Morgunblaðið - 28.11.2011, Page 23
DAGBÓK 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
2 4 1
4 6 5 3
8 3 6 4
5 8
7
1 4 2
5 3 4
7 8 2
7 8 1 3
4 7
9 6
6 2 1
3 6
2 7 3
1 5
5 9 2
5
7 9 4 1
4
1 6
9 8 6 7
1 6 8
8 3 6 2
9 3 4
2 9
1 7 8
4 7
1 8 2 9 5 3 7 6 4
6 4 5 7 8 2 3 1 9
9 7 3 4 1 6 5 2 8
2 1 8 3 4 9 6 5 7
4 3 7 1 6 5 8 9 2
5 9 6 8 2 7 4 3 1
7 2 1 6 3 8 9 4 5
3 5 9 2 7 4 1 8 6
8 6 4 5 9 1 2 7 3
7 6 5 3 9 1 2 8 4
8 4 2 6 5 7 3 9 1
9 1 3 8 4 2 6 5 7
6 9 7 4 1 8 5 3 2
3 2 4 5 7 6 9 1 8
5 8 1 9 2 3 4 7 6
2 3 8 7 6 5 1 4 9
4 7 6 1 3 9 8 2 5
1 5 9 2 8 4 7 6 3
9 5 3 1 8 4 6 2 7
2 1 6 5 7 9 8 3 4
7 8 4 2 6 3 1 5 9
3 6 5 4 1 8 9 7 2
4 7 8 9 2 5 3 6 1
1 9 2 6 3 7 5 4 8
8 2 9 7 5 6 4 1 3
6 3 7 8 4 1 2 9 5
5 4 1 3 9 2 7 8 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 28. nóvember,
332. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum
misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yð-
ar himneskur fyrirgefa yður.
(Matt. 6, 14.)
Krossgáta
Lárétt | 1 stuttir dagar, 8
settu saman, 9 ytri flík, 10
ber, 11 glitra, 13 hinn, 15
lundar, 18 lítið eitt ölvuð, 21
grænmeti, 22 hegra, 23 bú-
vara, 24 afbrotamaður.
Lóðrétt | 2 brosir, 3 japla, 4
myrkur, 5 óþétt, 6 mynnum,
7 skordýr, 12 gutl, 14 þegar,
15 poka, 16 skyldmennin, 17
fiskur, 18 ferma, 19 voru í
vafa, 20 ala.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kjass, 4 suddi, 7 mæðir, 8 öfgar, 9 gúl, 11 nært, 13
brár, 14 umsjá, 15 þung, 17 ljón, 20 und, 22 kofan, 23 rollu, 24
totta, 25 skans.
Lóðrétt: 1 kímin, 2 arður, 3 sorg, 4 spöl, 5 dugir, 6 iðrar, 10 úns-
an, 12 tug, 13 bál, 15 þekkt, 16 nefnt, 18 julla, 19 nauts, 20 unna,
21 drós.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Á silfurfati. N-NS.
Norður
♠Á8
♥DG109
♦865
♣ÁG95
Vestur Austur
♠K10764 ♠G932
♥432 ♥ÁK6
♦D10 ♦ÁG9743
♣642 ♣–
Suður
♠D5
♥875
♦K2
♣KD10873
Suður spilar 3G.
Sé litið eftir AV-línunni sést glöggt að
4♠ vinnast auðveldlega með því einu að
svína fyrir ♠D. Þar enduðu til dæmis
Bocchi og Madala þegar spilið kom upp
í riðlakeppni Evrópubikarsins fyrir
skömmu. Norður vakti á Standard-laufi,
Madala í austur kom inn á 1♦ og suður
stökk í 2♠ í merkingunni „góð hækkun í
laufi“. Bocchi passaði, norður breytti í
3♣, sem Madala doblaði til úttektar.
Bocchi sagði 3♠ og Madala hækkaði í
4♠.
Besta árangrinum í NS náðu Ísraels-
mennirnir Altshuler og Zeligman. Eftir
laufopnun norðurs og tígulinn á komu
austurs stökk Altshuler í 3G á suð-
urspilin! Hvöss og skemmtileg sögn,
sem dugði til að stinga upp í mótherj-
ana. Ekki nóg með það – vestur kom
með spaða og færði sagnhafa þannig ní-
unda slaginn á gljáfægðu silfurfati.
28. nóvember 1700
Núgildandi tímatal, nýi stíll,
tók gildi. Dagarnir frá 17. til
27. nóvember voru felldir nið-
ur það ár.
28. nóvember 1921
Rússneskur drengur, sem
Ólafur Friðriksson ritstjóri
hafði haft með sér til landsins
mánuði áður, var sendur utan.
