SunnudagsMogginn - 11.12.2011, Side 10
10 11. desember 2011
09:15 Vakin af herbergisfélaganum
Hönnu Guðrúnu sem er alltaf vöknuð á
undan símavakningunni, það er annað en
ég sem er með svefnhjarta fyrir allan
peninginn. :-)
09:30 Morgunmatur á hótelinu. Á yf-
irleitt erfitt með að borða á morgnana en
fékk mér morgunkorn og fullt af vítam-
ínum.
10:30 Lagt af stað á æfingu með rútu.
11:00 Æfing í keppnishöllinni. Frjáls
æfing sem hentaði „gömlu konunni“ vel.
Ég skokkaði smá og teygði ásamt nokkr-
um öðrum á meðan aðrar æfðu meira.
Mikilvægt að spara orkuna fyrir átök
kvöldsins. :-)
13:00 Hádegismatur. Maturinn er alls
ekki búinn að vera neitt til að hrópa
húrra fyrir og var sérstaklega slæmur
þetta hádegi að mínu mati. Endaði með
að borða helling af hvítum brauðbollum
og smjöri ásamt einhverjum litlum hrís-
grjónabollum. Er búin að vera dugleg að
halda mér gangandi á næringar- og pró-
teindufti ásamt orkustykkjum.
13:45 Fundur þar sem farið er yfir
leik andstæðinga ásamt því að skoða vel
okkur sjálfar. Hvað við getum gert betur í
taktík og í varnarleik. Góður fundur og
allir einbeittir á verkefni kvöldsins.
14:30-17:00 Frjáls tími sem á að
nýta í hvíld og sjúkraþjálfun. Ég fór í
nudd til Elínar sjúkraþjálfara og tók svo
góða hvíld með snoozinn minn. Verð að
leggja mig á leikdegi:-)
17:00 Léttur matur, fékk mér smá
spaghetti og ávexti.
17:30 Vídeó. Peppvídeó sem Jói
ásamt fleiri snillingum leggur mikla
vinnu í. Þetta vídeó var algjör snilld þar
sem búið var að finna myndir af öllum
nánustu og myndband með dætrum
mínum í landsliðsbúningnum syngjandi
lagið okkar „Hetjurnar“ eftir Guðmund
Marísson. Auk þess sem Sveppi krull fór á
kostum í myndbandinu. Svo er auðvitað
búið að klippa inn fullt af flottum mörk-
um og flottum „action“-myndum.
17:45 Lagt af stað í leik.
18:00 Allir gera sig klára og stemn-
ingin frábær inni í klefa, upphitun sem
var mjög sérstök vegna rafmagnsleysis og
hituðum við markmennina okkar upp í
ljósleysinu. Svo var farið inn í klefa þar
sem spakmæli dagsins eru lesin upp (for-
eldrarnir sem eru með hérna úti láta
okkur hafa spakmæli fyrir hvern leik),
þjöppum okkur enn betur saman og tök-
um hringinn. Allir klárir í slaginn …
19:30 Leikur á móti Þjóðverjum sem
við urðum að fá stig úr til að eiga mögu-
leika á að komast áfram í 16 liða úrslit og
ná markmiðum okkar. Frábær leikur eft-
ir erfiða byrjun en varð enn sætara fyrir
vikið. Þessi leikur verður lengi í minnum
hafður hjá okkur leikmönnum enda
fögnuðum við eins og heimsmeistarar í
annað sinn á nokkrum
dögum. :-)
22:00 Kvöldmatur á hótelinu.
Svo var bara að reyna að ná sér niður
eftir stórkostlegan sigur en það reyndist
nú ekki svo auðvelt. Sofnaði ekki fyrr en
að verða 4 um nóttina eftir að hafa horft á
þætti og lesið til að reyna að þreytast.
En sem betur fer hvíldardagur fram-
undan og ekki mikið mál að bæta upp
svefnleysið. :-)
Dagur í lífi Hrafnhildar Skúladóttur, landsliðskonu í handknattleik
Hitað upp í ljósleysinu
Stund milli stríða í rútuferð.
Systurnar Hrafnhildur og
Dagný Skúladætur.
Höllin sem glímt verður í á Ólympíuleikunum í Lundúnum næsta
sumar var formlega tekin í notkun í vikunni. Af því tilefni brugðu
þessar valkyrjur á leik fyrir gesti, þeirra á meðal ljósmyndara Reu-
ters-fréttastofunnar. Ef marka má þessa tilburði er mikil veisla
framundan í glímukeppni þessara eftirsóttustu leika í heimi.
Veröldin
Reuters
Engin vettlingatök
ADVANCED TECHNOLOGY IN SLEEPING
DUXIANA www.dux iana.is H Á Þ R Ó A Ð U R S V E F N B Ú N A Ð U R ÁRMÚLA 10 108 REYKJAVÍK S:568 9950
Xleep koddinn aðlagast fullkomlega
sérhverjum sofandi manni, án tillits til
lögunar, þyngdar eða stellingar.
DUX XLEEP
Nú aðeins kr 11.980
Verð áður kr.19.980
D R A U M A K O D D I N N
Hinn einstaki DUX Xleep koddi styður
við höfuðið og hálsinn með virkum
fjaðrastuðningi og þægindum dúnsins.