Morgunblaðið - 01.12.2011, Side 18

Morgunblaðið - 01.12.2011, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2011 SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Alþjóðlegi alnæmisdagurinn er í dag, 1. desem- ber. Talið er að um 34 milljónir manns í heim- inum lifi nú með HIV eða alnæmi, veiran fer ekki í manngreinarálit. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin sendi nýverið frá sér áætlun til ársins 2015 sem kallast „Náum núllpunkti“ og er markmiðið að ná því að hafa upprætt fordóma gagnvart smit- uðum, að engin dauðsföll verði að völdum al- næmis það ár og engin nýsmit af völdum HIV greinist. Þetta þykja ekki svo fjarlæg markmið enda hefur nýsmituðum farið fækkandi í heim- inum. Þann árangur má m.a. þakka stórbættum lyfjameðferðum sem fela í sér að HIV-jákvæðir einstaklingar sem svara meðferð það vel að þeir eru ekki með mælanlega veiru eru í lítilli sem engri hættu á því að smita aðra. Staðan er samt ekki svo góð á Íslandi. Fjöldi þeirra sem hafa greinst HIV-jákvæðir í ár og í fyrra hafa aldrei verið fleiri, 24 greindust í fyrra og 20 hafa greinst það sem af er þessu ári. Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri HIV Ísland, segir þrátt fyrir það hægt að ná núll- punkti ef viðhafðar eru réttar aðgerðir. „Með því að greina HIV-jákvæða einstaklinga sem fyrst og koma þeim í lyfjameðferð og jafnfram auka fræðslu meðal almennings er kannski hægt að ná núllpunkti einn daginn.“ Skortir samráð og stefnumótun Af þeim tuttugu sem eru greindir HIV- jákvæðir það sem af er þessu ári hér á landi eru þrettán sprautufíklar og sjö gagnkynhneigðir einstaklingar, enginn samkynhneigður hefur greinst á árinu. Einar segir þó viðhorfið enn vera í þá átt að HIV sé sjúkdómur samkyn- hneigðra og fíkla. „Sá hópur sem þarf fræðslu og er í mestri áhættunni er þetta hefðbundna fólk, af því að það heldur að þetta sé sjúkdómur sprautufíkla og homma. Það koma hingað ungir menn og konur gapandi af undrun yfir því að vera komin með HIV. Við hjá HIV-samtökunum förum með fræðslu í grunn- og framhaldsskóla en sá hópur sem þarf einnig að ná til með beinni fræðslu er á vinnumarkaðinum, hinn almenni graði og lífsglaði Íslendingur,“ segir Einar og setur þunga í orð sín. Hann hefur enda upplifað ýmislegt. Tuttugu og fimm ár eru síðan hann greindist HIV-jákvæður, meðal þeirra fyrstu á Íslandi. Hann var á stofnfundi HIV Ísland al- næmissamtakanna fyrir 23 árum og hefur verið framkvæmdastjóri þeirra síðustu fjögur ár. Andvaraleysi okkar allra í samfélaginu og ekki síst stjórnvalda er eitt af því sem má kenna um að ekki hefur náðst betur utan um HIV- útbreiðsluna hér á landi að sögn Einars. „Sjálf- boðaliðar frá HIV Ísland hafa verið duglegir við að fara í grunn- og framhaldsskóla og okkur hef- ur tekist að fjármagna það fræðslustarf með gjafafé einkafyrirtækja. Landlæknisembættið hefur einnig styrkt fræðslustarfið, m.a. staðið undir kostnaði við útgáfu fræðsluefnis um kyn- sjúkdóma sem við dreifum til unglinganna. Ann- ars eru ekki lagðir nokkrir fjármundir að ráði frá hinu opinbera í fræðslu gegn HIV.