Morgunblaðið - 19.01.2012, Síða 18
18 finnur.is 19. janúar 2012
K
irkjan tilkomumikla,
Sagrada Familía, er í
flestra huga táknmynd
Barcelona-borgar. Þó
að tröllvaxin gnæfi hún yfir ná-
grenni sitt er hún enn í bygg-
ingu og fullkláruð verður hún
talsvert breytt frá því sem við
þekkjum í dag.
Kirkjan er hugarfóstur kata-
lónska arkitektsins Antoní Gaudí
og hinn 19. mars næstkomandi
verða slétt 130 ár frá því bygg-
ing hófst. Vitað var að kirkjan
yrði ekki reist á einni nóttu en
ýmislegt hefur orðið til þess að
tefja verkið enn frekar. Fram-
kvæmdir lágu niðri meðan á
spænsku borgarastyrjöldinni
stóð og kostnaður hefur haldið
aftur af framvindu mála. Nú er
hins vegar svo komið að
framkvæmdaraðilar hafa einsett
sér að byggingu kirkjunnar verði
lokið árið 2026 og óhætt er að
segja að svipur borgarinnar
verði talsvert annar.
Þannig er nefnilega mál með
vexti að turnarnir átta sem eru
einkenni kirkjunnar, sem og
borgarinnar, eru aðeins auka-
atriði þegar kirkjan verður full-
kláruð. Turnarnir sem nú eru til
staðar eru í raun átta af tólf
svokölluðum postulaturnum, en
þá eru ótaldir fjórir turnar
kenndir við guðspjallamennina
Lúkas, Mattheus, Markús og Jó-
hannes. Enn stærri verður þó
Maríuturninn, geysimikill að um-
máli og 123 metrar á hæð.
Hæstu turnarnir eru í dag 106
metrar. Enn er þó ótalinn Jesú-
turninn, langstærstur allra og
heilir 170 metrar á hæð þar sem
hann gnæfir yfir bygginguna
alla. Enn eiga semsagt eftir að
bætast við tíu turnar alls, þar af
sex sem eru töluvert hærri en
þeir sem nú prýða bygginguna.
Hvort þeim verður lokið árið
2026 verður svo tíminn að leiða
í ljós.
jonagnar@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Hver hlið er hlaðin smáatriðnum.
Morgunblaðið/Ómar
Gengt er milli turnanna - ekki fyrir lofthrædda!
Morgunblaðið/Ómar
Útsýnið er gríðarlegt yfir borgina úr turnunum.
Sagrada Familía er verk í vinnslu
Byggingarlok
í augsýn?
Skapti Hallgrímsson
Sagrada Familía er þekktasta kennileiti Barcelona, geysivinsæll ferðamannastaður og verk í vinnslu í 130 ár.
Morgunblaðið/Ómar
Sagrada Familía er ekki síður tilkomumikil eftir að skyggja tekur. Þá
bregða ljós og skuggar á leik um hina margbrotnu og flóknu byggingu. Morgunblaðið/Ómar Morgunblaðið/Ómar Morgunblaðið/Ómar