Morgunblaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2011
Þann 4. janúar kemur út
glæsilegt sérblað um
menntun, skóla og námskeið
sem mun fylgja
Morgunblaðinu þann dag
MEÐAL EFNIS:
Háskólanám.
Verklegt nám og iðnnám.
Endurmenntun.
Símenntun.
Listanám.
Sérhæft nám.
Námsráðgjöf og góð ráð við námið.
Kennsluefni.
Tómstundanámskeið
og almenn námskeið.
Nám erlendis.
Lánamöguleikar til náms.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni.
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, miðvikudaginn 21. des.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is
Sími: 569-1105
Í blaðinu verður fjallað um menntun og
þá fjölbreyttu flóru sem í boði er fyrir þá
sem vilja auðga líf sitt og möguleika með
því að afla sér nýrrar þekkingar og stefa
því á nám og námskeiða.
Skólar & námskeið
SÉRBLAÐ
Skólar & námske
ið
Reuters
Lögreglumenn í Los Angeles handtaka einn af liðs-
mönnum Occupy-hreyfingarinnar við ráðhúsið í gær en
mótmælahreyfingin hefur í nær tvo mánuði verið með
tjaldbúðir í borginni. Hún hefur mótmælt efnalegu mis-
rétti og gróðahyggju. Lögregla í Philadelphia fjar-
lægði einnig mótmælendur við ráðhúsið í gær.
Handtóku mótmælendur í Los Angeles
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Stjórnvöld í Tyrklandi hyggjast
beita efnahagslegum refsiaðgerðum
gegn stjórn Bashars al-Assads Sýr-
landsforseta, öll fjármálasamskipti
við sýrlenska banka verða stöðvuð
og eignir Sýrlandsstjórnar í Tyrk-
landi frystar, að sögn BBC.
Áður hafði Arababandalagið grip-
ið til svipaðra aðgerða vegna hrotta-
skapar Sýrlandsstjórnar í baráttu
hennar við stjórnarandstæðinga.
Talið er að um 3.500 manns hafi fallið
í átökunum og hundruð barna hafa
verið drepin, sum hafa jafnvel verið
pyntuð, að sögn fulltrúa Sameinuðu
þjóðanna.
Tyrkir höfðu þegar sett vopna-
sölubann á Sýrland og hafa hótað að
stöðva raforkusölu til landsins. Í lið-
inni viku skutu sýrlenskir hermenn á
lest af rútum með tyrkneskum ferða-
mönnum. Utanríkisráðherra Tyrk-
lands, Ahmet Davutoglu, sagði í gær
að komið væri „að leiðarlokum“ hjá
ríkisstjórn Assads og hefur ríkis-
stjórnin varað við ferðalögum til
grannlandsins.
Tyrkland refsar Assad
Stjórnin varar landsmenn við ferðalögum til Sýrlands
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Sólarhringsverkfall allt að tveggja
milljóna opinberra starfsmanna í
Bretlandi olli miklum truflunum í
gær en talið er að um víðtækustu
vinnustöðvun í landinu í þrjá áratugi
hafi verið að ræða. Mikil röskun varð
á starfsemi skóla, einnig sjúkrahúsa,
flugvalla, hafna og stjórnarskrif-
stofa. Mörg þúsund mótmælafundir
voru um allt Bretland.
Stéttarfélög opinberra starfs-
manna vilja með þessum aðgerðum
mótmæla áformum samsteypu-
stjórnar Íhaldsflokksins og Frjáls-
lyndra demókrata um að hækka eft-
irlaunaaldur og láta félagsmenn í
stéttarfélögum greiða meira í lífeyr-
issjóði. Stjórnvöld hyggjast enn-
fremur skera niður meira en 600
þúsund opinber störf eða mun fleiri
en áður hafði verið rætt um.
Spáð er aðeins 0,7% hagvexti í
Bretlandi á þessu ári og enn minni á
næsta ári, að sögn The New York
Times. Er þetta mun minni vöxtur
en menn höfðu áður gert sér vonir
um. Róttækar aðhaldsaðgerðir
stjórnvalda eru farnar að bíta og
ljóst að stéttarfélögin ætla að beita
sér hart gegn þeim með stuðningi
Verkamannaflokksins á þingi. Leið-
togar hans segja að allt of hart sé
gengið fram, niðurskurðurinn muni
einfaldlega auka enn á vandann með
meira atvinnuleysi.
David Cameron forsætisráðherra
segir að um mikið ábyrgðarleysi sé
að ræða hjá stéttarfélögunum á tím-
um þegar efnahagsmál eru í mikilli
óvissu, m.a. vegna vanda evrunnar.
Verkfall lam-
ar Bretland
Opinberir starfs-
menn mótmæla
niðurskurði
Reuters
Mótmæli Opinberir starfsmenn
með kröfuspjöld í Belfast í gær.
Víðtæk áhrif
» Fresta varð um 60 þúsund
brýnum aðgerðum á sjúkra-
húsum vegna verkfallsins, að
sögn yfirmanna sjúkrahúsa.
» Verkfallsverðir fylgdust
vandlega með umferð við
stærstu vinnustaði.
» Talið er að liðlega helmingur
allra ríkisskóla í Englandi og á
Norður-Írlandi hafi verið lok-
aður í gær.
Geimvísindamenn stefna á ferðalög
manna til Mars og jafnvel enn
lengra. En mörg vandamál þarf að
leysa og eitt er þau áhrif sem þyngd-
arleysi í langan tíma hefur á líffærin,
einkum vöðva og bein. Einnig geta
ferðalangarnir orðið fyrir mikilli
geislavirkni. Og menn vilja forðast
að nota fólk sem tilraunadýr þótt
ýmislegt megi læra af því hvernig
mönnum farnast í styttri ferðum.
Sagt er frá málinu í tímaritinu
Interface sem Konunglega vísinda-
félagið gefur út. Nýlega sendi teymi
breskra vísindamanna undir stjórn
Nathaniel Szewczyk um 4.000 hring-
orma af tegundinni C. elegans til
dvalar í alþjóðlegu geimstöðinni,
ISS. „Þótt það virðist furðulegt hef-
ur geimferð að mörgu leyti svipuð
líffræðileg áhrif á geimfara og
orma,“ segir Szewczyk.
Mörg þúsund gen í orminum, sem
er aðeins um millimetri að lengd,
eiga sér samsvörun í manninum.
Fylgst var með þróun mála hjá 12
kynslóðum ormanna með fjarbúnaði
í þrjá mánuði. Í ljós kom að dýrin
undu sér vel, þau tímguðust jafn vel
og á jörðu niðri. kjon@mbl.is
Tilraunastöð Geimfarar sinna viðhaldi utan á alþjóðlegu geimstöðinni, ISS,
sem í rúman áratug hefur sveimað umhverfis jörðu í nær 400 km hæð.
Hringormar í
langri geimferð
Áhrifin af þyngdarleysi rannsökuð
Vill landnám í geimnum
» Eðlisfræðingurinn Stephen
Hawking vill að mannkynið
nemi land í geimnum. Hann
efast um að tegundin muni lifa
í þúsund ár í viðbót án þess að
dreifa sér út fyrir jörðina.
» Ef ekki tekst að finna ráð til
að koma í veg fyrir að vöðvar
og bein rýrni í nokkurra ára
geimferð verður erfitt að fá
fólk til að gefa kost á sér.