Morgunblaðið - 24.11.2011, Page 26
bílar
Nýr BMW 3 Series fær góða dóma í
bílablaðinu WhatsCar? Er sagður
kröftugur, rúmgóður, vel tækjum
búinn og góður sem forstjórabíll.
Þá sé hann góður á sveitavegum og
líði vel á hraðbrautum.
Stöðugar verðhækkanir á bensíni munu leiða til breyttra neysluhátta og minni bíla, að því er rannsókn
fyrir breska bílauppboðsfyrirtækið British Car Auctions (BCA) hefur leitt í ljós. Þar segir að af rúmlega
4.000 manns sem svöruðu sagði rúmlega helmingur þeirra að vaxandi eldsneytiskostnaður myndi
knýja þá til að skipta yfir í minni og sparneytnari bíla, eða til breyttrar – og minnkandi – bílnotkunar.
Um fimmtungur aðspurðra segist hafa þurft að takast á við það þegar lítrinn komst í 1,30 pund og
þegar verðið fer í 1,50 pund verður hópurinn enn stærri sem annars vegar þarf þá að kaupa sér minni
bíl eða aka minna. Í breska þinginu hefur verið tekist á um skattlagningu á eldsneyti og útlit er fyrir að
niðurstaðan verði enn frekari verðhækkun. Því þykir stefna í að samsetning breska einkabílaflotans
taki talsverðum breytingum á næstu misserum; stærri bílar og bensínhákar víki fyrir minni og hag-
kvæmari bílum. Könnun BCA leiddi í ljós, að fjölskyldum með tvo
heimilisbíla hefur fækkað um 5% undanfarna 12 mánuði.
Niðurstöður þessar eru svipaðar og raunin er hér á landi.
Þannig reyndist umferð í október sl. vera 7% minni en í
sama mánuði í fyrra skv. sextán teljurum Vegagerð-
arinnar á fjölförnum stöðum víða á landinu. Mest
dróst umferð saman á Holtavörðuheiði, eða um
12%. Þá er sala eyðslugrennri bíla að aukast,
það lítið sem bílar seljast.
agas@mbl.is
Bensínverðið bítur, skv. breskri rannsókn
Kaupa smábíla og aka minna
F
jármálafyrirtæki hafa á síð-
ustu mánuðum end-
urreiknað 57 þúsund
samninga vegna bílalána
og fært þá niður um alls 38,5 ma.
kr. Þetta kemur fram í pistli Grein-
ingar Íslandsbanka sem birtur er á
vefsetri bankans. Í kjölfar niður-
stöðu dómstóla um að svokölluð
gengislán væru óheimil urðu
bankar og fjármögnunarfyrirtæki
að stokka spilin upp og færa þessi
lán niður til samræmis við ákvæði
laga. Lunginn af niðurfærslum
fjármálakerfisins er vegna endur-
útreiknings lánanna ólögmætu –
alls 96 ma. kr. eða 55% af því sem
útistandandi var.
Barátta við vindmyllur
„Niðurfærsla lánanna í sam-
ræmi við dómsniðurstöðu þýðir
að fólk er komið í miklu betri
stöðu en áður. Við fengum stund-
um hingað inn á borð til okkar mál
fólks sem hafði slegið kannski 90
til 100% erlend lán til kaupa á
heldur dýrari bílum og gengisfall
krónunnar 2008 leiddi til þess að
höfuðstóll í verðmæti bílsins varð
neikvæður. Nú hefur dæmið aftur
snúist við,“ segir Runólfur.
Til viðmiðunar þessu nefnir
Runólfur samning um myntkörfu-
lán sem gerður var um mitt ár
2007. Á haustdögum 2010 voru
undir skv. samningi þessum 3,6
millj. Þegar lánið var hins vegar
endurreiknað í kjölfar dóms
Hæstaréttar fór það niður í 700
þúsund krónur.
Hrapa ekki að niðurstöðum
„Þarna munar 2,9 milljónum
króna og það má segja að eftir
hrun hafi allar afborganir af bíl
með þessum ólögmætum lánum
verið eins og barátta við vindmyll-
ur því mánaðarlegar greiðslur
hækkuðu um tugi þúsunda.“
Runólfur segir nú búið að dæma
um lögmæti hefðbundinna geng-
islána og samninga um
fjármögnunarleigu. Þó þurfi að
bíða enn um hríð eftir dómum um
hvort svonefndir rekstrarleigu-
samningar hafi verið lögum sam-
kvæmt. Sjálfur segist hann að
óreyndu telja samningana ekki
hafa verið í samræmi við bókstaf-
inn og bendir þar á að orðalag
slíkra samninga sé um margt líkt
því sem gerist í samningum um
hefðbundin lán. Mikilvægt sé þó
að hrapa ekki að niðurstöðum
strax.
Sif Björk Birgisdóttir lögg. bíla-
sali hjá Bílaprís segir niðurfærslu
bílalána greiða mjög fyrir við-
skiptum enda séu þau nú orðin
talsverð. Oft séu síðustu mánuðir
árs frekar slakir í sölu og minna að
gera á bílasölum. Nú sé raunin
önnur. Til skamms tíma hafi verið
nokkuð um að á skrá hafi komið
bílar sem metnir voru á kannski
1,5 millj. kr. en áhvílandi á þeim
voru 2,5 millj. kr. Nú sé að mestu
búið að jafna þessi dæmi og leysa
úr öðrum flækjumálum.
„Það voru í nokkrum mæli þess-
ir dæmigerðu fjölskyldubílar sem
voru yfirveðsettir og nú er með
skuldbreytingum hægt að selja þá
aftur; bíla sem kosta um tvær
milljónir en eftir slíkum er alltaf
talsverð eftirspurn,“ segir Sif.
sbs@mbl.is
Maðurinn á myntkörfubílnum í miklu betri stöðu, segir framkvæmdastjóri FÍB
Nú hefur
dæmið
snúist við
Morgunblaðið/Kristinn
Bílasala er aftur komin á skrið og umferðin er í eina átt. Ólögleg myntkörfulán niðurfærð og flækjumál leyst.
Runólfur
Ólafsson
Sif Björk
Birgisdóttir