Morgunblaðið - 24.11.2011, Síða 23
24. nóvember 2011 finnur.is 23
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Starfsmaður á sölusviði
Upplýsingar um starfið verða
eingöngu veittar hjá Hagvangi.
Upplýsingar veitir:
Inga Steinunn Arnardóttir
inga@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 28. nóvember nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is.
Við leitum að kraftmiklum starfsmanni til að vera sölumönnum innan handar við
ýmis verkefni, s.s. gagnaöflun og samskipti við birgja og erlenda kaupendur.
Hvort sem þú ert nýútskrifaður háskólanemi eða hefur reynslu af sambærilegu
starfi þá er þetta spennandi tækifæri hjá öflugu alþjóðlegu fyrirtæki.
Hæfniskröfur
• Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
• Brennandi áhugi á sjávarútvegi
• Góð almenn tölvukunnátta
• Góð kunnátta á Excel og Navision er kostur
• Góð enskukunnátta
Iceland Seafood er alþjóðlegt sölu- og markaðsfyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu á sjávarafurðum.
Síðan 1932 höfum við verið leiðandi afl í sölu- og markaðssetningu íslenskra sjávarafurða um allan
heim. Á hverju ári dreifum við íslenskum afurðum til yfir 50 landa í gegnum þétt dreifinet okkar.
Höfuðstöðvar ISI eru í Reykjavík og í dag starfa hjá okkur 270 manns í 8 löndum víða um heim.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu íslenska ríkisins en lýtur sérstakri stjórn. Seðlabankinn
fer með stjórn peningamála á Íslandi og er meginmarkmið hennar stöðugleiki í verðlagsmálum. Seðla-
bankinn skal enn fremur sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem
að varðveita gjaldeyrisvarasjóð og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi, þ.m.t. greiðslukerfi í landinu
og við útlönd.
Laust starf hjá Seðlabanka Íslands
Helstu verkefni:
• Viðkomandi annast og ber ábyrgð á innri endurskoðun
bankans og tryggir að hún sé í samræmi við góða
endurskoðunarvenju
• Hann framkvæmir innra eftirlit með starfsemi
bankans og gætir þess að hún sé í samræmi við reglur og
fyrirmæli
• Hann framkvæmir og hefur umsjón með úttektum á
eftirlitsskyldum þáttum í rekstri bankans og
fjárhagsendurskoðun hans
• Hann veitir ráðgjöf um áhættu, áhættumat, stjórnarhætti,
eftirlitsumhverfi og eftirlitskerfi bankans
• Hann gefur bankaráði skýrslur um einstaka þætti í
starfsemi bankans
Hæfniskröfur:
• Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði eða
sambærilegum greinum
• Umsækjandi þarf að hafa víðtæka reynslu af innri
endurskoðun
• Umsækjandi þarf að hafa mikla greiningarhæfileika,
hafa tileinkað sér sjálfstæð og öguð vinnubrögð, geta
sýnt frumkvæði og fagmennsku í starfi og hafa hæfni í
mannlegum samskiptum
• Æskilegt er að umsækjandi hafi lokið framhaldsnámi í
endurskoðun
• Æskilegt er að umsækjandi búi yfir haldgóðri þekkingu á
fjármálakerfinu og bankastarfsemi, hafi reynslu af
störfum innan banka eða fjármálafyrirtækis
Upplýsingar um starfið veitir Jón Þ. Sigurgeirsson, ritari bankaráðs í síma 569 9600, en umsóknir skulu sendar
Láru V. Júlíusdóttur formanni bankaráðs Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík eigi síðar en 4. desember nk.
Innri endurskoðandi
Seðlabanki Íslands auglýsir eftir aðalendurskoðanda. Aðalendurskoðandi heyrir undir bankaráð og er ráðinn af því samkvæmt
lögum nr. 36, 22 maí 2001. Aðalendurskoðandi annast innri endurskoðun bankans og innra eftirlit með starfsemi hans.
Raðauglýsingar
Til sölu
Leikfangaverslun
og netverslun
Til sölu rekstur leikfangaverslunar og netversl-
unar, hvoru tveggja í rekstri. Eigin innflutningur
að stórum hluta. Góður tími framundan.
Lysthafendur sendi tölvupóst í netfangið
jbutgafa@simnet.is, merkt:
,,Leikfangaverslun - 5246”.
Ýmislegt
ØNSKER DERE
FORANDRING I LIVET?
Da er dere velkommen til Nordfjorden
i Gildeskål kommune i Nordland, Norge.
Ta kontakt med oss!
Johan Martin 0047 970 68 091.
Runar 0047 975 83 766.
Monika 0047 936 92 248.
www.nordfjorden.no
Félagslíf
Landsst. 6011112419 VII I.O.O.F. 11 192112408 E.T.2.
0*.
Í september sl. efndi Nike til skó-
uppboðs á eBay. Býsna merkilegir
skór voru þar í boði en Nike fram-
leiddi 1.500 pör sérstaklega fyrir
uppboðið og eru skórnir nákvæm
eftirlíking á Nike-skónum sem
leikarinn Michael J. Fox skartaði í
myndinni Back To The Future 2,
sem gerð var 1989. Allur ágóði af
uppboðinu rann til rannsókna á
Parkinson-sjúkdómnum, en Fox
þjáist af sjúkdómnum sem kunn-
ugt er. Óhætt er að segja að áhugi
hafi verið fyrir skópörunum sem
boðin voru upp, en alls söfnuðust
5,7 milljónir dala á uppboðinu,
sem svara til þess að hvert skópar
hafi selst að jafnaði á um
450.000 íslenskra króna.
Myndin á að gerast árið 2015
svo kannski má vona að skórnir
fari þá í almenna framleiðslu.
jonagnar@mbl.is
2015 árgerðin af Nike-skóm
Uppboð á skóm
framtíðarinnar
Fox reimar á sig
furðuskóna árið
1989
Veglegir skór
og verðmiðinn
eftir því. Parið
kostaði um
3.800 dali.