Morgunblaðið - 28.11.2011, Page 32
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 332. DAGUR ÁRSINS 2011
Rithöfundurinn Ólafur Jóhann
Ólafsson segist ekki setja sig í sér-
stakar stellingar þegar hann skrifar
um konur. „Það er nú bara þannig að
þegar sögupersónur taka sér ból-
festu í kollinum á manni þá er lítið
við því að gera.“ »26
Ólafi fellur vel að
skrifa um konur
Leppalúði, jóla-
órói Styrktar-
félags lamaðra og
fatlaðra 2011,
prýðir Óslóartréð
á Austurvelli. Þeir
sem hrifnir eru af
óróanum fagna
því eflaust að
hann verður seld-
ur 5.-19. desember í verslunum allt
land en áhugasamir þurfa að hafa
hraðar hendur þar sem Leppalúði er
gerður í takmörkuðu upplagi.
Jólaóróinn Leppalúði
seldur um allt land
KK og Ellen héldu tvenna að-
ventutónleika í Landnámssetrinu á
laugardaginn. Sannkölluð jóla-
stemning sveif yfir en þar sem
uppselt var á seinni tónleikana og
margir þurftu frá að hverfa verða
haldnir auka-
tónleikar nk. föstu-
dag, 2. desember,
kl. 20. Það er um
að gera að bóka
tímanlega til
að tryggja
sér miða.
KK og Ellen bæta við
aðventutónleikum
Ólafur Stefánsson var liði
AG Köbenhavn ákaflega
dýrmætur í fyrsta leik sín-
um með því í Meistaradeild
Evrópu í handknattleik.
Hann skoraði 6 mörk og
lagði fjölmörg upp þegar AG
lagði Ademar León, 30:29,
og komst í efsta sætið í sín-
um riðli. Miðað við góða
byrjun Ólafs með AG ættu
áhyggjur af þátttöku hans
með landsliðinu á EM að
fara minnkandi. »1
Ólafur var AG dýr-
mætur gegn León
Arnór Þór Gunnarsson handknatt-
leiksmaður frá Akureyri á góðu
gengi að fagna með Bittenfeld í
þýsku B-deildinni. Hann er í hópi
markahæstu leikmanna deildarinnar
og hefur mikinn hug á því að spila í
efstu deild í Þýskalandi á næsta
keppnistímabili. »3
Arnór stefnir á efstu
deild í Þýskalandi
Jóhann Berg Guðmundsson er
ánægður með lífið hjá hollenska
toppliðinu AZ Alkmaar þó hann sé í
harðri baráttu um stöðu í liðinu. „Við
erum með mjög ungt lið en það hefur
allt gengið að óskum hingað til. Það
er erfitt að eiga fast sæti í þessu
liði,“ segir Jóhann Berg og telur eng-
ar líkur á að hann yfirgefi AZ á næst-
unni. »5
Allt hefur gengið að
óskum hingað til
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Fyrir tæplega fjórum mánuðum los-
uðu Pétur Ívarsson og eiginkona
hans sig við Pajero-jeppann og Mözd-
una, keyptu nýjan Volkswagen Pas-
sat-metanbíl og ákváðu að héðan í frá
myndu þau ekki nota bíl til að komast
til og frá vinnu. Tilraunin hefur gefist
vel og Pétri reiknast til að vikulegur
eldsneytiskostnaður fjölskyldunnar
sé nú á bilinu 1.500 -2.000 krónur.
„Maður þarf bara að taka þá
ákvörðun að bíllinn sé ekki til þess að
fara á í vinnuna,“ segir hann. Þau séu
ekkert hreintrúarfólk og fari á bíln-
um í vinnuna ef þörf krefji, s.s. ef
skutla þurfi börnunum um miðjan
dag.
Pétur er verslunarstjóri í Boss-
búðinni, vinsælli herrafataverslun í
Kringlunni, og þarf að sjálfsögðu að
vera snyrtilega til fara í vinnunni.
