SunnudagsMogginn - 11.12.2011, Side 14
14 11. desember 2011
Á Andreu-tímabilinu. Standandi eru Rafn Ragnar Jónsson, til vinstri, og Rúnar Þórisson. Við hlið And-
reu eru Baldvin H. Sigurðsson, til vinstri, og hægra megin er Hjörtur Howser.
Fyrstu árin þótti Grafík sérlega góðnýbylgjuhljómsveit en eftir aðsöngvarinn Helgi Björnsson gekktil liðs við hópinn breyttust
áherslur og úr varð ein vinsælasta poppsveit
landsins. Eftir að Helgi hætti var Andrea
Gylfadóttir ráðin söngvari og velgengnin
hélt áfram.
Upphaf Grafíkur má rekja til þess að Rafn
Ragnar Jónsson trommuleikari, Rúnar Þór-
isson gítarleikari og Örn Jónsson bassaleik-
ari hófu að taka upp lög saman í janúar 1981.
„Hljómsveitin varð til vegna tónlistar-
innar en ekki öfugt,“ segir Rúnar í samtali
við Sunnudagsmoggann, en hann er einn
stofnendanna og hefur leikið með sveitinni
alla tíð. Örn sneri sér snemma að öðru en
Rafn lést langt um aldur fram árið 2004 eftir
erfið veikindi.
Haldið upp á tímamótin
Í tilefni tímamótanna eru komnir út tveir
diskar með tónlist Grafíkur, svo og heimild-
armynd um hljómsveitina. Rúnar segir
mikið hafa verið til af gömlum ljósmyndum
og blaðaúrklippum og töluvert af sjón-
varpsupptökum frá ferlinum. Síðan er í
myndinni sýnt frá tónleikum sem haldnir
voru skömmu eftir að Rafn dó.
„Það má segja að myndin sé fjórskipt; í
fyrsta hlutanum er fjallað um tvær fyrstu
plöturnar sem við gerðum, sveitamenn að
vestan [Út í kuldann og Sýn]; svo kemur
Helgi inn í bandið og við gerum tvær plötur
[Get ég tekið cjens og Stansað dansað &
öskrað] og þriðji hlutinn er Andreu-kaflinn
þegar við gerðum eina plötu [Leyndarmál].
Fjórði kaflinn er svo um tímann eftir að
Rabbi dó,“ segir Rúnar.
Hljómsveitin var í raun barn þeirra Rafns.
„Við rákum hana alla tíð saman og það var
eiginlega óhugsandi að bandið gæti starfað
án annars hvors okkar. Það var í raun sam-
komulag okkar þótt við hefðum aldrei rætt
það. En það sem gerði okkur kleift að halda
áfram var að sonur Rabba, Egill, settist í
trommarasætið. Hann hefur spilað með
okkur í þau skipti sem hljómsveitin hefur
komið fram síðan 2004.“
Rafn og Rúnar kynntust í hljómsveitinni
Haukum þar sem þeir léku saman um miðj-
an áttunda áratuginn, þá báðir um tvítugt.
Rafn – sem var frá Ísafirði – fékk vin sinn
nokkru síðar til þess að koma vestur. „Það
halda margir að ég sé líka að vestan en svo er
ekki. En við urðum mjög góðir vinir, Rabbi
Húsið hefur grátið
lengi – alveg eins og ég
Þrjátíu ár eru
síðan þrír ungir
menn tóku upp á
því að semja
saman tónlist og
taka upp við
frumstæð skil-
yrði vestur á
fjörðum. Til
varð hljóm-
sveitin Grafík.
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Grafík á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði fyrr á þessu ári. Frá vinstri: Rúnar Þórisson, Egill Rafnsson á trommunum, Helgi Björnsson, Jakob Magnússon og Hrafn Thoroddsen.
Ljósmynd/Ágúst Atlason
Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson