Morgunblaðið - 28.11.2011, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.11.2011, Blaðsíða 12
„Mér líst afar illa á þau frum- varpsdrög sem kynnt hafa verið á heimasíðu sjávarútvegs- og land- búnaðarráðuneytisins,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands ís- lenskra útvegsmanna. Hann segir að fyrirhugaðar breytingar og mikil óvissa hafi áhrif á sam- keppnisstöðu íslensks sjávar- útvegs og lánakjör fyrirtækjanna. Hann segir að gert sé ráð fyrir allt of stuttum samningstíma eða einungis 20 árum. „Ég bendi á að síðasta vetur kom fram frumvarp um styttingu afnotatíma orkufyr- irtækja, sem nýta vatn og jarð- hita annars vegar í 30 ár og hins- vegar í 40 ár, sem fékk afar slæmar viðtökur og varð ekki að lögum. Í öðru lagi þá eru ákvæði um framlengingu afnotasamninga ekki nægjanlega skýr. Við þurf- um nú að fá mat á því hvort til- lögurnar þýða að við þurfum að afskrifa keyptar afla- heimildir að verðmæti 212 milljarða með tilheyrandi af- leiðingum á efnahag fyr- irtækjanna,“ segir Friðrik. Hann segir að tillögurnar geri ráð fyrir að allt of stór hluti afla- heimilda verði tekinn framhjá aflahlutdeild til pólitískra úthlut- ana, m.a. til svokallaðra strand- veiða, byggðakvóta og línuíviln- unar. Til viðbótar eigi að taka 50% aflaaukningar frá þeim sem hafa tekið á sig skerðingar í þorski, ýsu, ufsa og steinbít þegar ákveðnu viðmiði hefur verið náð, sem sé algjörlega óásættanlegt. „Þá eru í frumvarpsdrögunum ákvæði sem miða að því að ákveð- ið fyrirtæki verði brotið upp og eins að ákveðnum fyrirtækjum verði gert að selja frá sér afla- heimildir. Fjölmörg önnur atriði eru í drögunum sem mér líst illa á, s.s. ákvæði um svokallað Kvótaþing, óskýr og matskennd ákvæði um ákvörðun afla- hlutdeildar, ákvæði um takmörk- un á framsali aflahlutdeildar og aflamarks og mikið framsal á valdi til ráðherra sem full ástæða er til að gjalda varhug við. Veiðigjaldið, sem er grundvall- aratriði, er skilið eftir óleyst en fram kemur að verið sé að vinna að því máli á öðrum vettvangi. Þær hugmyndir sem kynntar hafa verið í því efni gera ráð fyrir of- urskattlagningu með tilheyrandi lamandi áhrifum á atvinnugrein- ina,“ segir Friðrik. Líst afar illa á drögin  Gagnrýnir stuttan samningstíma  Of mikið í pólitískar úthlutanir  Ákveðin ákvæði óskýr og matskennd Friðrik J. Arn- grímsson 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2011 ÓDÝRT ALLA DAG A! – fyrst og fremst ódýr! FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Ekki er sérstaklega fjallað um veðsetn- ingu aflaheimilda í vinnuskjali sem sjáv- arútvegsráðherra hefur kynnt í ríkis- stjórn og hefur að geyma frumvarp til breytinga á núgildandi lögum um stjórn fiskveiða. Miðað er við samninga við nú- verandi aflamarkshafa til 20 ára og ákvæði eru um hámark aflamarks í ein- stökum fisktegundum. Unnið hefur verið að gerð frumvarpsins undanfarið í vinnu- hópi og var vinnuskjalið sett inn á vef ráðuneytisins síðdegis á laugardag. Ekki var haft formlegt samráð við hagsmuna- aðila við undirbúninginn. Í starfshópnum voru Aðalsteinn Bald- ursson, formaður Framsýnar – stéttar- félags, Atli Gíslason, hrl. og alþingismað- ur, sem sagði skilið við þingflokk Vinstri grænna síðastliðinn vetur, Jóhann Guð- mundsson, skrifstofustjóri í ráðuneytinu, og Jón Eðvald