Morgunblaðið - 24.11.2011, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 24.11.2011, Qupperneq 2
2 finnur.is 24. nóvember 2011 Við SELJUM eignir! PANTAÐU FRÍTT SÖLUVERÐMAT! HRINGDU NÚNA 820 8080 Reynir Logi Ólafsson hdli i l l Fasteigna- og skipasali Sylvía G. Walthers Sölufulltrúi sylvia@remax.is Brynjólfur Þorkelsson Sölufulltrúi Ragnheiður Gröndal á sér stóran hóp aðdáenda enda þrusuflinkur listamað- ur. Tónlistarunnendur láta örugglega ekki nýja plötu Ragnheiðar framhjá sér fara en Astrocat Lullaby kom út fyrir skömmu. Efnt verður til ærlegs útgáfu- skralls á Norðurpólnum á Seltjarnarnesi 26. nóvember, en svo verður líka hægt að hlusta á Ragnheiði á Frostrósatónleikunum í byrjun des- ember. Finnur fór á trúnó við Ragnheiði og fékk að heyra nokkur leyndarmál, eins og um þrífætta heimiliskött- inn sem minnir á sjóræningja. 1. Ég sé illa og þekki sjaldn- ast fólk. 2. Ég er mjög vandlát á kaffið mitt og er alltaf að þjaka afgreiðslufólk með útskýringum til að panta drykk sem heitir víst „Flat White“ en fæst ekki á íslensk- um kaffihúsum. 3. Ég elska Beyoncé og hlusta á hana þegar ég fer út að hlaupa. 4. Ég les mik- ið af jóga-, búdda- og sjálfshjálparbók- menntum sem koma mér að litlu gagni. 5. Ég neyti engra matvæla ef farið er að styttast í „best fyrir“- dagsetninguna. 6. Ég á kött með þrjár lappir og skakkt bit. Hann er eins og sjó- ræningi. 7. Ég er mjög góð í að elda súpur og gera girnileg salöt. 8. Ég elska Phil Collins. 9. Ég er jólaskröggur og hef óbeit á smákökubakstri, jóla- skrauti og jólaundirbúningi. 10. Ég elska Þórberg Þórðarson. 11. Ég er mjög tapsár í spilum. 12. Ég vélrita mun hraðar en almennt gengur og gerist. 13. Ég var einu sinni á framboðslista fyrir Samfylkinguna. 14. Í partíum breiddi ég ávallt yf- ir gamalt sjónvarpstæki foreldra minna, sem þótti ekki boðlegur gripur á heimilum Garðbæ- inga. Sama gilti um kontra- bassann í stofunni, sem var tákngervingur fyrir lummuskap. 15. Ég hef hringt út fyrir Gallup og selt snyrti- vörur í Hag- kaup. ai@mbl.is 2 6 3 15 SÖNGKONAN RAGNHEIÐUR GRÖNDAL 15 HLUTIR SEM ÞÚ VISSIR EKKI UM MIG Morgunblaðið/Einar Falur Það hefur aldrei vafist fyrir Íslendingum að slá tappann úr þegar maður hittir mann. Því fleiri sem koma saman þeim mun meiri gleði og þar af leiðir að landinn fer alla jafna á feiknalegum kostum á svokölluðum útihátíðum. Nokkrum há- punkti hvað þetta varðar var náð haustið 1995, en þá var hin sögulega, ef ekki goðsagnakennda, tónleikahátíð Uxi ’95 haldin við Kirkjubæj- arklaustur. Fór miklum sögum af skefjalausu svalli, áfengis- og eiturlyfjaneyslu viðstaddra og siðavandir létu í ljósi miklar áhyggjur af æsku landsins. Liam Howlett, aðalsprauta danssveit- arinnar Prodigy, sagðist í sjónvarpsviðtali trauðla hafa séð annað eins sukk, og kölluðu Prodigy-liðar þó ekki allt ömmu sína þegar djamm var annars vegar. Eins og sjá má á myndinni var félagi hans, Keith Flint, í sínum hefðbundna ham á tónleikum þeirra á Uxa. Flestir komust þó klakklaust frá öllu saman. Tímavélin notar ljósmyndir úr myndasafni mbl.is. Ofsagaman á Uxa Tímavélin „Besta gjöfin verður auðvitað að koma heim og hitta fjölskylduna. Síðustu daga hef ég verið á þvælingi í Þýskalandi vegna ýmissa fjárfestingarverkefna sem eru í deiglunni – en ég kem heim á afmælinu, sem er á fimmtudag,“ segir Eyþór Arnalds, athafnamaður og bæjarfulltrúi í Árborg. Hann hefur búið eystra frá árinu 2006 og unir hag sínum vel þar. Kona hans er Dagmar Una Ólafsdóttir jógakennari og eiga þau tvo stráka sem eru tveggja og þriggja ára og bera þau stór nöfn; Jón Starkaður og Þjóðrekur Hrafn. „Mér hefur alltaf fallið best að hafa mörg járn í eld- inum. Það er líka stundum sagt að eftir því sem ann- ríkið er meira þeim mun rýmri tíma hafi maður ein- faldlega sakir þess að þá er skipulagið betra. Sjálfum finnst mér gott að taka fundi til dæmis vegna bæj- armálanna í Árborg snemma á morgnana og snúa mér svo að öðru sem bíður,“ segir Eyþór sem kveðst aldrei hafa efnt til stórhátíðar á afmælisdegi sínum enda sé best og ljúfast á þeim degi að vera með fjöl- skyldunni og þeim sem honum séu kærastir. Eyþór Arnalds er 47 ára í dag Morgunblaðið/Hjálmar Heimflug til Íslands á afmælisdegi Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannes- sen Umsjón Jón Agnar Ólason jonagnar @mbl.is Bílar Sigurður Bogi Sævarsson sigurdurbogi@ mbl.is Blaðamenn Ásgeir Ingvarsson, Finnur Thorlacius, Elín Albertsdóttir. Auglýsingar finnur@mbl.is, sími 5691107 Prentun Landsprent ehf. Bókin Yrsa Sigurðardóttir hellti köldu vatni milli skinns og hörunds hjá þorra þjóð- arinnar með síðustu bók sinni og nú er sú nýjasta, Brakið, komin í verslanir. Lestu ef þú þorir! Maturinn Það er vart til betri morgunverður en réttur og sléttur hafragraut- ur. Mein- hollur, hægt að bragðbæta með hverju sem vera skal og kostar lítið. Dægradvölin Það er töff að tefla og allir geta haft gam- an af hugaríþróttinni skák. Metsölubókin í ár er líka um skák og einvígi aldarinnar á 40 ára afmæli á næsta ári, svo ekki er seinna vænna að hefja taflið og æfa sig. Platan Loksins er komin ný jólaplata frá systk- inunum KK og Ellen, en heil sex ár eru síðan þau sendu frá sér plötuna Jólin eru að koma. Sú nýja nefnist ein- faldlega Jólin og er einfald- lega ómissandi. Menningin Í tengslum við útgáfu Listasögu Íslands stendur yfir yfirlitssýningin ÞÁ&NÚ í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg. Framvinda íslenskrar listar frá of- anverðri 19. öld til dagsins í dag, gjörið svo vel. MEÐMÆLI VIKUNNAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.