Morgunblaðið - 28.11.2011, Qupperneq 12
„Mér líst afar illa á þau frum-
varpsdrög sem kynnt hafa verið á
heimasíðu sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytisins,“ segir
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna. Hann segir
að fyrirhugaðar breytingar og
mikil óvissa hafi áhrif á sam-
keppnisstöðu íslensks sjávar-
útvegs og lánakjör fyrirtækjanna.
Hann segir að gert sé ráð fyrir
allt of stuttum samningstíma eða
einungis 20 árum. „Ég bendi á að
síðasta vetur kom fram frumvarp
um styttingu afnotatíma orkufyr-
irtækja, sem nýta vatn og jarð-
hita annars vegar í 30 ár og hins-
vegar í 40 ár, sem fékk afar
slæmar viðtökur og varð ekki að
lögum. Í öðru lagi þá eru ákvæði
um framlengingu afnotasamninga
ekki nægjanlega skýr. Við þurf-
um nú að fá mat á því hvort til-
lögurnar þýða
að við þurfum
að afskrifa
keyptar afla-
heimildir að
verðmæti 212
milljarða með
tilheyrandi af-
leiðingum á
efnahag fyr-
irtækjanna,“
segir Friðrik.
Hann segir að tillögurnar geri
ráð fyrir að allt of stór hluti afla-
heimilda verði tekinn framhjá
aflahlutdeild til pólitískra úthlut-
ana, m.a. til svokallaðra strand-
veiða, byggðakvóta og línuíviln-
unar. Til viðbótar eigi að taka
50% aflaaukningar frá þeim sem
hafa tekið á sig skerðingar í
þorski, ýsu, ufsa og steinbít þegar
ákveðnu viðmiði hefur verið náð,
sem sé algjörlega óásættanlegt.
„Þá eru í frumvarpsdrögunum
ákvæði sem miða að því að ákveð-
ið fyrirtæki verði brotið upp og
eins að ákveðnum fyrirtækjum
verði gert að selja frá sér afla-
heimildir. Fjölmörg önnur atriði
eru í drögunum sem mér líst illa
á, s.s. ákvæði um svokallað
Kvótaþing, óskýr og matskennd
ákvæði um ákvörðun afla-
hlutdeildar, ákvæði um takmörk-
un á framsali aflahlutdeildar og
aflamarks og mikið framsal á
valdi til ráðherra sem full ástæða
er til að gjalda varhug við.
Veiðigjaldið, sem er grundvall-
aratriði, er skilið eftir óleyst en
fram kemur að verið sé að vinna
að því máli á öðrum vettvangi.
Þær hugmyndir sem kynntar hafa
verið í því efni gera ráð fyrir of-
urskattlagningu með tilheyrandi
lamandi áhrifum á atvinnugrein-
ina,“ segir Friðrik.
Líst afar illa á drögin
Gagnrýnir stuttan samningstíma Of mikið í pólitískar
úthlutanir Ákveðin ákvæði óskýr og matskennd
Friðrik J. Arn-
grímsson
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2011
ÓDÝRT
ALLA DAG
A!
– fyrst og
fremst
ódýr!
FRÉTTASKÝRING
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Ekki er sérstaklega fjallað um veðsetn-
ingu aflaheimilda í vinnuskjali sem sjáv-
arútvegsráðherra hefur kynnt í ríkis-
stjórn og hefur að geyma frumvarp til
breytinga á núgildandi lögum um stjórn
fiskveiða. Miðað er við samninga við nú-
verandi aflamarkshafa til 20 ára og
ákvæði eru um hámark aflamarks í ein-
stökum fisktegundum. Unnið hefur verið
að gerð frumvarpsins undanfarið í vinnu-
hópi og var vinnuskjalið sett inn á vef
ráðuneytisins síðdegis á laugardag. Ekki
var haft formlegt samráð við hagsmuna-
aðila við undirbúninginn.
Í starfshópnum voru Aðalsteinn Bald-
ursson, formaður Framsýnar – stéttar-
félags, Atli Gíslason, hrl. og alþingismað-
ur, sem sagði skilið við þingflokk Vinstri
grænna síðastliðinn vetur, Jóhann Guð-
mundsson, skrifstofustjóri í ráðuneytinu,
og Jón Eðvald Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri FISK á Sauðárkróki, en
það fyrirtæki gerir m.a. út fjóra togara.
