Morgunblaðið - 24.11.2011, Side 8
Jónína Leósdóttir, rithöfundur og eiginkona
Jóhönnu Sigurðardóttur, hefur verið græn-
metisæta til margra ára. Hún er með of-
næmi fyrir fiski og segist ekki geta hugsað
sér að borða dýr.
J
ónína var að senda frá sér unglingabókina Upp á líf og dauða
þar sem hún tekur á viðkvæmu málefni. Hún segist hafa geng-
ið með hugmyndina lengi en það tók tíma að finna rétta flöt-
inn. Ekki hefur áður verið fjallað um þunglyndi og sjálfsvígs-
hugleiðingar í unglingabókum. „Það er vandmeðfarið að fjalla um
þetta efni Ég prófaði mörg uppköst áður en ég fann réttu að-
ferðina,“ segir hún. „Ég vildi hafa bókina þannig að skilaboðin
kæmust alla leið,“ segir Jónína ennfremur en þetta er
fimmta unglingabókin hennar en hún hefur gefið út tíu bæk-
ur.
Þessa dagana er nóg að gera hjá Jónínu í upplestri úr
bókinni. „Ég las fyrir níu hundruð skólabörn í sl.viku.
Þetta er því nokkurs konar vertíð.“
Innkaup fyrir heimilið eru alfarið í höndum Jónínu.
„Jóhanna er ekki grænmet-
isæta en hún er afskaplega sátt
við að borða grænmetisrétti,
meira að segja á að-
fangadagskvöld. Ég
kaupi oft fisk handa
henni en mér finnst
erfiðara að kaupa
kjöt þótt ég geri það
af og til. Matreiðsla
þessara fæðuteg-
unda er hins vegar
ekki á minni
könnu. Mér
finnst nógu erf-
itt að meðhöndla egg,“ segir Jónína.
„Í gærkvöldi borðaði ég bara gul-
rætur og hummus. Oft er ég svo
spennt í því sem ég er að
skrifa eða lesa að ég vil
ekki eyða tíma í elda-
mennsku. Jóhanna hefur
líka gott af því að slappa
aðeins af við matseldina og
hugsa um eitthvað annað en póli-
tík. Systir mín ræktar kartöflur og hef-
ur verið dugleg að færa okkur afraksturinn.
Tómatar eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Mér
finnst allir tómatar góðir, hvort sem þeir koma
beint af plöntunni eða eru í sósum eða heitum
réttum. Núna held ég mest upp á litlu plómukon-
fekttómatana frá Akri og fer létt með að klára
eina öskju á dag, alein.
Ekki er verra að fá basilíku með tómötunum. Síðastliðið sumar fékk
ég basilíkuræktunaræði, var á tímabili með yfir 40 basilíkupotta í stof-
unni og borðstofunni. Enda var mikið gert af pestói. Besta lykt sem ég
get hugsað mér er af basilíku og mig dreymir um að fá að koma inn í
gróðurhús fullt af slíkum plöntum. Held það hljóti að vera eins og að
ganga inn í himnaríki,“ segir Jónína sem ræktar graslauk, mintu, kórí-
ander og hvítlauk á svölunum. „Hvítlauksuppskeran var um 15 litlir
laukar en ég stefni á aukna ræktun næsta sumar.“
Óstjórnlega gott te
Jónína segist helst versla í Krónunni en fiskinn kaupir hún á Vega-
mótum. „Ég fer í Hagkaup til að fá ferskt grænmeti. Því miður finnst
mér grænmetið ekki nægilega ferskt í búðum og hef rekið mig á
skemmda vöru í grænmetisborði. Spergilkál er oft orðið gult
á litinn, kúrbítur myglaður og eplin skemmd. Þetta er ekki
nægilega gott þar sem alltaf er verið að brýna fyrir fólki
að borða meira af ávöxtum og grænmeti,“ segir Jón-
ína.
Hún segist drekka mikið af vatni og er alltaf með
könnu af kranavatni í ísskápnum. „Ég er síður hrifin
af sódavatni og drekk ekki gos. Var þó eitt sinn háð
Diet-Coke og fékk fráhvarfseinkenni þegar ég hætti
að drekka það í lítravís. Þegar te- og kaffidrykkja er
annars vegar nær sérviskan hæstu hæðum og
þessir drykkir eru mér eiginlega mikilvægari en
matur. Te finnst mér svo óstjórnlega gott að þeg-
ar ég sofna er ég farin að hlakka til fyrstu tek-
rúsarinnar morguninn eftir,“ segir Jónína.
„Ég laga alltaf te í katli og nota svart
laufte, helst Assam, Ceylon eða Kenya.
Því miður fæst Kenya-te ekki á Íslandi
svo ættingjar og vinir skyggnast um
eftir því fyrir mig í útlöndum. Ég
panta það líka stundum frá dásam-
legri tebúð í Brussel, Univers du
Thé. Svo þetta er algjört sparite.“
Heimasíða tebúðarinnar er
http://www.universduthe.be.
Jónína hefur borðað sama
morgunmatinn í mörg ár; skál
léttri AB-mjólk og Cheerios.