“ Einar hefur mótaðar skoðanir á því hvernig hann vill sjá fræðslumálin þróast. „Það skortir samráð um aðgerðir og stefnumótun í þessum málaflokki. Það hefur því miður oft gætt ákveð- innar þröngsýni þegar kemur að aðgerðum gegn HIV hér á landi. Það þurfa allir að vinna saman, heilbrigðisyfirvöld og líka Sótt- varnaráð, aðrar stofnanir, fangelsis- og skóla- yfirvöld, meðferðar- og félagasamtök. Það er ekki nóg að segja að það þurfi að auka aðgengi að einnota sprautum og smokkum ef því er síðan ekkert fylgt eftir. Hingað til hefur ekki tekist að fá yfirvöld til að greiða niður verð á smokkum. Það kostar samfélagið um 160 milljónir króna að meðaltali að standa undir meðferð fyrir hvern HIV-jákvæðan ein- stakling. Að leggja smápening í smokka ætti því að reiknast sem gríðarlega þjóðhagslega hagkvæmt. Við erum að mörgu leyti ekki verr á vegi stödd varðandi viðhorf og heilbrigð- isþjónustu HIV-jákvæðs fólks en nágranna- þjóðirnar en því miður er því ábótavant að yf- irvöld hérlendis stuðli nægjanlega að forvörnum og styðji við heilbrigða og mál- efnilega fræðslu um þennan sjúkdóm,“ segir Einar. Bjartari tímar framundan Á fyrstu dögum HIV og alnæmis var skelfi- legur dauði myndin sem flestir fengu af sjúk- dómnum. Margir voru dauðhræddir við að sitja í sama herbergi og HIV-jákvætt fólk, hvað þá að snerta það. Einar segir mikið hafa dregið úr ótta fólks en umræðan sé samt ekki nægj- anlega opin og eðlileg. „Fáir HIV-smitaðir hafa komið út með sínar aðstæður. Fólk óttast við- horfin og mismunun og höfnun í kjölfarið, t.d. á vinnumarkaðinum. Því miður hafa alltof marg- ir HIV-jákvæðir orðið fyrir því að þeim er sýnd vanvirðing og mismunað á einhvern hátt.“ Einari finnst að fólk eigi óhrætt að geta sagt frá því að það sé með HIV ef það kýs það. „Það er erfitt að burðast með mikil leyndarmál í gegnum lífið. En þessi sjúkdómur er á margan hátt svo skrítinn, hefur áhrif á tilfinningar og siðferðiskennd fólks og er auk þess kyn- sjúkdómur, fólk hleypur ekkert á torg og aug- lýsir það frekar en aðra sjúkdóma.“ Húsnæði HIV Ísland er við Hverfisgötu og þar er Einar við fjóra daga í viku eftir hádegi. Þangað getur fólk leitað og fengið ráðgjöf og stuðning. „Við erum með reglubundið hópa- starf fyrir HIV-jákvæða og aðstandendur. Svo bjóðum við upp á viðtal við félagsráðgjafa og komum á sambandi við annað HIV-jákvætt fólk í svipuðum aðstæðum. Félagsstarfið hér snýst um að vera til staðar. Það var skelfilegt áður fyrr þegar fólk var að veikjast og deyja en það er liðin tíð sem betur fer. Það er engin bar- lómur yfir þessu félagi eða uppgjöf. Fólk er að feta sig í tilverunni og læra að lifa með þessum sjúkdómi en til þess þarf stuðning og skilning. Þökk sé góðum lyfjum og vonandi betri og heil- brigðari viðhorfum eru nýir og betri tímar fyrir fólk með HIV og alla aðra.“ Ættum að geta náð núllpunkti  Alþjóðlegi alnæmisdagurinn er í dag  Tíðni nýgreindra með HIV hefur minnkað á heimsvísu en aukist á Íslandi  Forvarnarstarf og fræðslu skortir að mati framkvæmdastjóra HIV Ísland Morgunblaðið/Ómar Framfarir Einar Þór Jónsson er framkvæmdastjóri HIV Ísland. Samtökin hafa aðsetur við Hverfisgötu 69 og þar verður opið hús í dag, milli kl. 16 og 19, í tilefni dagsins. Morgunblaðið/Sigurgeir S. 1.800.000 manns létust af völdum alnæmis í heiminum árið 2010, en voru 2,2 milljónir árið 2000. 60 milljónir manna, rúmlega, hafa smitast af HIV-veirunni síðan hún var greind á níunda áratugnum. 277 hafa greinst HIV-jákvæðir á Íslandi síðan árið 1983 og fram til loka nóvember 2011. 102 þeirra eru gagnkynhneigðir og 105 samkynhneigðir. 39 hafa látist af völdum alnæmis hér á landi. Þar af einn á þessu ári. ‹ STAÐAN › » Ný HIV-smit og dauðsföll tengdAIDS í milljónum 4,0 3,5 3,0 2,5 2,0 1,5 1,0 0,5 0 19 90 19 92 19 94 19 96 19 98 20 00 20 02 20 04 20 06 20 08 20 10 Ný HIV-smit Dauðsföll tengd AIDS Fjöldi tilkynntra einstaklinga með HIV smit á Íslandi frá 1990 til 2011 25 20 15 10 5 0 1990 2010 Alþjóðlegi alnæmisdagurinn | Dagur rauða borðans

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.