Eldra frumvarp lagt til hliðar
Heildstætt frumvarp um stjórn fisk-
veiða, sem lagt var fram síðastliðinn vet-
ur, hefur verið lagt til hliðar. Það fékk
falleinkunn hjá mörgum sem um það
fjölluðu, meðal annars starfshópi sér-
fræðinga sem ráðherra skipaði til að
meta hagræn áhrif þess. Í því frumvarpi
var sérstök grein um veðsetningar afla-
heimilda, en sérfræðihópur ráðherra
taldi í skýrslu sinni bann við veðsetningu
óráðlegt.
Vinnuskjalið var rætt á ríkis-
stjórnarfundi á þriðjudag og föstudag. Í
athugasemdum með frumvarpinu segir
að leitast sé við „að ná sem víðtækastri
sátt um málefni sjávarútvegsins jafnt ut-
an þings sem innan“.
Veiðigjald í öðrum nefndum
Í athugasemdunum segir að ekki sé
talið tímabært að leggja til breytingu á
hlutfalli veiðigjalds, álagningarstofni og
álagningu frá gildandi lögum. Bent er á
að nú sé að störfum nefnd á vegum fjár-
málaráðuneytisins, sem ætlað er það
hlutverk að fara yfir heildarskattlagn-
ingu á sjávarútveg, hvernig rétt sé að
skattleggja sérstakan umframhagnað og
væntanlega hvernig taka megi tillit til
mismunandi stöðu greina innan útvegs-
ins. Þá sé einnig að störfum auðlinda-
stefnunefnd á vegum forsætisráðuneyt-
isins.
Í frumvarpinu er byggt á samningum
um nýtingu á aflaheimildum og að þeir
verði í upphafi til 20 ára og að nýting-
arhafi eigi rétt á endurskoðun samnings
sem hefjast skal sex árum fyrir lok gild-
istíma hans. Heimilt er að framlengja
samning um 15 ár hverju sinni. Í frum-
varpinu frá í fyrravetur var miðað við
samninga til 15 ára og eina endurnýjun til
átta ára.
Breytingar eru gerðar á ákvæðum
gildandi laga um hámarksaflahlutdeild
sem einn aðili getur haft yfir að ráða í
hverri fisktegund. Er það gert til að auka
samkeppni og koma í veg fyrir frekari
samþjöppun í sjávarútvegi en nú er þeg-
ar orðin, eins og segir í athugasemdun-
um. Jafnframt eru hert ákvæði um sam-
starf og tengsl aðila.
Tilfærsla fjármagns
Í athugasemdunum kemur fram að yfir
80% tekna af veiðigjaldi greiða sjávarút-
vegsfyrirtæki á landsbyggðinni og til-
færsla fjármagns frá þessum byggðum til
höfuðborgarsvæðisins sé veruleg. Í frum-
varpinu er gert ráð fyrir að tekjur af
veiðigjaldi skiptist þannig að 50% renni í
ríkissjóð, 40% til sjávarbyggða og 10% til
þróunar- og markaðsmála í sjávarútvegi.
Veiðigjald verði einn af lögmæltum
tekjustofnum sveitarfélaga og er kynnt
frumvarp þess efnis.
Í vinnuskjalinu er lagt til að fari var-
anlegt framsal aflaheimilda úr byggðar-
lagi umfram 15% miðað við aflaheimildir í
byggðarlagi fiskveiðiárið 2011/2012 geti
ráðherra hafnað framsali eða nýtt for-
gangsrétt til að tryggja að aflaheimild-
irnar verði áfram á því svæði sem um er
að ræða, segir í athugasemdunum. Loks
má nefna að lagt er til að kvótaþingi verði
komið á að nýju og lagt er til að stofnað
verði Kvótaþing Fiskistofu.
Miðað við samninga til 20 ára
Vinnuskjal með frumvarpsdrögum um fiskveiðistjórn lagt fyrir ríkisstjórn Ekkert um
veðsetningu og ekki talið tímabært að leggja til breytingu á hlutfalli veiðigjalds og álagningarstofni
Morgunblaðið/Ómar
Veiðar Unnið hefur verið að gerð frumvarpsins undanfarið í vinnuhópi.
