Morgunblaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 21
24. nóvember 2011 finnur.is 21
FORSTJÓRI
Stjórn Bankasýslu ríkisins auglýsir laust til umsóknar starf forstjóra Bankasýslu ríkisins. Forstjóri skal uppfylla hæfisskilyrði 2. og 3. mgr. 6 gr. laga nr. 88/2009.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Stjórnun og rekstur
• Stefnumótun og vinna vegna sölu á eignarhlutum ríkisins
í fjármálafyrirtækjum
• Samskipti við fjármálafyrirtæki sem ríkið á eignarhlut í
• Samningagerð
• Eftirlit með framkvæmd eigandastefnu ríkisins
• Samskipti við fjölmiðla
Kjararáð ákvarðar starfskjör forstjóra.
Nánari upplýsingar um hlutverk forstjóra er að finna í starfsreglum stjórnar, þær má finna á heimasíðu stofnunarinnar www.bankasysla.is,
en auk þess veitir Guðrún Ragnarsdóttir, stjórnarformaður Bankasýslunnar (gudrun@bankasysla.is) frekari upplýsingar um starfið.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að senda ítarlega ferilskrá, ásamt kynningarbréfi þar sem hæfni umsækjanda er rökstudd,
á netfangið umsoknir@bankasysla.is. Umsóknarfrestur er til og með 27. nóvember nk.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi
• Sérþekking á banka- og fjármálum
• Stjórnunarreynsla
• Leiðtogahæfileikar
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar
• Frumkvæði
• Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku
Bankasýsla ríkisins er ríkisstofnun með sjálfstæða stjórn sem heyrir undir fjármálaráðherra. Bankasýsla ríkisins fer
með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum, stofnuninni er í starfsemi sinni ætlað að leggja áherslu á endurreisn
og uppbyggingu öflugs innlends fjármálamarkaðar og stuðla að virkri og eðlilegri samkeppni á þeim markaði,
tryggja gagnsæi í ákvarðanatöku varðandi þátttöku ríkisins í fjármálastarfsemi og tryggja virka upplýsingamiðlun
til almennings. Stofnunin starfar á grundvelli laga nr. 88/2009. Bankasýslan skal hafa lokið störfum eigi síðar en
5 árum eftir að hún er sett á fót. Nánari upplýsingar má finna á vef Bankasýslunnar www.bankasysla.is
Borgartún 3
105 Reykjavík
Sími 550 1700
www.bankasysla.is
Ím
yn
d
u
n
ar
af
l/
B
R
/
FB
R
11
11