Morgunblaðið - 28.11.2011, Page 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2011
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Arababandalagið samþykkti í gær með þorra at-
kvæða hertar refsiaðgerðir gegn Sýrlandi, þ. á m.
ferðabann, frystingu sýrlenskra eigna og við-
skiptabann. Á aðgerðin sér engin fordæmi í sögu
þess. Sheikh Hamad bin Jassim al-Thani, forsæt-
is- og utanríkisráðherra Katars, kynnti aðgerð-
irnar sem sýrlensk stjórnvöld segja að geti haft í
för með sér erlent hernaðarinngrip í landinu.
En al-Thani sagði refsiaðgerðirnar nauðsynleg-
ar til þess að alþjóðasamfélagið sæi að arabaríkin
meintu eitthvað með gagnrýni sinni á framferði
Reyna að einangra Sýrlandsstjórn
Þvingunaraðgerðir Arababandalagsins eiga sér ekkert fordæmi í sögu þess
Viðskipti við Sýrlendinga verða að mestu stöðvuð og eignir þeirra frystar
ríkisstjórnar Bashars al-As-
sads gegn
stjórnarandstæðingum. Fyr-
ir tæpum mánuði samþykkti
Assad að nokkur þúsund eftir-
litsmenn á vegum Arababanda-
lagsins færu til Sýrlands til að
kanna stöðu mála en snerist
hugur þegar bandalagið bað
Sameinuðu þjóðirnar um að
leggja til hluta af eftirlitsliðinu.
Framkvæmdastjóri Araba-
bandalagsins, Nabil Elaraby, sagði í gær að það
myndi endurskoða afstöðu sína ef sýrlenskir ráða-
Sheikh Hamad bin
Jassim al-Thani
menn tækju við eftirlitsmönnunum og drægju
skriðdreka sína á brott frá borgunum.
Talið er að um 3.500 manns hafi fallið í átök-
unum í Sýrlandi á árinu, aðallega óvopnaðir borg-
arar, þar af 11 í gær og 27 á laugardag.
19 af 22 ríkjum bandalagsins samþykktu að-
gerðirnar, meðal ríkja sem voru andvíg voru Írak
og Líbanon. Sögðust Írakar efast um að efnahags-
legar refsiaðgerðir hefðu áhrif en einnig bentu
þeir á að Sýrlendingar hefðu tekið við um tveim
milljónum flóttamanna frá Írak. Áhrif Írana,
helstu stuðningsmanna Assads utan landsins, eru
mikil í Írak og Sýrlendingar styðja Hizbollah-
menn í Líbanon sem eiga aðild að stjórn landsins.
Áfall fyrir viðskiptin
» Deilt er um það hve mikil og
snögg áhrifin af viðskiptabann-
inu verða. Um helmingur út-
flutnings Sýrlands fer til ann-
arra arabalanda.
» Írakar, næst-stærsta við-
skiptaþjóð Sýrlendinga, taka
ekki þátt í banninu. Evrópu-
sambandið er hætt að kaupa
olíu af Sýrlendingum og
Bandaríkin hafa þegar bannað
mestöll viðskipti við ríkið.
Yfirmaður riddaraliðs Lýðveldisvarðarins í Frakklandi
stöðvar fák sinn við Eiffelturninn í París í gær, skraut-
legir búningarnir minna fólk á stjórnarbyltinguna og
frægðarsól Napóleons Frakkakeisara. Í næstu viku
hefst mikil hestasýning í París og var liðið að minna á
hana með því að ríða um götur heimsborgarinnar.
Reuters
Vörpulegir riddarar í París
FRÉTTASKÝRING
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Pakistanar eru ævareiðir vegna
árásar sem herflugvélar Atlants-
hafsbandalagsins, NATO, gerðu á
bækistöðvar pakistanska hersins við
landamærin að Afganistan á laug-
ardag. Minnst 24 hermenn Pakist-
ana féllu. Allir voru sagðir hafa verið
sofandi þegar ráðist var á stöðv-
arnar og árásinni hafi þegar verið
svarað með gagnárás. Hafa stjórn-
völd í Islamabad stöðvað í bili alla
birgðaflutninga NATO og al-
þjóðaliðsins í Afganistan, ISAF, um
pakistanskt landssvæði. Bandaríkja-
menn fengu tveggja vikna frest til að
loka flugbækistöð sem þeir hafa til
umráða við landamærin.
Staðan var viðkvæm fyrir. Stolt
Pakistana er sært eftir að banda-
rískir sérsveitarmenn gómuðu
og drápu Osama bin Laden í
vor í Pakistan. Hann hafði
leynst þar árum saman bók-
staflega við nefið á Pakistansher.
Eiga flestir erfitt með að trúa að
bin Laden hafi ekki átt sér að-
stoðarmenn í æðstu röðum hers
og leyniþjónustu.
En Bandaríkjamenn og tals-
menn NATO báðust þegar afsök-
unar og hétu rannsókn á atvikinu á
laugardag. Opinberlega er Pakistan
afar mikilvægur bandamaður í stríð-
inu við talíbana sem hafa bækistöðv-
ar beggja vegna landamæranna. Þau
eru reyndar afar óljós og umdeild,
sagt að munað geti nokkrum kíló-
metrum eftir því hvaða kort menn
notist við.
Hvor skaut fyrst?
