Morgunblaðið - 19.01.2012, Síða 24
24 finnur.is 19. janúar 2012
T
il margra ára hefur
Volkswagen treyst á sínar
háþróuðu díselvélar til að
gera Touareg-jeppann
sparneytinn bíl. Þeir dagar eru
langt í frá liðnir en Volkswagen hef-
ur bætt tvinntækni (hybrid) í
vopnabúr sitt til þess að gera bens-
ínútgáfu bílsins sparneytna líka.
VW Touareg Hybrid er fyrsti tvinn-
tæknibíll fyrirtækisins. Volkswagen
ryður einnig nýjar brautir með því
að bjóða sama bílinn með díselvél
og bensínvél með tvinntækni. To-
uareg kom mjög mikið breyttur
með 2011-árgerðinni, með alveg
nýjan undirvagn og með tvinn-
tækni í boði. Í 2012-árgerðinni er
breytingin enn meira afgerandi.
Tvinnbílar eru orðnir algengir hjá
bílaframleiðendum og þar hafa
þýskir framleiðendur ekki endilega
rutt brautina, en þegar kemur að
þýskri verkfræði og framleiðslu
stenst þeim enginn snúning. Í Tou-
areg er tvinntæknin tekin á æðra
stig. Volkswagen hefur líka náð að
létta bílinn um 200 kg frá fyrri ár-
gerð en það er einmitt sú þyngd
sem hybrid-búnaðurinn vegur í
þessum bíl. Hann er því jafnþungur
forveranum, enda finnst alls ekki
fyrir þunga nýja búnaðarins.
Ótrúlegt afl
Touareg-tvinnbíllinn er ekki á
nokkurn hátt öðruvísi í útlit en aðr-
ar útgáfur hans. Eingöngu hybrid-
merki að framan og aftan sýna að
þar fer tvinnbíll. Vélin í bílnum er
333 hestafla, þriggja lítra bensínvél
sem einnig er að finna í Audi-bílum.
Við þetta afl bætast 42 hestöfl raf-
hlaðanna og er hann því 375 hest-
öfl, öflugasta útgáfa Touareg og
fyrir þeim finnst vel.
Svona útbúinn er Touareg geysi-
lega kröftugur bíll og sérlega gam-
an er að nota öll þessi hestöfl, enda
er hann ekki nema 6,5 sekúndur í
hundraðið. Er semsagt í flokki með
öflugri sportbílum. Fyrir vikið er
bíllinn ekki eins sparneytinn og
margur annar tvinnbíllinn. Enda
má segja að notkun tvinntækni í
þennan bíl sé hugsuð á allt annan
hátt en með þá flesta. Afl rafhlað-
anna bætist bara við geysiöfluga
bensínvélina og tekur eyðsluna ör-
lítið niður. Þarna eru tveir góðir
kostir í einu.
Í reynsluakstri eingöngu innan
borgarmarkanna var bíllinn með
14,2 lítra á hundraðið og telst það
hvorki lítið fyrir tvinnbíl né heldur
sérlega mikið fyrir þungan og stór-
an lúxusjeppa með 375 hesta orku-
búr. Aflið fer í gegnum átta gíra
sjálfskiptingu sem hefði mátt vinna
vinnu sína betur á stundum. Fyrir
gírskiptingum finnst stundum of
mikið og oft er hún of lengi að finna
heppilegan gír við inngjöf og fyrir
vikið er örlítil bið eftir öllu aflinu.
Það er eins og hún eigi erfitt með
að taka ákvarðanir sem hentar síð-
ur spretthörðum fótum.
Hljóðlaus akstur
Volkswagen Touareg er algjör
lúxusbíll með öllum hugsanlegum
þægindum. Sætin eru frábær með
fallegu leðri, þakið er glerþak með
stórri sóllúgu og bíllinn er hlaðinn
nýjustu tækni. Fjöðrunin er á loft-
púðum og hækka má bílinn fyrir
erfiðari aðstæður. Mjög vel hefur
lukkast með fjöðrun bílsins því hún
er með þeim allra ljúfustu. Leggja
má mikið á bílinn en alltaf fer hún
vel með farþega.
Það er ljúf tilfinning að leggja af
stað hljóðlega á rafmagninu einu
saman og á því má ná allt að 50 km
hraða. Það er einnig nokkuð sér-
stakt að sleppa bensíngjöfinni og
sjá vélina slökkva á sér oft og iðu-
lega og svífa áfram einungis á raf-
hlöðunni og það jafnvel í drjúga
stund. Hybrid-tæknin í þessum bíl
er mjög þróuð og ekki eins í þeim
flestum þar sem einungis drepst á
vélinni þegar hann er stöðvaður,
t.d. á ljósum. Ekki finnst að neinu
ráði fyrir því þegar vélin fer í gang
aftur en það gerist þegar stigið er
vænna á bensíngjöfina en svo að
rafmótorinn nái að svara þörfinni.
Bíllinn er svo vel hljóðeinangr-
aður að horfa þarf á snúnings-
hraðamælinn til að taka eftir því
þegar hann drepur á vélinni og veg-
hljóð er að auki með því minnsta
sem gerist. Svona 2,3 tonna bíll
þarf stórar bremsur og þær eru
gríðarlega öflugar á þessum bíl og
Finnur Orri Thorlacius reynsluekur Volkswagen Touareg Hybrid
Orkubúnt í sparifötum
Morgunblaðið/RAX
Rennilegur í Rauðhólunum. Í Touareg er tvinntæknin tekin á æðra stig. Volkswagen hefur líka náð að létta bílinn um 200 kg frá fyrri árgerð og vissulega munar um slíkt.
Volkswagen Touareg Hybrid Árgerð 2012
•Farangursr. 493/1.555 l.
• 18“ álfelgur
• Eigin þyngd: 2.315 kg
• Burðargeta: 670 kg
•Verð frá 16.100.000 kr.
• 9,9 l/100 í bl. akstri
• Umboð: Hekla
• 0-100: 6,5 sek.
• Hámark: 240 km/klst
• Fjórhjóladrif
•Mengunargildi:
• 193 g CO2/km
• 3,0 l. bensín + rafmótor
• 375 hestöfl/580Nm
• 8 gíra sjálfskipting
Bíldshöfði 12 · 110 Rvk · 5771515 · skorri.is