Drengurinn var haldinn sjald-
gæfum augnsjúkdómi og kom
til harðra átaka þegar lög-
regla sótti hann til Ólafs.
28. nóvember 1936
Smárakvartettinn á Akureyri
var stofnaður. Hann starfaði í
þrjá áratugi og naut mikilla
vinsælda.
28. nóvember 1942
Kaupfélag Reykjavíkur og ná-
grennis opnaði svonefnda
sjálfskiptibúð á Vesturgötu 15
í Reykjavík. Þetta mun hafa
verið fyrsta kjörbúðin hér-
lendis. „Viðskiptavinirnir af-
greiða sig sjálfir,“ sagði Morg-
unblaðið og gat þess að þetta
fyrirkomulag væri mikið not-
að í Ameríku en lítið í Evrópu.
28. nóvember 1971
Bústaðakirkja í Reykjavík var
vígð. Þar með eignaðist
stærsti söfnuður landsins eig-
in kirkju. Mikið fjölmenni var
við vígsluathöfnina og fjöldi
gjafa barst kirkjunni.
28. nóvember 1998
Á annað þúsund manns sóttu
fund í Háskólabíói þar sem
mótmælt var áformum um
stórvirkjanir á hálendinu.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Sieglinde Elisabeth Björnsson Kahmann óperu-
söngkona fagnar áttatíu ára afmæli sínu í dag í
hæstu byggingu veraldar, Burj Khalifa-turninum í
Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Turninn er sagður 828 metra hár. Sieglinde og óp-
erusöngvarinn Sigurður Björnsson, eiginmaður
hennar eru stödd í Dubai hjá Guðfinnu dóttur sinni
og fjölskyldu hennar. „Meiningin er að fara í turn-
inn,“ segir Sieglinde. „Í eftirmiðdaginn förum við
alla leið upp í topp og fáum okkur þar glas af
kampavíni. Síðan færum við okkur svolítið neðar og
fáum okkur kaffi þar. Síðan færum við okkur enn
neðar og þar ætlum við að fá okkur kvöldverð.“
Sieglinde og Sigurður hafa verið úti í Dubai í hálfan mánuð og koma
heim í vikunni. Veðrið hefur leikið við þau þó að heimamönnum þyki nú
frekar kalt, en hitastigið er í kringum 25 gráðurnar.
Sieglinde hóf söngferil sinn við ríkisóperuna í Stuttgart árið 1956.
„Þar kynntumst við og svo kom ég til Íslands með Sigga árið 1977,“ seg-
ir Sieglinde. Þegar til Íslands var komið starfaði hún sem söngkennari,
tók þátt í óperusýningum hér heima og söng á tónleikum og sem ein-
söngvari víða um heim og í útvarpi og sjónvarpi. sigrunrosa@mbl.is
Sieglinde Kahmann 80 ára
Í hæstu byggingu veraldar
Söfnun
Nemendur í 5. AM í Setbergs-
skóla bjuggu til vinabönd sem
þau seldu í Firðinum og Set-
bergi í Hafnarfirði, og söfn-
uðu flöskum og dósum til
styrktar Krabbameinsfélag-
inu. Þau söfnuðu alls 20.000
kr. sem þau afhentu Krabba-
meinsfélaginu. Á myndinni
eru Laila Sæunn ásamt þeim,
Ísak, Gísla, Ara, Karólínu,
Koldísi, Hlyni og Ísaki.
Flóðogfjara
28. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 1.56 0,4 8.15 4,3 14.35 0,4 20.40 3,8 10.37 15.55
Ísafjörður 3.58 0,2 10.07 2,4 16.44 0,2 22.33 1,9 11.10 15.33
Siglufjörður 0.25 1,2 6.12 0,2 12.28 1,3 18.49 0,0 10.54 15.14
Djúpivogur 5.21 2,3 11.42 0,3 17.32 1,9 23.43 0,2 10.13 15.18
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú ert staðráðin(n) í að beita öllu
sem þú hefur aðgang að til þess að bæta líf
þitt og þinna nánustu.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það þarf stundum ekki löng kynni til
þess að verða fyrir miklum áhrifum af annarri
persónu. Vertu vakandi og taktu vel eftir því
sem fram fer í kringum þig.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Einhver gerir óhóflegar kröfur, eða
fer yfir strikið í óskum sínum og viðhorfum.
Ef eitthvað skortir á fé í veskinu er hagnýtt
ráð að ferðast í huganum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú gætir auðveldlega hneykslað fólk í
dag. Kepptu við sjálfa/n þig og þú munt nýta
alla þína hæfileika.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú hefur byr í seglin þessa stundina svo
gerðu eitthvað, sama hversu lítið, því árang-
urinn mun ekki láta á sér standa. En þú verð-
ur líka að vera viðbúin(n) veðrabrigðum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Sýndu sveigjanleika og vertu opin(n)
fyrir hugmyndum annarra. Þegar á reynir
kemur hið sanna eðli mannsins í ljós.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þér gætu boðist nýir möguleikar sem þú
ert ekki viss um hvernig þú getur notfært þér.
