SunnudagsMogginn - 11.12.2011, Blaðsíða 12

SunnudagsMogginn - 11.12.2011, Blaðsíða 12
12 11. desember 2011 Þriðjudagur Hallgrímur Helgason las í DV átak- anlegar lýsingar og frásagnir vinkvenna af nauðgunarnótt og á sömu síðu leið- beiningar sóttar á heimasíðu „G- mannsins“ um niðurólun og mis- notkun kvenna — og er svona frek- ar dapur í þjóðfélaginu sínu. Óskar Þór Arngrímsson Fékk miða á leyni gigg Dj Shadow í Hoxton á morgun, ljúfa líf.... Helga Rut Guð- mundsdóttir Hvert stefnir Ís- land með 20% kvenna í pallborði, álíka hlutfall í sal og 0% þáttastjórnenda? Fimmtudagur Hugrún Halldórs- dóttir Valitor á lof skilið fyrir bestu „bið- tónlist“ í heimi! Eva Cassidy á fóninum hjá þessu greinilega ágæta fólki! Ekki oft sem maður hefur unun af því að vera á bið :) Fésbók vikunnar flett Jólin eru tilfinningalega flókinntími. Miklar væntingar eru gerð-ar til hátíðar ljóss og friðar ogvið gerum miklar kröfur til sjálfra okkar. Það er kúnst að njóta þess smáa í öllu jólastressinu. Ég er jólabarn, fædd viku fyrir jól og því er desember minn mánuður. Reyndar er ég svo mikið jólabarn að það er orðið að hefð á mínu heimili að húsmóðirin fái vægt aðventu-taugaáfall. Árlega lofa ég sjálfri mér að vera skynsöm og kúl á því en hingað til hefur það aldrei tekist. Stóri strákurinn minn, níu ára, sagði nýlega að desember væri friðsælasti mánuðurinn. Jólafasistinn, mamma hans, brosti útí annað yfir barnslegri einfeldni drengsins. Enda veit hún að jólin eru hörkupuð því þau verða að vera fullkomin, eins og í amerískri bíómynd. Slétt og felld, hrein og um- fram allt falleg enda eru jólin heilög. Gólfin hrein, allt á sínum stað, börnin prúð og fín í nýjum jólafötum, foreldr- arnir brosandi og blíð... semsagt FULLKOMIN. Þetta eru minn- ingarnar sem lifa lengst í hug- um fólks, svo það er eins gott að standa sig! Auðvitað er þetta heima- tilbúinn vandi minn. Fyrir strákunum mínum snýst að- ventan um jólasveinana, kakóbolla og kósýheit. Sá elsti segist enn vera stað- fastur í trúnni á jólasvein- ana. Þeir eru raunverulegir og eru 13 talsins og hananú! Stígvélum er stillt útí glugga og glugginn opnaður uppá gátt. Miðdrengnum finnst frekar óhugnanleg tilhugsun að það komi skítugir karlar að húsinu okkar á nótt- unni til að setja gotterí í stígvél. Hon- um líst mjög illa á að kíkja útí glugga til að sjá hvort eitthvað bíði hans þar. Enda skynsamur drengur. Sá minnsti, þriggja ára stúfur, er að komast á þann aldur að skynja spennuna í kringum ólátabelgina hennar Grýlu og setur stígvélið sitt út í glugga jafnvel þó sveinarnir séu enn ekki komnir til byggða. Hver veit nema ég sigli í gegnum desembermánuð í góðu (já eða bara sæmilega) andlegu jafnvægi þetta árið. Laus undan áhrifum bíómynda og markaðsherferða sem birta glans- myndir af fullkomnum jólum. Vonandi tekst það í þetta skiptið að upplifa hreinu og fölskvalausu gleðina sem töfrar jólanna sannarlega birtast í aug- um barna minna. Vonandi... Að- ventu- ævintýri Fyrir strákunum mínum snýst aðventan um jólasveinana, kakóbolla og kósýheit. Morgunblaðið/Ómar Móðurhlutverkið Agnes Ósk Sigmundardóttir

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.