Morgunblaðið - 28.11.2011, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.11.2011, Blaðsíða 26
26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2011 skilaði henni af mér. Ég var að treina mér hana, vildi ekkert endilega vera búinn með hana.“ Mikil heimildarvinna Þú varst lengi að skrifa bókina. Finnst þér sjálfum að bókin hafi grætt á því að vera svona lengi í vinnslu eða skipti það kannski ekki svo miklu máli? „Ég hefði ekki getað verið fljótari með hana. Ég lít um öxl og segi við sjálfan mig: Ansi var þetta langur tími, fimm ár frá síðustu bók. En þegar ég vann að bókinni var aldrei neitt hik á mér og ég lenti aldrei í vandræðum. Þetta var mikil heimildarvinna sem tók sinn tíma og ég þurfti að setja mig inn í ansi margt. Í mínu til- felli er það þannig að ef ég fer að vinna heim- ildarvinnu og fer síðan strax að nota það sem ég er nýbúinn að læra þá verður það svolítið augljóst. Mín reynsla er sú að hlutirnir verða að fá sinn gerjunartíma þannig að það sem maður hefur kynnt sér komi fram í sögunni á sem eðlilegastan hátt. Maður er þá ekki að upplýsa það sem maður hefur verið að rann- saka eða skoða heldur flýtur það fram á eðli- legan hátt, kemur með persónum, sögu og um- hverfi.“ Í hverju fólst heimildarvinnan aðallega? „Þótt ég þekki þetta landsvæði Ítalíu mjög vel þá þurfti ég að rifja upp ýmislegt, fara þangað og skoða svæðið. Ég þurfti líka að huga að sögutímanum á þessu landsvæði, en bókin gerist undir lok seinna stríðs, og það kostaði mikið grúsk. Ég var stöðugt að hugsa hvað ég gæti notað svo það þjónaði mínum til- gangi. Ég þurfti líka að fræðast um ýmislegt í málaralist, til dæmis hvað varðar tæknileg vinnubrögð og hvernig málarar eins og Cara- vaggio unnu og sömuleiðis kynna mér við- gerðir á málverkum og það hvernig tíminn fer með málverk.“ Íslenskt heimili Þetta er einstaklega vel skrifuð bók. Ligg- urðu venjulega mikið yfir stílnum þegar þú skrifar? „Já, ég geri það. Svo hefur hann þroskast með aldrinum og þróast. Ef stíllinn er ekki í lagi þá er erfitt að vega upp á móti því. Ég ligg yfir stílnum til að fá rétta tóninn og áferðina. Ég reyni að láta hlutina gerast undir yfirborð- inu og spila á tungumálið sem er stíllinn. Í stílnum felst líka tungumál þagnarinnar, það sem er ekki sagt, heldur liggur milli línanna og er gefið í skyn. Í mínum huga er þetta hluti af stílnum.“ Hvernig tekst þér að viðhalda íslenskunni, búandi í útlöndum í áratugi? „Ég les á íslensku og svo er ég í sambandi við vini og vandamenn heima, bæði í síma- sambandi og netsambandi. Heimilishaldið er þannig að fjölskyldan talar íslensku. Þetta er íslenskt heimili og við tölum ekki ensku okkar á milli. Þegar við hjónin heyrum á tal strák- anna okkar sem eru 16 og 18 ára og þeir eru tveir að spjalla þá tala þeir íslensku en þegar vinir þeirra koma snýst það við. Þegar dóttir okkar sem er sjö ára talar ensku við okkur segjum við: Við skiljum ekkert hvað þú ert að segja. Ég hef aldrei fundið fyrir því að íslenskan vefðist fyrir mér. Ég ólst upp á heimili þar sem rík áhersla var lögð á að tala gott íslenskt mál. Þetta var næstum því strangtrúarheimili þeg- ar kom að íslenskri tungu og þá er ég ekki að tala um neitt afturhald heldur voru foreldrar mínir af þeirri kynslóð sem lagði að jöfnu sjálf- stæði og ræktun tungumálsins. Mér er þetta hugarfar í blóð borið og fylgi sömu stefnu gagnvart mínum krökkum.“ Þú ert ekki á landinu að fylgja bókinni eftir heldur í New York. Finnst þér ekkert erfitt að vera ekki á landinu í jólabókaflóðinu? „Ég kem heim til Íslands upp úr miðjum desembermánuði og fæ þá stemninguna beint í æð. Það hefur alltaf verið þannig að ég hef að hluta til fylgt bókum mínum eftir úr fjarska. En svo er spurning hvort höfundurinn eigi mikið að vera að þvælast fyrir bók sinni þegar hún er komin út úr höndunum á honum. Það er ágætt mál að hann kynni hana en ætli sé ekki best að hafa það í hófi.“ Ljósmynd/Daniel Kazimierski Ólafur Jóhann Ég ligg yfir stílnum til að fá rétta tóninn og áferðina. Ég reyni að láta hlutina gerast undir yfirborðinu og spila á tungumálið sem er stíllinn. Tungumál þagnarinnar  Í nýrri skáldsögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar eru tvær konur í aðalhlutverkum  Höfund- urinn segir þær hafa tekið völdin  Skáldsagan, sem nefnist Málverkið, var fimm ár í vinnslu » Þessar konur hurfu ekki úr höfði mér þegar ég var búinn meðbókina heldur sátu þær þar eftir. Kannski var ég svo lengi að vinna bókina vegna þess að aðalpersónurnar voru ekki búnar að kveðja mig. Í lokin lá bókin hjá mér og ég var að smákrukka í hana í rúmt ár áður en ég skilaði henni af mér. Ég var að treina mér hana, vildi ekkert endilega vera búinn með hana. VIÐTALIÐ Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Málverkið eftir Ólaf Jóhann Ólafsson er ör- lagasaga tveggja kvenna, íslensku myndlist- arkonunnar Kristínar og hinnar ensku Alice sem býr á búgarði í Toscana. Ólafur Jóhann var fimm ár að skrifa bókina sem er áttunda skáldsaga hans. Þar sem konur eru í aðal- hlutverki bókarinnar er hann fyrst spurður hvort honum þyki skemmtilegra að skrifa um konur en karla. „Það er örugglega skemmtilegra að búa með konum en körlum og þetta er ákveðin sam- búð,“ segir hann. „En hvorki núna né þegar ég skrifaði Slóð fiðrildanna, þar sem kona er í að- alhlutverki, setti ég mig í sérstakar stellingar og sagði: Nú er kominn tími til að skrifa um konur. Það er nú bara þannig að þegar sögu- persónur taka sér bólfestu í kollinum á manni þá er lítið við því að gera. Þær eru bara komn- ar þangað. Mér fellur vel að skrifa um konur. Ég bjó lengi með þessum tveimur konum því ég var ekki að flýta mér með bókina. Mér fannst ekk- ert liggja á og ég naut þess að vinna hana. Að- alpersónurnar fengu tíma til að mótast og fóru að ráða ferðinni. Ef sögupersónur eru sterkar taka þær yfirleitt völdin af höfundi og stundum veit maður ekki hver er að vinna fyrir hvern. Þessar konur hurfu ekki úr höfði mér þegar ég var búinn með bókina heldur sátu þær þar eft- ir. Kannski var ég svo lengi að vinna bókina vegna þess að aðalpersónurnar voru ekki bún- ar að kveðja mig. Í lokin lá bókin hjá mér og ég var að smákrukka í hana í rúmt ár áður en ég

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.