Friðriksson, fram- kvæmdastjóri FISK á Sauðárkróki, en það fyrirtæki gerir m.a. út fjóra togara. Eldra frumvarp lagt til hliðar Heildstætt frumvarp um stjórn fisk- veiða, sem lagt var fram síðastliðinn vet- ur, hefur verið lagt til hliðar. Það fékk falleinkunn hjá mörgum sem um það fjölluðu, meðal annars starfshópi sér- fræðinga sem ráðherra skipaði til að meta hagræn áhrif þess. Í því frumvarpi var sérstök grein um veðsetningar afla- heimilda, en sérfræðihópur ráðherra taldi í skýrslu sinni bann við veðsetningu óráðlegt. Vinnuskjalið var rætt á ríkis- stjórnarfundi á þriðjudag og föstudag. Í athugasemdum með frumvarpinu segir að leitast sé við „að ná sem víðtækastri sátt um málefni sjávarútvegsins jafnt ut- an þings sem innan“. Veiðigjald í öðrum nefndum Í athugasemdunum segir að ekki sé talið tímabært að leggja til breytingu á hlutfalli veiðigjalds, álagningarstofni og álagningu frá gildandi lögum. Bent er á að nú sé að störfum nefnd á vegum fjár- málaráðuneytisins, sem ætlað er það hlutverk að fara yfir heildarskattlagn- ingu á sjávarútveg, hvernig rétt sé að skattleggja sérstakan umframhagnað og væntanlega hvernig taka megi tillit til mismunandi stöðu greina innan útvegs- ins. Þá sé einnig að störfum auðlinda- stefnunefnd á vegum forsætisráðuneyt- isins. Í frumvarpinu er byggt á samningum um nýtingu á aflaheimildum og að þeir verði í upphafi til 20 ára og að nýting- arhafi eigi rétt á endurskoðun samnings sem hefjast skal sex árum fyrir lok gild- istíma hans. Heimilt er að framlengja samning um 15 ár hverju sinni. Í frum- varpinu frá í fyrravetur var miðað við samninga til 15 ára og eina endurnýjun til átta ára. Breytingar eru gerðar á ákvæðum gildandi laga um hámarksaflahlutdeild sem einn aðili getur haft yfir að ráða í hverri fisktegund. Er það gert til að auka samkeppni og koma í veg fyrir frekari samþjöppun í sjávarútvegi en nú er þeg- ar orðin, eins og segir í athugasemdun- um. Jafnframt eru hert ákvæði um sam- starf og tengsl aðila. Tilfærsla fjármagns Í athugasemdunum kemur fram að yfir 80% tekna af veiðigjaldi greiða sjávarút- vegsfyrirtæki á landsbyggðinni og til- færsla fjármagns frá þessum byggðum til höfuðborgarsvæðisins sé veruleg. Í frum- varpinu er gert ráð fyrir að tekjur af veiðigjaldi skiptist þannig að 50% renni í ríkissjóð, 40% til sjávarbyggða og 10% til þróunar- og markaðsmála í sjávarútvegi. Veiðigjald verði einn af lögmæltum tekjustofnum sveitarfélaga og er kynnt frumvarp þess efnis. Í vinnuskjalinu er lagt til að fari var- anlegt framsal aflaheimilda úr byggðar- lagi umfram 15% miðað við aflaheimildir í byggðarlagi fiskveiðiárið 2011/2012 geti ráðherra hafnað framsali eða nýtt for- gangsrétt til að tryggja að aflaheimild- irnar verði áfram á því svæði sem um er að ræða, segir í athugasemdunum. Loks má nefna að lagt er til að kvótaþingi verði komið á að nýju og lagt er til að stofnað verði Kvótaþing Fiskistofu. Miðað við samninga til 20 ára  Vinnuskjal með frumvarpsdrögum um fiskveiðistjórn lagt fyrir ríkisstjórn  Ekkert um veðsetningu og ekki talið tímabært að leggja til breytingu á hlutfalli veiðigjalds og álagningarstofni Morgunblaðið/Ómar Veiðar Unnið hefur verið að gerð frumvarpsins undanfarið í vinnuhópi. Byggðaaðgerðir » Í byggðakvóta hefur ráðherra heimild til að ráðstafa allt að 10.200 lestum