Morgunblaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 4
4 finnur.is 24. nóvember 2011 Logi Geirsson situr ekki með hendur í skauti. Hann lætur nú til sín taka hjá tískufyrirtækinu Cintamani og er að auki á þön- um milli landshluta til að peppa landann upp með fyrirlestrum, og svo má ekki gleyma há- skólanámi, íþróttunum og barnauppeldi. Finnur fékk Loga til að setjast niður og segja frá vikunni: Mánudagur „Vaknaði 06:00 og fór í ræktina, ekki bara til að mæta heldur taka á því. Mættur á Reykjavíkurflugvöll kl. 09:00. Flug á Bíldudal, sat við hliðina á Jóni Kr. „Ég er frjáls eins og fuglinn“. Fór í sightseeing í sveitinni og endaði á Patreks- firði. Hélt þar fyrirlesturinn minn, Það fæðist enginn at- vinnumaður. Fullur bíósalur og svaka skemmtun. Tók með mér gítarinn og æfði mig að spila langt frameftir kvöldi.“ Þriðjudagur „Vaknaði 07:00, gaf litla stráknum að borða og rúllaði honum til dagmömmu. Þetta er yfirleitt eini tími dags- ins sem ég sé hann. Vinna frá 9:00 til 17:00. Síðan þjálfa ég frá 17:00-19:00, bæði handbolta hjá FH og smá- einkaþjálfun með því en ég er útskrifaður ÍAK- einkaþjálfari frá Keili. Þriðjudaga sest ég inn í tónlistarherbergið heima og tek nokkur grip á gítarinn og reyni eitthvað að syngja. Ekki veitir af þegar maður er að fara að gefa út lag.“ Miðvikudagur „Vaknaði 05:00, fór í bílskúrinn að æfa, sippa í 30 mín., fæ mér að borða og legg mig svo í klukkustund. Þéttur dagur þar sem ég nýti mér að læra fram á kvöld. Ég er á öðru ári í viðskiptafræði á Bifröst.“ Fimmtudagur „Morgunmatur fal- lega fólksins, egg og hafragrautur með vínberjum út á, og haldið til vinnu. Mjög stór ákvörðun tekin og fór mikið í að vera í sam- bandi við lögfræðinginn minn varðandi nokkur mál sem eru í gangi í Þýskalandi. Keypti mér Mac-tölvu sem ég er alsæll með, æfingar langt fram á kvöld. VIKA Í LÍFI LOGA GEIRSSONAR HANDBOLTAMANNS Pulsur og blöðrur með litla kút í Kolaportinu Föstudagur „Tek þennan dag hátíðlega, býð kon- unni að borða með mér í hádeginu og reyni að kúpla mig út úr daglegu mynstri. Þetta er eini dagurinn sem ég kemst að sækja litla ef ég kemst þá. Það er highlight að ná í hann, sjá hann brosa til pabba og finna tilgang í lífinu.“ Laugardagur „Fór með litla í 101 og fengum okkur pulsu, sem er uppá- haldið hans, keyptum blöðru og kíktum í Kolaportið. Er að reyna að létta á konunni og gefa henni smá- tíma til að læra en hún er í næring- arfræði í HÍ.“ Sunnudagur „Sef út, hitti fjölskylduna báð- um megin og borðum saman hádegismat. Seinnipartinn fjór- hjólið og krossarann út í sveit. Hvergi betra að búa en í Njarðvík þegar maður ætl- ar að njóta náttúru með mótor undir sér.“ ai@mbl.is ’T́ek nokkur grip á gítarinn og reyni eitthvað að syngja. Ekki veitir af þegar maður er að fara að gefa út lag. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Ný heimildamynd um Charles og Ray Eames Snilld af Eames-u tagi Eames-húsið, sem hjónin hönnuðu og byggðu í Kaliforníu. Sígild hönnun. Það var gaman saman hjá Eames-hjónunum og afraksturinn eftir því. Hjónin Charles og Ray Ea- mes voru í hópi frægustu og farsælustu iðnhönnuða 20. aldarinnar og liggja fjölmörg sígild verk eftir þau. Í september síðast- liðnum var frumsýnd ný heimildarmynd um þau hjónin og nefnist hún The Architect and the Painter og mun vera fyrsta mynd- in af sínu tagi frá því þau hjónin féllu frá, en Charles lést árið 1978 og Ray kona hans tíu árum síðar. Charles Ormond Eames og Bernice Alexandra Kai- ser, kölluð Ray, hittust ár- ið 1940, giftu sig ári síðar og mynduðu eitt magnað- asta tvíeyki síðustu aldar í heimi hönnunar. Flestir þekkja stólana frá Eames Office enda eru hægindastóllinn ásamt skemli og legubekkurinn „La Chaise“ sígildir og eftirsóttir hönnunargripir, ekki síður en stofustáss. Þá voru þau hjónin óhemju afkastamikil í ljósmyndun sem og kvik- myndagerð og kemur mikið af því merkilega efni fram í myndinni, ásamt því sem talað er við einstaklinga sem áttu því láni að fagna að starfa með þeim Charles og Ray. jonagnar@mbl.is Leikur og starf var eitt og hið sama hjá Charles og Ray Getty Getty Leikkonan Elizabeth Taylor var þekkt fyrir ást sína á fallegu skarti, ekki síst demöntum. Dagana 13.-15. desember mun uppboðshús Christie’s í New York bjóða upp skartgripi úr eigu Taylor heitinnar og er bú- ist við að fyrir þá fáist ekki minna en 3,5 milljarðar ís- lenskra króna enda margir grip- irnir einstakir í sinni röð. Þar á meðal er hinn víðfrægi Krupp- demantur, 33.19 karöt, í hring sem Richard Burton, þáverandi eiginmaður Taylor, gaf henni ár- ið 1968. Kannski einhverjir finni þar heppilega jólagjöf – af dýr- ari gerðinni? Eðalsteinar Elizabeth Taylor Ódauð- leikinn á uppboði ’F́lug á Bíldudal. Fór í sightseeing í sveitinni og endaði á Patreksfirði. Axel Axelsson löggiltur fasteignasali Seldu eignina þína innan 60 daga Ef eignin selst ekki innan 60 daga þá færð þú 50% afslátt af sölulaunum Nánari upplýsingar veitir Lárus í síma 823-5050 HAFÐU SAMBAND STRAX! Lárus Óskarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.