En hvað gerðist í raun? Ljóst er
að flokkar NATO-hermanna og Afg-
anistanhers voru að leita að talíbön-
um á svæðinu og segja þeir að skotið
hafi verið á þá úr bækistöðvum Pak-
istana. Hafi því einfaldlega verið um
sjálfsvörn að ræða þegar þeir báðu
um aðstoð úr lofti. Fullyrt er að
þetta sé ekki í fyrsta sinn sem pak-
istanskir hermenn á svæðinu, sem
eiga að vera að berjast við uppreisn-
armenn, hafi skotið á herflokka
NATO og Afganistanshers á svæð-
inu, að sögn Wall Street Journal.
Var loftárásin á
Pakistana sjálfsvörn?
Mikil reiði í Islamabad vegna mannfallsins á laugardag
Óljóst hver upptökin voru en NATO heitir rannsókn
200 km
Termez
landa-
mærastöð
Chaman-
hliðið
Karachi Birgðir
koma sjóleiðis
Lettland
Riga
Georgia
Poti
Úsbekistan
Termez
Afganistan
AFGANISTAN
I N D L .
ÚSBEKISTAN
ÍRAN
TÚRKMENISTAN
PAKISTAN
Herat
Kandahar
Kabúl
Khyber
Pakhtunkhwa
Landamörk
Arabíuhaf
FATA* Islamabad
Lahore
JAMMU &
KASHMIR
Birgðaleiðir til Afganistan
Heimildir: CSIS, TRANSCOM, Reuters Grafík: Cabrera/RNGS
Norðlægar birgðaleiðir
Birgðir NATO
Leiðir til vara þvert
yfir Asíu
Nota vegi og járnbrautir
* FATA - Ættflokkahéruð
undir beinni alríkisstjórn
Helstu leiðir Helstu bækistöðvar NATO og ISAF
Torkham-
hliðið
Tæpur þriðjungur um
Pakistan
Rúmur þriðjungur um
norðlægar leiðir
31% með flugi
Baizai svæðið
Laugard. Þyrlur
og þotur NATO
réðust á
herstöðvar í
Pakistan, 24
hermenn féllu.
TADSJIK.
KÍNA
Órangútan-öpum hefur fækkað mik-
ið á síðustu áratugum og óttast sum-
ir að tegundin geti dáið út. Um 90%
allra órangútana lifa í Indónesíu en
þeim fækkar vegna veiða en einnig
vegna þess að þrengt er að umhverfi
þeirra með aukinni ræktun, að sögn
Guardian í Bretlandi.
Á Kalimantan, indónesíska hluta
Borneó, hefur órangútönum senni-
lega fækkað um helming á 25 árum, í
54 þúsund. Einnig munu vera tæp-
lega sjö þúsund dýr á Súmötru,
stofninn þar hefur verið talinn í út-
rýmingarhættu í meira en áratug.
Erik Meijaard, sem hefur stýrt hópi
er reynir að meta ástandið á Kalim-
antan, óttast að með sama áfram-
haldi deyi dýrin þar að mestu út á
10-15 árum. En aðrir sérfræðingar
segja það vera ýkjur, áfram muni
litlir hópar hjara á afmörkuðum
svæðum.
Menn eru þó sammála um að
stjórnvöld í Jakarta verði að herða
eftirlit og refsa þeim sem fella dýrin.
Meijaard segist
aðeins vita um
tvö tilfelli þar
sem mönnum hafi
verið refsað fyrir
að drepa ór-
angútana. Út-
skýra verði fyrir
almenningi í
Indónesíu að dýr-
in séu í útrýming-
arhættu og fram-
fylgja lögum sem banna að aparnir
séu beinlínis veiddir til matar.
Ólöglegt skógarhögg, aukin út-
breiðsla pálmaviðarakra og gull-
gröftur á allt sinn þátt í að aparnir
hrekjast úr náttúrulegum heim-
kynnum sínum. Algengt er að
þorpsbúar stækki bú sín á kostnað
skóganna, að sögn Meijaards. „Ef
maður rekst á órangútan í garðinum
þar sem hann étur ávextina eða rífur
upp pálmatrén eru rökrétt viðbrögð
að hræða hann á brott eða drepa
hann.“ kjon@mbl.is
Órangútanar í
Indónesíu í hættu
Ungur órangútan.
Athafnir manna þrengja að öpunum
Heiftin er mikil í Pakistan
vegna mannfallsins á laugar-
dag. En háttsettir Banda-
ríkjamenn hafa lengi fullyrt
að Pakistan leiki tveim
skjöldum í stríðinu við
alþjóðleg hryðjuverka-
samtök. Þekktir stjórn-
málamenn vestanhafs
vilja jafnvel hætta öllu
samstarfi við þá.
Það væri þó ekki auðvelt. Ef
samstarfið rofnaði alveg gætu
Pakistanar valdið Bandaríkjunum
miklum óskunda, einmitt þegar
verið er að skipuleggja brotthvarf
herja frá Afganistan á næstu ár-
um. Á móti kemur að Pakistanar fá
milljarða dollara efnahagsaðstoð
frá Bandaríkjamönnum ár hvert.
Faðmlaginu er því varla lokið.
„Þetta er samband sem byggist á
þörfum,“ segir Imtiaz Gul, yfir-
maður hugveitu í Islamabad.
Samskipti byggð á þörfum
GAGNKVÆMUR URGUR EN VARLA ALGER SAMSTARFSSLIT
Talibani