af óslægðum þorski, 1.700 lestum af ýsu, 2.700 lestum af ufsa og 400 lestum af steinbít. » Tvöföldun er afnumin og úgerðir þurfa því ekki lengur að leggja afla- mark á móti byggðakvóta. » Í línuívilnun getur ráðherra ráð- stafað allt að 3.400 lestum af þorski, 2.100 lestum af ýsu og 900 lestum af steinbít. » Í strandveiði fær ráðherra til út- hlutunar á hverju fiskveiðiári allt að 6.800 lestum af þorski og 1.800 lestum af ufsa. Menn í sjávarútveginum eru ekki ánægðir með vinnubrögð ríkisstjórnarinnar og Jóns Bjarnasonar ráðherra eða eins og Eggert B. Guðmundsson, forstjóri Granda, sagði: „Það sem er sorglegt við þetta er að það er haldið áfram með þau lélegu vinnubrögð sem voru áður. Frumvarpið sem þau komu með í vor var gert án samráðs og fékk alls staðar fall- einkunn. Þau lofa bót og betrun en allt fer á sama veg; það er bara farið inn í helli með einhverjum mönnum sem enginn veit hverjir eru og svo birt- ast þessi drög á netinu. Ef það væri ekki svona mikið undir og mikið í húfi fyrir efnahag landsins myndi maður kalla þetta einn allsherjar kabarett.“ Aðspurður segir Eggert að margt í tillögunum slá sig illi- lega. „En ég vil ekki vera að koma strax með athugasemdir við einstaka liði, við munum fara yfir þetta í rólegheitunum. Aftur á móti virðist ljóst að þetta verði ekki tillaga rík- isstjórnarinnar, þannig að við bíðum bara áfram eftir því að þetta komist loksins í vitrænt ferli og þá má búast við ein- hverju sem mark er á takandi.“ borkur@mbl.is „Einn allsherjar kabarett“ Eftir að Jón Bjarnason hefur lagt tillögur starfshópsins fyrir ríkisstjórnina á þriðjudag- inn bregst hún þannig við að á föstudaginn skipar hún Guðbjart Hannesson velferð- arráðherra og Katrínu Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra í ráðherranefnd um sjávarútvegsmál en það jafngildir því að margra mati að málið sé tekið úr höndum Jóns Bjarnasonar, eins og Ólína Þorvarð- ardóttir tekur til dæmis undir. Guðbjartur Hannesson vill ekki taka svo sterkt til orða. „Til svona nefndar innan ríkisstjórnarinnar hefur oft áður verið stofnað til þess að reyna að finna flöt á málinu sem allir geta sætt sig við. Og Jón hefur ekki lagt þetta fram sem sína tillögu, þetta er vinnu- tillaga sem kemur frá þessari nefnd sem hann skipaði.“ Aðspurður hvort hann taki ekki undir það að þessi vinnu- brögð sjávarútvegsráðherrans séu óboðleg, segir hann að vissulega fái ráðherrar alla jafna að fylgjast með því sem er að gerast í svona stórum málum. „En þannig hefur það ekki verið í þessu máli,“ segir Guðbjartur. borkur@mbl.is Nefnd stofnuð innan stjórnarinnar „Þetta eru stórtíðindi,“ segir Ólína Þorvarð- ardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og nefndarmaður í atvinnuveganefnd Alþingis. „Mér sýnist Jón Bjarnason ráðherra vera búinn að taka ákvörðun um að vera ekki í þessari ríkisstjórn. Hann skipar nefnd án þess að aðrir viti af því, hann vinnur í felum fyrir ríkisstjórninni og þegar málið er tekið úr hans höndum á föstudaginn, þá bregst hann við með því að birta frumvarpsdrög á vef ráðuneytisins. Það er alvarlegt mál ef ráðherra fer ekki að vilja ríkisstjórnarinnar. Hann hlýtur að axla ábyrgð á þess- um vinnubrögðum,“ segir Ólína. borkur@mbl.is „Ráðherra hlýtur að axla ábyrgð“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.