ
LAUST
LEADFOOT:
ÞEGAR HLUTIR
ÞURFA AÐ
KOMAST TIL
SKILA!
LANGAÐI
ÞIG AÐ
TALA VIÐ
MIG HERRA
STARK?
ÉG SÁ ÞIG LEIKA Í
„PICTURE PERFECT”
Í MIAMI
ÞÚ VARST
FRÁBÆR!
SVO DATT EIGIN-
MAÐURINN ÞINN NÆSTUM UM
IRON MAN BRYNJUNA MÍNA SVO
MÉR FANNST ÁSTÆÐA TIL AÐ
BIÐJAST AFSÖKUNAR
EF ÉG GÆTI FANGAÐ
SJARMAN HANS ÞÁ MYNDI
ÉG GETA GRÆTT MILLJÓNIR
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.45, vinnu-
stofa kl. 9. Vatnsleikfimi kl. 10.50. Út-
skurður/myndlist kl. 13. Heklunámskeið
kl. 20.
Árskógar 4 | Handav/smíði/útskurður kl.
9. Félagsvist kl. 13.30. Myndlist kl. 16.
Boðinn | Botsía kl. 11. Tálgað kl. 13.30.
Styrkur og þol, lokaður hópur.
Bólstaðarhlíð 43 | Bútasaumur, handa-
vinna, leikfimi. Á morgun kl. 15 koma rit-
höfundarnir Guðrún Helgadóttir og Úlfar
Þormóðsson og lesa úr ritverkum sínum.
Dalbraut 18-20 | Myndlist og postulín kl.
9, leikfimi kl. 10, brids kl. 13.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8, leik-
fimi kl. 9.15, 10.30. Söngur á 2. hæð kl.
10.30, upplestur á 2. hæð kl. 14.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl.
13. Kaffi/spjall kl. 13.30. Aðventuhátíð 1.
des. kl. 20.
Félagsheimilið Gjábakki | Leiðbeinandi í
handavinnu til hádegis, botsía kl. 9.10, gler
og postulín/lomber kl. 9.30/13, kanasta
kl. 13.15, kóræfing kl. 16.30, skapandi skrif
kl. 20.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postu-
línshópur kl. 9, ganga kl. 10, handavinna
og brids kl. 13, félagsvist kl. 20.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10 og 11, vatns-
leikfimi kl. 12.15, kl. 14.15, málun kl. 14.
Handverkshorn í Jónshúsi 1. des., áhuga-
samir hafi samband við Huldu í s. 6171501.
Jólahlaðborð FEBG 10. des. skráning
stendur yfir.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn-
arnesi | Glerl./leir 9. Biljard kl. 10. Kaffi-
spjall í krók kl. 10.30. Ganga í íþróttahúsi
kl. 11.20. Handavinna kl. 13. Vatnsleikfimi
kl. 18.30.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl.
9. Vatnsleikfimi kl. 9.50. Hafdís Ók Sigurð-
ardóttir les úr bók sinni Drekinn í Vatna-
jökli kl. 11. Á morgun fellur niður leiðsögn í
vinnustofum v/starfsdags starfsfólks.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, leikfimi
kl. 9.15, bænastund kl. 10.15, myndlist kl.
13. Skartgripasala verður á staðnum frá
11.30. Tímapantanir hjá fótafr. s.
6984938, hárgreiðslust. s. 8946856.
Hraunsel | Ganga frá Haukah. Ásv. kl. 10,
kóræfing kl. 11, glerbræðsla kl. 13, botsía/
félagsvist kl. 13.30, biljard í kjallara Hraun-
sels alla daga kl. 9.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.309.30.
Vinnustofa kl. 9. Brids kl. 13.
Hæðargarður 31 | Hringborðið kl. 8.50.
Handavinnu- og prjónahorn kl. 9. Hjá
Tedda afa kl. 9.30. Saumur kl. 13. Fé-
lagsvist kl. 13.30. Skapandi skrif kl. 16.
ATH. Nýtum gömlu jólakortin og gerum ný
næstu þrjá miðvikudaga, ókeypis, skrán-
ing stendur yfir. Sjá www.facebook.com/
haedargardur. Miðar á Vínartónleika á
skrifstofu.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó kl. 13.30 í
Smáranum.
Norðurbrún 1 | Botsía kl. 10. Handavinna
kl. 9/13. Útskurður kl. 13. Samverustund
með djákna kl. 14.
Vesturgata 7 | Setustofa og botsía kl. 9,
handavinna kl. 9.15, leikfimi kl. 10.30, kór-
æfing kl. 13. Jólafagnaður 9. des kl. 17.
