Morgunblaðið - 24.11.2011, Page 11
24. nóvember 2011 finnur.is 11
Húsgagnatískan tekur hægum
breytingum en þó eru nýjar
áherslur áberandi. Úlfar Finsen hjá
versluninni Módern er nýkominn
heim af sýningu í Nagold í Þýska-
landi þar sem hágæðamerki eins
og Rolf Benz sýndi það nýjasta.
Hann segir að línurnar í hús-
gagnatískunni séu mýkri en oft áð-
ur og fólk sækist eftir persónulegri
stíl. Á sýningunni úti voru flestöll
rými teppalögð sem segir bara eitt,
teppin eru að koma inn aftur.
„Í okkar gæðaflokki eru hús-
gögnin sjálf kannski ekki að breyt-
ast svo mikið milli ára. Nýju sóf-
arnir og stólarnir státa af mýkri
línum en oft áður. Í þessum gæða-
og verðflokki vill fólk kaupa eitt-
hvað varanlegt, bæði gæðalega og
eitthvað sem verður ennþá í
„tísku“ eftir 5-20 ár“ segir Úlfar.
Hann segir að tískustraumar
dagsins í dag kalli á lifandi textíl og
svolitlar andstæður. „Það er mikið
verið að blanda saman misjafnlega
grófum efnum og það er sköpuð
meiri dýpt í rými.
„Það er verið að blanda saman
gömlu og nýju þannig að samsetn-
ingar verða einstakar og ólíkar hver
á sinn hátt. Þetta gerir allt per-
sónulegra og skemmtilegra sem
við finnum líka hér heima. Ekki allt
klippt og skorið eins og áður. Meira
casual.“
Úlfar segir að aukahlutirnir séu í
forgrunni í dag. „Sófar eru oftast
fullir af púðum í misjöfnum stærð-
um og áferðum. Púðar með
munstri eða tvítóna/marglitir eru
inni. Náttúruleg hráefni og handa-
vinna eru mikils metin. Í dag er
mikil áhersla lögð á sögu fram-
leiðsluaðferða og bakgrunn hvers
hlutar. Teppi eru í öllum rýmum og
endurunnin persnesk teppi eru
ríkjandi,“ segir hann.
Spurður um litapallettuna segir
hann að hún sé náttúruleg í bland
við brúna tóna og föla liti.
„Í Mílanó í ár voru sandlitað,
leðjugrár og fílagrár ekki ólíkt árinu
á undan. Í litunum voru djúpbláir
tónar ásamt fölum grænum eða
hermannagrænum,“ segir Úlfar.
Mjúkt gólfteppi myndar mótvægi við stílhrein húsgögn.
Hlýlegir litir og gólfteppi eru það sem koma skal.
Mjúkar línur og gólf-
teppi inn á heimilin
Sjáið umfjöllun
og fleiri myndir
á mbl.is
Verðmöt
Pendo.is
TILBOÐSDAGAR
Gerið gæða- og verðsamanburð
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 - Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 – laugardaga 12.00 - 16.00
12 mánaðavaxtalausargreiðslur
Sjá nánar verð og
ný tilboð á www.svefn.is
20%
AFSLÁTTUR
Lök, hlífðardýnur, sængurver
og valdar vörur.
VALHÖLL, dýnur, á tilboði,
80 og 90 cm með botni og fótum,
áður á 69.900, nú aðeins 59.900.
10.000 kr. vörukaup
fylgja öllum
heilsurúmum.
(Gildir ekki með öðrum tilboðum)
ÚRVAL STILLANLEGRA
HEILSURÚMA
2x90x200
Nú aðeins 399.900 með okkar bestu
IQ-CARE heilsudýnum