Byggðaaðgerðir
» Í byggðakvóta hefur ráðherra
heimild til að ráðstafa allt að
10.200 lestum af óslægðum þorski,
1.700 lestum af ýsu, 2.700 lestum
af ufsa og 400 lestum af steinbít.
» Tvöföldun er afnumin og úgerðir
þurfa því ekki lengur að leggja afla-
mark á móti byggðakvóta.
» Í línuívilnun getur ráðherra ráð-
stafað allt að 3.400 lestum af
þorski, 2.100 lestum af ýsu og 900
lestum af steinbít.
» Í strandveiði fær ráðherra til út-
hlutunar á hverju fiskveiðiári allt að
6.800 lestum af þorski og 1.800
lestum af ufsa.
Menn í sjávarútveginum eru ekki ánægðir
með vinnubrögð ríkisstjórnarinnar og Jóns
Bjarnasonar ráðherra eða eins og Eggert B.
Guðmundsson, forstjóri Granda, sagði: „Það
sem er sorglegt við þetta er að það er haldið
áfram með þau lélegu vinnubrögð sem voru
áður. Frumvarpið sem þau komu með í vor
var gert án samráðs og fékk alls staðar fall-
einkunn. Þau lofa bót og betrun en allt fer á
sama veg; það er bara farið inn í helli með
einhverjum mönnum sem enginn veit hverjir eru og svo birt-
ast þessi drög á netinu. Ef það væri ekki svona mikið undir og
mikið í húfi fyrir efnahag landsins myndi maður kalla þetta
einn allsherjar kabarett.“
Aðspurður segir Eggert að margt í tillögunum slá sig illi-
lega. „En ég vil ekki vera að koma strax með athugasemdir
við einstaka liði, við munum fara yfir þetta í rólegheitunum.
Aftur á móti virðist ljóst að þetta verði ekki tillaga rík-
isstjórnarinnar, þannig að við bíðum bara áfram eftir því að
þetta komist loksins í vitrænt ferli og þá má búast við ein-
hverju sem mark er á takandi.“ borkur@mbl.is
„Einn allsherjar kabarett“
Eftir að Jón Bjarnason hefur lagt tillögur
starfshópsins fyrir ríkisstjórnina á þriðjudag-
inn bregst hún þannig við að á föstudaginn
skipar hún Guðbjart Hannesson velferð-
arráðherra og Katrínu Jakobsdóttur mennta-
og menningarmálaráðherra í ráðherranefnd
um sjávarútvegsmál en það jafngildir því að
margra mati að málið sé tekið úr höndum
Jóns Bjarnasonar, eins og Ólína Þorvarð-
ardóttir tekur til dæmis undir. Guðbjartur
Hannesson vill ekki taka svo sterkt til orða. „Til svona nefndar
innan ríkisstjórnarinnar hefur oft áður verið stofnað til þess að
reyna að finna flöt á málinu sem allir geta sætt sig við. Og Jón
hefur ekki lagt þetta fram sem sína tillögu, þetta er vinnu-
tillaga sem kemur frá þessari nefnd sem hann skipaði.“
Aðspurður hvort hann taki ekki undir það að þessi vinnu-
brögð sjávarútvegsráðherrans séu óboðleg, segir hann að
vissulega fái ráðherrar alla jafna að fylgjast með því sem er að
gerast í svona stórum málum. „En þannig hefur það ekki verið í
þessu máli,“ segir Guðbjartur. borkur@mbl.is
Nefnd stofnuð innan stjórnarinnar
„Þetta eru stórtíðindi,“ segir Ólína Þorvarð-
ardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og
nefndarmaður í atvinnuveganefnd Alþingis.
„Mér sýnist Jón Bjarnason ráðherra vera
búinn að taka ákvörðun um að vera ekki í
þessari ríkisstjórn. Hann skipar nefnd án
þess að aðrir viti af því, hann vinnur í felum
fyrir ríkisstjórninni og þegar málið er tekið
úr hans höndum á föstudaginn, þá bregst
hann við með því að birta frumvarpsdrög á
vef ráðuneytisins. Það er alvarlegt mál ef ráðherra fer ekki
að vilja ríkisstjórnarinnar. Hann hlýtur að axla ábyrgð á þess-
um vinnubrögðum,“ segir Ólína. borkur@mbl.is
„Ráðherra hlýtur að axla ábyrgð“