Leitaðu ráða hjá traustum aðila, því ekki er
allt gull sem glóir.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú vilt klára verkið, jafnvel þótt
það skemmi fyrir þér helgina. Eyddu ekki
tíma í slíkt hugarvíl því þú ert á réttri leið.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Spenna og ringulreið heima fyrir
knýr þig til að ræða opinskátt við ættingja og
vini. Fáðu útrás fyrir ferðalöngun þína án
þess að gleyma heimahögunum alveg.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er ekkert að því að verðlauna
sjálfan sig þegar maður hefur staðið sig vel
og veit af því. Bíddu með að kveða upp dóm
þangað til öll kurl eru komin til grafar.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Gerðu það upp við þig hvað það er
sem þú raunverulega vilt en hlustaðu ekki
bara á skoðanir annarra.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú hefur safnað að þér upplýsingum
og getur nú farið að vinna úr þeim. Veltu
vandlega fyrir þér þeim fjárfestingarkostum
sem freista þín.
Stjörnuspá
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. c3 Rf6 4. h3 g6 5.
Bd3 Bg7 6. Bc2 O-O 7. O-O b6 8. d4
Bb7 9. He1 Rfd7 10. Bg5 Rc6 11. Dd2
He8 12. Ra3 a6 13. Rc4 f6 14. Bh6 b5
15. Bxg7 Kxg7 16. Re3 Rb6 17. Rg4 e5
18. Dh6+ Kg8 19. d5 Rb8 20. Rh4 Bc8
Staðan kom upp í Evrópukeppni
taflfélaga sem lauk fyrir nokkru í Ro-
gaska Slatina í Slóveníu. Norbert Frie-
drich (2311) frá Þýskalandi hafði hvítt
gegn landa sínum Christoph Klamp
(2111). 21. Rxg6! Bxg4 22. hxg4 hxg6
23. Dxg6+ Kf8 24. He3 De7 25. Hh3
Df7 26. Df5 Ha7 27. g5 Kg8 28. gxf6
og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Flestir nota heimabanka. En hvaðmeð þann litla minnihluta sem
vill nota gömlu aðferðina, fara í bank-
ann og fá líka greiðsluseðla á pappír,
er hann réttlaus? Oft er um að ræða
aldrað fólk en líka þá sem kunna ekki
nógu vel á tölvur.
Fyrr í mánuðinum auglýsti
Reykjavíkurborg að frá næstu mán-
aðamótum yrðu ekki sendir út
greiðsluseðlar til „einstaklinga, 18-67
ára“. Og með sérstaklega feitu letri:
„Greiðendur geta þess í stað skoðað
rafræna greiðsluseðla í heimabönkum
sínum“. Og neðst, með minna letri,
stóð að þeir sem sérstaklega óskuðu
eftir að fá áfram greiðsluseðla gætu
„pantað þá á Rafrænni Reykjavík“. Á
netinu.
x x x
Kunningi Víkverja er einn af sér-vitringunum sem nota ekki
heimabanka, hann varð 67 ára fyrr á
árinu. Hann hringdi til að fá frekari
upplýsingar. Hvernig átti að skilja
þessa auglýsingu og orðalagið „18-67
ára“, spurði hann, fá þeir sem eru
orðnir 67 þá sjálfkrafa áfram seðla?
Eftir nokkurt japl og jaml og fuður
fékkst loks svar. Jú, það var víst
þannig.
x x x
Þetta hefði mátt segja skýrt í aug-lýsingunni. En Víkverja finnst
hún bera merki valdhroka. Í stað þess
að íbúum sé boðið að nota eingöngu
tölvu og heimabanka er þeim skipað
að biðja sérstaklega um greiðsluseðla.
Á ensku er talað um að bjóða eigi al-
menningi svonefnt „opt in“ í svona til-
fellum, þeir geti verið með ef þeir
vilji. Þetta finnst Jóni Gnarr og fé-
lögum óþarfa umstang. Fólk á bara
að gera eins og því er sagt.
x x x
Hugsunarhátturinn er líklega:Þetta er svo fámennur hópur,
einhverjir gamlingjar sem kjósa
hvort sem er ekki almennilega hipp
og kúl pólitíkusa. En Víkverji er
sanngjarn, eins og allir vita og veltir
líka fyrir sér hvort þetta sé bara hefð-
bundið hugsunarleysi hjá bjúrokröt-
um. Sem er aðeins skárra en ekki
mikið.
Víkverjiskrifar