Morgunblaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 4
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Hálfleiðinlegt er að sjá einn hlýj-
asta nóvember allra tíma lenda í
þessu, en hann verður samt ofar-
lega á hitalistanum,“ skrifaði
Trausti Jónsson veðurfræðingur á
bloggsíðu sína í gær, síðasta dag
nóvembermánaðar. Eftir hlýindi
fyrstu tvær vikur mánaðarins
kólnaði er á leið og fyrir nokkru
varð ljóst að hitamet yrðu ekki
slegin.
Mánuðurinn seig nokkuð á hlý-
indalistanum og endaði í níunda
sæti miðað við hita í Stykkishólmi
klukkan níu að morgni alla daga
mánaðarins. Í efsta sæti er nóv-
ember ársins 1945, en þá var ein-
staklega hlýtt. Meðaltalið sem
miðað er við í töflunni sýnir dag-
legan meðalhita í nóvember í 166
ár, það er frá upphafi mælinga í
Stykkishólmi árið 1846 og til og
með gærdeginum. Samkvæmt
upplýsingum Trausta munar litlu á
fáeinum árum í meðalhita mán-
aðarins miðað við allan sólarhring-
inn og núverandi nóvember. Í
Reykjavík verður mánuðurinn í 8.
eða 9. sæti.
Eftir kalda nótt má búast við
snjókomu og síðan éljum á vest-
anverðu landinu í dag og síðar
einnig austantil. Einhver snjó-
koma verður einnig á föstudag.
Þorsteinn Jónsson, veðurfræð-
ingur á Veðurstofunni, segir að í
næstu viku megi búast við norð-
lægri átt eða breytilegri og að kalt
verði í veðri. Kalt loft norðan frá
heimskautasvæðunum sé yfir land-
inu og engar lægðir sunnan úr höf-
um virðast á leiðinni til að hrekja
það í burtu.
Tveggja stafa mínustölur
Ef langtímaveðurspá norsku
veðurstofunnar er skoðuð sést að í
næstu viku er spáð um 10 stiga
frosti í Reykjavík á mánudag og
þriðjudag, og ekki sjást rauðar töl-
ur í spánni fyrr en á föstudag. Á
Akureyri verður enn kaldara og
spáð um 17 stiga frosti á mánudag.
Enn kaldara verður víða inn til
landsins eins og hjá nágrönnum
þeirra í Bárðardal og við Mývatn
en þar verða nánast samfellt
tveggja stafa bláar frosttölur alla
næstu viku með 22 stigum síðdegis
á mánudag og þriðjudag.
Í gær var mestur hiti á landinu
ein gráða í Hvammi og kaldast
17,2 stiga frost við Mývatn og 18,3
stiga frost á Þingvöllum.
Ljósmynd/Ásta Hersteinsdóttir
Kaldir krakkar á Kiðafelli
Það var kalt í Kiðafelli í Bárðardal í gær, en þar er leikskólinn Bárðargil
starfræktur. Hitamælirinn sagði á hádegi að úti væri 10 stiga frost og
krakkarnir fengu aðeins að leika sér í snjónum í stutta stund. Ásta Her-
steinsdóttir, starfsmaður í Bárðargili, sagði að nóg væri þó við að vera og
á þriðjudag var jólaföndur með foreldrum krakkanna. Venjulega eru sex
börn úr Bárðardal á leikskólanum, þriggja til fimm ára, en í gær voru
þau Tinna, Rakel, Daníel, Arndís og Katrín mætt í leikskólann. Spáð er
kólnandi veðri og ekki víst að mikið verði um útileiki á næstunni.
Nóvember nartaði í toppinn
Endaði í níunda sæti í 166 ára sögu veðurmælinga í Stykkishólmi
Kalt loft norðan frá heimskautasvæðunum og kuldar í næstu viku
Hiti í Stykkishólmi kl. 9 að morgni
12°
10°
8°
6°
4°
2°
0°
-2°
-4°
-6°
Dagur
2 4 6 8 10 12 14 16 18 20 22 24 26 28 30
Í nóvember árin 1945 og 2011 (°C)
Nóvember 1945 Nóvember 2011
Meðalhiti í nóvember
frá 1945
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2011
Ákveðið var í gær að hefja strax at-
hugun og undirbúning að smíði
nýrrar ferju sem tæki við af Vest-
mannaeyjaferjunni Herjólfi enda
ljóst að verulegar frátafir verði við
siglingar í Landeyjahöfn á meðan
siglt er á núverandi ferju.