Hjólreiðarnar setja ekkert strik í
reikninginn að þessu leyti. „Ég hjóla
alltaf danskur í vinnuna,“ segir Pétur,
það er að segja í vinnufötunum, og út-
skýrir að úr því að Kaupmannahafn-
arbúar geti hjólað í vinnuna í vinnu-
fötunum hljóti hann að geta það líka.
Hann svitni lítið sem ekkert á leiðinni
og jafnvel þótt hann svitnaði skipti
það ekki máli – það komi engin lykt af
manni sem sé nýkominn úr morg-
unsturtunni og í hreinum fötum.
„Hjólið virkar ekki sem samgöngu-
tæki fyrir mig ef maður þarf að skipta
um föt.“
Á föstudögum og laugardögum
mætir Pétur alltaf í jakkafötum í
vinnuna. Ef mikið rignir segir hann
ekki hægt að hjóla því þá krumpist
fötin af raka undir regngallanum. Á
slíkum dögum tekur hann strætó.
Hann bætir við að fjórir starfsmenn
búðarinnar hjóli í vinnuna allt árið.
Þau hjónin eiga þrjá drengi, tvo á
unglingsaldri og einn í leikskóla. Pét-
ur segir að vissulega sé stundum
púsluspil að koma unglingunum á
íþróttaæfingar og -mót en það takist
með því að foreldrar í hverfinu skipt-
ist á að skutla. Sá yngsti, fimm ára,
fái bílfar í leikskólann ef veðrið sé
sérstaklega leiðinlegt en að öðrum
kosti hjóli drengurinn sjálfur. Þegar
Pétur er búinn að skutla drengnum á
leikskólann fer hann með bílinn heim
og hjólar síðan í vinnuna.
Pétri líkar hjólreiðarnar vel og
hann hjólaði raunar allt árið um kring
áður en strákarnir fæddust. Í starfi
sem krefjist samskipta við fólk allan
daginn sé gott að geta kúplað sig út á
hjólinu á leiðinni heim. Fjárhagslega
komi þetta líka vel út. „Ég er ekki
grænn að eðlisfari en það er bara búið
að ýta manni út í að vera umhverfis-
vænn.“
Hjólar danskur í vinnuna
Eldsneyti fyrir 1.500-2.000 kr. á viku
Gott að geta kúplað sig út á heimleið
Morgunblaðið/Ernir
Samgöngutæki Pétur hjólar til og frá vinnu, frá Seltjarnarnesi upp í
Kringlu, um 5,2 kílómetra leið. Skóhlífar hlífa skófatnaðinum.
Pétur er verslunarstjóri í Kringl-
unni og konan hans vinnur í mið-
bænum. Hann er um það bil 15
mínútur að hjóla frá heimili þeirra
í Suðurmýri á Seltjarnarnesi upp í
Kringlu, um 5,2 km leið. Hann er
því um það bil 9-10 mínútum fljót-
ari heldur en ef hann tekur strætó,
leið 13.
Kona Péturs er fljótari að hjóla í
vinnuna heldur en að keyra og
hringsóla svo um miðbæinn í leit
að bílastæði. Á vinnustað hennar
hefur verið gerður samgöngu-
samningur við starfsmenn sem
felst í því að þeir skuldbinda sig til
að koma til vinnu nokkra daga vik-
unnar með öðrum hætti en á bíl. Í
staðinn fá starfsmennirnir sam-
göngustyrk sem þeir geta t.d. nýtt
til að kaupa strætókort eða reið-
hjól.
Sleppur við bílastæðaleit
GERA SAMGÖNGUSAMNINGA VIÐ STARFSFÓLK
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. „Mamma, ég var að gifta mig“
2. Segir sig úr Samfylkingunni
3. Gary Speed er látinn
4. Í vetrarklæðum úr geimnum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Á þriðjudag Norðan 13-18 m/s og snjókoma eða él, en þurrt að
mestu suðvestantil. Frost 1 til 8 stig.
Á miðvikudag Norðlæg átt 5-13 m/s. Talsvert frost.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt sunnan- og suðaustanlands og
skúrir, en norðan 18-23 m/s um landið norðvestanvert í kvöld.
Frostlaust sunnantil.
VEÐURÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á