Morgunblaðið - 19.01.2012, Síða 19
atvinna
Tólf ára var ég sendill hjá Rannsóknar-
ráði ríksins; bar út bréf og fór í bakaríið.
Næsta sumar var ég svo pikkaló á Hót-
el Sögu og það er eftirminnilegt að
Bandaríkjamenn voru öllum öðrum
rausnarlegri á þjórfé.
Guðmundur Steingrímsson alþingismaður.
F
ræðslumálin verða æ
stærri þáttur í starfi
verkalýðshreyfingarinnar.
Telst okkur svo til að á sl.
ári hafi vel á sjöunda þúsund Efl-
ingarfélaga tekið þátt í fræðslu-
verkefnum en þeir sem sóttu
námskeið eða nýttu sér fræðslu-
styrki sem félagið og samstarfs-
aðilar þess bjóða verið vel á
fjórða þúsund. Þetta er ákaflega
mikilvægt, enda opnar ný þekking
fólki jafnan nýja möguleika,“ segir
Sigurrós Kristinsdóttir, varafor-
maður Eflingar – stéttarfélags.
Hin sterka bakvarðasveit
Í vikunni hófst námskeið fyrir
trúnaðarmenn Eflingar frá hinum
ýmsum vinnustöðum, en slík
námskeið eru haldin með reglu-
legu millibili. Námið er tekið í
nokkrum þrepum og á grunn-
námskeiði er farið yfir hlutverk og
stöðu trúnaðarmannsins skv. lög-
um og samningum, vinnurétt, lög
og reglugerðir, samskipti á vinnu-
stað, kjarasamninga og starfsemi
stéttarfélaga. Í næstu þrepum er
farið yfir helstu hugtök hagfræð-
innar, launamál, samskipti á
vinnustað, ræðumennsku og að-
komu trúnaðarmanna í því að
leysa erfið mál á vinnustöðum,
svo sem einelti. Á lokanámskeiði
er meðal annars kynnt starfs- og
námsráðgjöf.
„Trúnaðarmenn á vinnustöðum
eru hin sterka bakvarðasveit
stéttarfélaga. Þeirra er hlutverk
er að leysa minniháttar ágrein-
ingsmál sem upp kunna að koma
úti á vinnustöðunum og gæta
réttinda launafólks þar. Af þess-
um sökum er mikilvægt að trún-
aðarmenn hafi góða þekkingu á
gangverki verkalýðshreyfing-
arinnar og hvað við getum gert
fyrir fólkið.“
Möguleikar sífellt fleiri
Sigurrós Kristinsdóttir er
stjórnarformaður Mímis - sí-
menntunar, sem að stærstu leyti
er í eigu verkalýðshreyfingarinnar.
Fræðslustarf þar er afar fjölbreytt
og nýtast fólki bæði í leik og
starfi. Hvað fullorðinsfræðslu
áhrærir má nefna Grunnmennta-
skólann og Menntastoðir – en þar
hefur mörgum opnast möguleiki
að fara aftur til náms aftur eftir
langt hlé.
„Við höfum dæmi um Efling-
arfélaga sem hafa farið til dæmis
í Menntastoðir, þaðan í Há-
skólabrú Keilis og svo í há-
skólanám, svo sem á Bifröst.
Svona verða inngönguleiðir í há-
skóla sífellt fjölbreyttari og mögu-
leikarnir meiri,“ segir Sigurrós
sem starfaði í áratugi á leikskóla.
Hún hóf nám hjá Mími á svo-
nefndri leikskólabrú og braut-
skráðist árið 2007 sem leik-
skólaliði. Nám félagsliða er
sambærilegt; það er gerð er krafa
um starfsreynslu og einhverja
undirstöðumenntun. Alls hafa í
dag um 240 Eflingarfélagar farið í
gegnum nám félagsliða og 150
fræði leikskólaliðans – en alls eru
um 50 manns á þessum tveimur
námsbrautum í dag.
Á öllum sviðum
„Þegar börnin voru komin á
legg ákvað svo að skella mér
nám. Fannst það óskaplega
skemmtilegt enda varð það til að
vekja áhuga minn á frekara námi
og félagsmálum - mér finnst afar
gaman að vinna að málefnum
launafólks og bætum kjörum
þess; bæði hvað varðar laun og
réttindi á breiðum grundvelli.
Verkalýðshreyfingin kemur við á
öllum sviðum þjóðlífsins,“ segir
Sigurrós sem var kjörin varafor-
maður Eflingar árið 2007 – um
líkt leyti og hún brautskráðist frá
Mími sem leikskólaliði.
sbs@mbl.is
Fjölbreytt fræðslustarf hjá Eflingu – stéttarfélagi. Þúsundir félagsmanna taka þátt
Morgunblaðið/Ómar
Færðslustarf er orðið eitt af umfangsmeiri póstunum í starfi stéttarfélaganna. Sigurrós Kristinsdóttir, sem nam á svonefndri leikskólabrú, er nú í
framvarðasveit Eflingar - stéttarfélags og er á þessari mynd með góðum hóp sem er á trúnaðarmannanámskeiði félagsins sem nú stendur yfir.
Opnar möguleika og
óskaplega skemmtilegt
Opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 11-17 – Pantaðu bás á www.kolaportid.is
Eftirtaldir aðilar verða í Kolaportinu um helgina:
KOLAPORTIÐ
Hákarl úr
Bjarnarhöfn
Harðfiskurinn frá
Tálknafirði
ÞORRAMATUR?
ELSKAN MÍN, ÞÚ
FÆRÐ NÝMETI
OG LJÚFFENGT
SÚRMETI AÐ VILD Í
KOLAPORTINU
Nú eru þorrablótin
að byrja
Sterkur hákarl og
gæða harðfiskur
SJÁVARPERLUR
Frímerkjahornið Reynir - 896 5142
FRÍMERKI
PÓSTKORT
GÖMUL UMSLÖG
Nýtt efni í hverri viku
Númerastimpill „71“
Strönd 1939