„Hádegismatur er hafra-
grautur með trönuberjum og/
eða goji-berjum og léttmjólk út
á. Það sem eftir er dagsins borða
ég mest grænmeti og ávexti. Þykkar
grænmetissúpur eru með því besta sem ég
fæ. Þá sýð ég bara tilfallandi grænmeti í
grænmetissoði, krydda vel og mauka með
töfrasprota. Ég fer líka reglulega á græn-
metisveitingastaðinn Garðinn við Klapp-
arstíg til að fá mér súpuskál og verð aldrei
fyrir vonbrigðum,“ segir Jónína sem gefur
lesendum uppskrift að baunasúpu með
mintu.
elal@simnet.is
Jónína Leósdóttir rithöfundur er sérvitur varðandi mat og drykk
Með fjörutíu potta
af basil í stofunni
Morgunblaðið/Kristinn
8 finnur.is 24. nóvember 2011
Græn baunasúpa
með mintu
Ólífuolía
rauðlaukur, niðurskorinn
hvítlauksrif, skorin smátt
grænmetissoð (t.d. bara
grænmetisteningur leystur
upp í vatni)
frosnar grænar baunir
fersk mintulauf
sjávarsalt og nýmalaður
svartur pipar
matargerðarrjómi
(magn hvers hráefnis fer eft-
ir smekk, m.a. á því hversu
þykk súpan á að vera)
Laukur og hvítlaukur mýkt-
ur í olíu í potti með þykkum
botni. Grænmetissoðinu hellt
út í pottinn og suðan látin
koma upp. Þá er baununum
bætt út í, ásamt sjávarsalti
og vænum skammti af ný-
möluðum svörtum pipar.
Þetta er látið malla í smá-
stund og rifnum mintulaufum
bætt út í.
Potturinn tekinn af hellunni
og súpan maukuð með töfra-
sprota. Einnig má mauka
hana í matvinnsluvél og hella
henni svo aftur í pottinn. Síð-
an er súpan hituð örlítið á
nýjan leik og matargerð-
arjóma bætt við eftir smekk.
Húmmus
1 dós kjúklingabaunir (hella
vökvanum af og geyma
hann)
2-5 hvítlauksrif
1 msk. ólífuolía (helst dökk-
græn, extra virgin)
1-2 msk. tahini-mauk (ljóst)
sítrónusafi, salt og pipar
(eftir smekk)
Allt sett í matvinnsluvél og
blandað saman. Gott að nota
vökvann af kjúklingabaun-
unum til að þynna húmmus-
maukið þar til æskilegri áferð
er náð. Kælt í a.m.k. 1 klst í
ísskáp.
Má t.d. nota ofan á brauð,
sem ídýfu eða með salati.
Gera má grænt húmmus
með því að bæta basil-
íkulaufum við þessa upp-
skrift. Einnig má bæta sól-
þurrkuðum tómötum (úr
krukku) við uppskriftina en
þá er best að sleppa ólífu-
olíunni þar sem tómatarnir
eru í olíulegi.
Sífellt fjölgar þeim sem hafa mikið dálæti á sushi. Ef
fólk vill gera vel við sig heima og sleppa við að elda er
upplagt að fá sér sushi. Í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði er
boðið upp á sushi-bakka frá veitingahúsinu Osushi á
fimmtudögum, föstudögum og laugardögum. Hægt er
að velja um bakka með 8, 12 eða 20 bitum. Átta bitar
kosta 990 krónur, tólf bitar 1490 krónur og 20 bitar
2850 kr. sem eru góð kaup.
elal@simnet.is
Flott tilboð í Fjarðarkaupum
Sushi-veisla heima
Biscotti eru vinsælar smákökur á
Ítalíu. Þær eru tvíbakaðar og
ákaflega bragðgóðar. Sumir hafa
súkkulaði í uppskriftinni eða
þurrkuð trönuber en það er hægt
að breyta henni eftir smekk hvers
og eins. Þessi uppskrift er auð-
veld.
120 g möndlur
100 g heslihnetur
150 g smjör
250 g sykur
400 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
rifinn börkur af 1 appelsínu
3 stór egg
Setjið möndlur og hnetur í ofn-
skúffu og bakið við 200°C í 15
mínútur. Kælið.
Blandið saman smjöri, sykri,
hveiti, appelsínuberki og lyftidufti
í hrærivélarskál. Hærið eitt egg í
einu með blöndunni. Að lokum er
möndlum og hnetum blandað
saman við.
Mótið tvær rúllur úr deiginu,
um það bil 2 cm þykkar. Geymið í
kæliskáp í 30 mínútur.
Leggið deigrúllurnar á bök-
unarpappír og þrýstið aðeins á
þær með lófunum. Penslið með
eggjahvítu. Bakið við 180°C í um
það bil 25 mínútur.
Takið úr ofninum og skerið kök-
urnar niður í 1½ cm sneiðar á ská
á meðan þær eru enn heitar.
Leggið sneiðarnar á bökunarplötu
og bakið þær áfram í 10 mínútur.
Kælið.
elal@simnet.is
Vinsælar smákökur sem bragðast vel
Ítalskt
biscotti
Chorizo er spænsk pylsa sem er sérlega ljúf-
feng til að bragðbæta pasta, kjúklingarétti,
súpur eða pottrétti. Chorizo er til sem álegg
ofan á brauð en einnig sem mjó kryddpylsa.
Slík pylsa fæst hjá Pylsumeistaranum við
Laugalæk og er einstaklega bragðgóð. Papp-
írinn er tekinn utan af pylsunni og síðan er hún
söxuð smátt og sett á pönnu, t.d. með lauk og
hvítlauk. Þegar laukurinn er farinn að brúnast
og rauð olía úr pylsunni lekur um pönnuna má
skella soðnu spagettí saman við og þá er dýr-
indis, ódýr pastaréttur tilbúinn. Ef menn vilja
gera vel við sig má bæta rjóma á pönnuna,
kirsuberjatómötum og jafnvel bita af gráðosti
en það er þá gert áður en pastað er sett út í.
Pylsan kostar 3900 kr. kílóið en það þarf að-
eins 80-100 grömm í pastaveislu.
elal@simnet.is
Spænsk pylsa og sérlega ljúffeng
Chorizo bætir bragðið
Innkaupa-
karfan
Létt AB-mjólk
léttmjólk
hafrar
trönuber
rúsínur
goji-ber
fiskur