Þetta var niðurstaða fundar full-
trúa innanríkisráðuneytis, Sigl-
ingastofnunar, Vegagerðar og Vest-
mannaeyjabæjar sem ræddu um
siglingar milli lands og Eyja á fundi í
gær. Leitað er framtíðarlausnar á
þessum siglingum til að tryggja
öruggar ferðir milli Landeyjahafnar
og Vestmannaeyja.
Að sögn samgönguráðuneytisins
verða athugaðar heppilegar leiðir til
að fjármagna verkefnið. Stefnt sé að
því að ný ferja geti hafið siglingar
ekki síðar en árið 2015 og fyrr ef
undirbúningur og smíði á nýju skipi
leyfi.
Þá var einnig á fundinum rætt um
hvernig tryggja megi betur umferð
um Landeyjahöfn þar til ný ferja
verður tekin í notkun. Bráðabirgða-
lausnir eru einnig áfram til skoð-
unar.
Farið var yfir vandamál við dýpk-
un og þá kosti sem eru í stöðunni
varðandi siglingar í vetur.
Ný Eyja-
ferja taki við
fyrir 2015
Eyjaferja Herjólfur í Landeyjahöfn.
Mikið tjón varð þegar eldur kom upp í húsnæði Hótels
Eyja í Vestmannaeyjum um klukkan þrjú í fyrrinótt en
eldurinn kviknaði út frá þurrkara í þvottahúsi hússins.
Bókaverslunin Eymundsson var einnig með starfsemi í
húsnæðinu og er talið að tjón fyrirtækisins vegna brun-
ans sé um 40 milljónir króna en verslunin hafði nýverið
verið gerð upp að innan m.a. með nýjum innréttingum.
Tjón Hótels Eyja er að sama skapi mjög mikið að sögn
Þrastar Johnsen, eiganda þess, en fyrirtækið var að hans
sögn ekki með innbústryggingu.
Allt tiltækt slökkvilið var kallað á staðinn eftir að vart
varð við eldinn og tóku um 30 manns þátt í að ráða niður-
lögum hans, sem gekk greiðlega.
Leyndist á milli klæðningarlaga
Eldurinn tók sig síðan upp aftur um sjöleytið í gær-
morgun og var í kjölfarið slökktur á um klukkutíma en
slökkviliðsmenn voru á vakt við húsið í kjölfar brunans
um nóttina. Að sögn Ragnars Þórs Baldvinssonar,
slökkviliðsstjóra í Vestmannaeyjum, má rekja það til
þess að í gömlum húsum eins og þessu sé oft búið að
klæða veggi og loft og eldurinn hafi í þessu tilfelli leynst á
milli klæðningarlaga.
Húsið er mjög illa farið að sögn Ragnars og er eldri
hluti þess hugsanlega ónýtur. Enginn var staddur á hót-
elinu, sem er íbúðahótel, þegar eldurinn kom upp en fjór-
ir gestir höfðu á leigu íbúðir í því. hjorturjg@mbl.is
Tjónið talið hlaupa á
tugum milljóna króna
Eldur kom tvisvar sinnum upp í húsnæði Hótels Eyja
Morgunblaðið/Júlíus G. Ingason
Eldur Frá slökkvistarfinu aðfaranótt miðvikudagsins.
ILVA Korputorgi, sími 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
ILVA Korputorgi, 112 Reykjavík
sími 522 4500 www.ILVA.is
25% AF ÖLLUM
SÓFUM OG SÓFASETTUM
1. - 4. DESEMBER
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, for-
maður fjárlaganefndar, segir að
væntanlega verði framlög til nýs
fangelsis á Hólmsheiði sett inn þeg-
ar fjárlagafrumvarpið kemur til 3.
umræðu. Hugsanlega verði þau þó
bundin því skilyrði að þar verði reist
minna fangelsi og ráðist verði í upp-
byggingu á Litla-Hrauni.
„Við ákváðum að geyma þetta til
þriðju umræðu því við vildum skoða
málið betur,“ sagði Sigríður Ingi-
björg í gærkvöldi. „Við teljum að
það sé brýnt að byggja nýtt fangelsi
en við teljum að þetta sé of stórt, það
eigi ekki að vera vistunarfangelsi á
tveimur stöðum.“
Minna fang-
elsi skilyrði?