Veislustjóri Þorvaldur Halldórsson, Sig-
urgeir v/flygilinn. Jólahlaðborð. Söngfugl-
arnir syngja undir stjórn Gróu Hreinsd.
Danssýning frá Danssk. Jóns Péturs og
Köru. Jólahugvekja, Guðmundur Haukur
leikur og syngur fyrir dansi, skráning og
upplýs. í s. 535-2740.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bók-
band og postulín kl. 9, morgunstund kl.
9.30, botsía kl. 10, upplestur kl. 12.30,
handavinna kl. 13, spil/stóladans kl. 13.
Valgeir Sigurðsson er með hug-ann við Hólsfjöll og birtist hér
útdráttur úr hugleiðingum hans þar
að lútandi: „Allir vita sem vita vilja,
að landsöluliðið á Íslandi vill selja
allt, öll öræfi Íslands og útskagana
með, svo ég umriti fræg orð Jóns
Hreggviðssonar: „...öll höfuðból
landsins og hjáleigurnar með...“
Svo halda víst sumir, að Hólsfjöll
séu ekkert annað en Grímsstaðir,
og enn aðrir halda að Möðrudalur
sé á Fjöllum. En Hólsfjöll ná ekki
nema suður á miðjan Biskupsháls,
þar endar Norður-Þingeyjarsýsla,
en Norður-Múlasýsla tekur við.
Þess vegna eru Víðidalur og Möðru-
dalur á Efra-Fjalli, og tilheyrðu
Jökuldalshreppi, þar sem einn
hreppur gat ekki verið í tveim
sýslum.“
Og vísa fylgir:
Söngla þeir enn og söngla í kór,
– seðlana glaðir telja –:
„Hólsfjöllin okkar eru stór,
ennþá er nóg að selja“.
Matthías Jochumsson orti til
bróðursona sinna sem vermdu
bekki prestaskólans:
Sveltið hold á syllógism,
saltið niður dogmatism,
etið nógan idealism,
en aldrei tóman formalism.
Bezta mat um miðdaga
meina’ eg kirkjusöguna,
dogmatík við dimmuna
og dæmi Krists á morgnana.
Hvað er mest í heiminum?
Heilabrot í vísdómnum,
klerkarugl í kreddunum,
kænskubragð í stjórnmálum.
Seg mér, hvað er sannleiki?
sigur vorrar skynsemi
gegnum setta samræmi
sólargrams í lögmáli.
Bezta dygð er bindindi,
bezta vopnið kærleiki,
bezta hygni hreinskilni,
hæsta speki guðrækni.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Hólsfjöllum og skóla
Ráðstefnur og
stjórnvöld
Það er hver ráðstefnan
á fætur annarri með
erlendum og inn-
lendum hagfræðingum
og alls konar fræð-
ingum. Hver borgar
fyrir þessar uppá-
komur? Er til nóg af
peningum til að kaupa
þetta fólk hingað til
þess að segja okkur
það sem við vitum?
Eða eru stjórnvöld svo
gersneydd allri getu til
að hugsa sjálfstætt, og
þetta verði að vera
svona? Eða þykir þetta kannski bara
svo menntað og flott? Besti brandari
ársins var í Silfri Egils, þar sem sýnt
var frá ræðu hagfræðings City Bank,
þar sem hann sagðist aldrei hafa séð
svo brenglaða múgsefjun hjá ágæt-
lega menntaðri þjóð eins og hér var
fyrir hrun. Og viti menn, við þessi orð
hans klöppuðuð þið fyrir sjálfum
ykkur. Það sýnir hvar þið eruð sið-
ferðilega stödd. Hví-
líkur brandari. Ruglið
er orðið algert hjá
stjórnvöldum, sem for-
gangsraða rangt með
peningum okkar. Til
Jóhönnu Sigurð-
ardóttur, sem er búin
að tala og tala til fjölda
ára, eða í ein þrjátíu
ár, – en hvað svo, – það
er á þinni vakt sem
ráðist er að líkn-
ardeildum landsins. –
Og svo máttu alveg
sitja í stólnum á þess-
um ráðstefnum, – það
er ekki við hæfi að
hálfliggja í þeim. Jó-
hanna og Steingrímur, þið skulið
hætta að afsaka gjörðir ykkar með
þeim orðum að þið séuð að laga til
eftir aðra, þetta er orðin leiðinleg
tugga og léleg. Lítið í eigin barm og
sjáið hvað þið sjálf eruð að gera.
Stefanía Jónasdóttir, Sauðárkróki.
Velvakandi
Ást er…
… að heyra rödd hans
þegar þú kemur heim úr
vinnunni.
Þetta er ég.
Ég elska þig!