Morgunblaðið - 18.02.2012, Side 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2012
✝ Árni Guð-mundsson
fæddist á Efri-
Völlum, Gaulverja-
bæjarhreppi, 13.
mars 1926. Hann
lést 10. febrúar
2012.
Foreldrar hans
voru Ingibjörg
Árnadóttir, f. 6.6.
1895, d. 22.12. 1971
og Guðmundur Jó-
hannesson, f. 9.9. 1900, d. 20.2.
1968. Bræður Árna eru Jóhann-
es, f. 13.3. 1926, og Bjarni Þórir,
f. 11.1. 1929, d. 2.11. 2005. 16.
maí 1953 kvæntist Árni Guðrúnu
Bárðardóttur frá Ísafirði, f. 8.1.
1927, d. 19.2. 2010. Foreldrar
hennar voru Emilía Hólmfríður
Guðmundsdóttir, f. 15.4. 1890, d.
23.9. 1933, og Bárður Guð-
all flutti Árni með foreldrum sín-
um að Arnarhóli í Gaulverjabæj-
arhreppi. Árni ver mikið í
íþróttum og keppti í frjálsum
íþróttum, fyrst fyrir Samhygð og
síðar Umf. Selfoss. Gekk í far-
skóla í Gaulverjabæjarhreppi og
var þrjá vetur í Flensborg-
araskóla og tók gagnfræðapróf
þaðan árið 1945. Vann í Breta-
vinnu í Kaldaðarnesi og við
byggingu Gaulverjabæjarskóla
og Félagslundar. Settist að á Sel-
fossi árið 1949 og hóf störf hjá
Kaupfélagi Árnesinga. Starfaði
þar til 1968 en þá fór hann að
vinna sem deildarstjóri almanna-
trygginga hjá Sýslumanni Ár-
nessýslu og starfaði þar til
starfsloka. Hann starfaði með
Kirkjukór Selfoss, Lúðrasveit
Selfoss, Golfklúbbi Selfoss,
Lionsklúbbi Selfoss og Ung-
mennafélagi Selfoss.
Útför Árna fer fram frá Sel-
fosskirkju í dag, 18. febrúar 2012
kl. 11.
mundsson, f. 27.9.
1871, d. 12.7. 1952.
Synir Árna og Guð-
rúnar eru 1) Guð-
mundur, f. 27. mars
1955, börn hans eru:
a) Helga, f. 1982, í
sambúð með Jóni
Bjarna, f. 1980, dótt-
ir þeirra er Rósa, f.
2011. b) William
Thomas, f. 1987. 2)
Bárður, f. 17. maí
1965, kvæntur Aðalbjörgu
Skúladóttur, f. 4. apríl 1971, syn-
ir þeirra eru a) Árni, f. 2002, og
b) Skúli, f. 2003.
Árni flutti 6 ára gamall með
foreldrum sínum að Útverkum í
Skeiðahreppi til uppeldisfor-
eldra föður síns. Þar bjuggu þau
í 2 ár þar til þau fluttu að Brú í
Stokkseyrarhreppi. 18 ára gam-
Elsku Árni afi, mér þykir mjög
leitt að þú sért dáinn og að ég hafi
misst þig, svona góðan afa. Ég
hitti þig oft þegar þú varst í
göngutúrum og þá gengum við
saman. Svo var ég oft hjá þér og
við fórum saman út í Bónus og
keyptum okkur kex og ís. Mér
fannst karamelluísinn bestur og
þér fannst það líka. Mig langaði að
koma með krakkana úr bekknum
mínum til þín og spyrja þig spurn-
inga um gamla daga og þú ætlaðir
að taka á móti okkur en svo ertu
bara farinn frá okkur. Þá verð ég
bara að hugsa góðu minningarnar
um þig og hvað við áttum góðar
stundir saman. Nú ertu farinn til
Guðrúnar ömmu. Ég ætla alltaf að
muna eftir þér.
Þinn afastrákur,
Árni Bárðarson.
Þegar ég var lítil stelpa lá leið
okkar afa oft út á golfvöll og það
fannst mér afar spennandi. Við
keyrðum úteftir á hvíta fína bens-
anum, tókum nokkrar holur og
stoppuðum svo í dágóða stund í
golfskálanum og fengum okkur
súkkulaði og spjölluðum við aðra
golfara. Þótt ég hafi ekki erft mik-
ið af golfhæfileikunum hans afa
finnst mér alltaf gaman að æfa
sveifluna og taka nokkrar holur
við og við. Hver veit nema þetta
komi einn daginn hjá mér!
Afi hafði einstakt lag á því að
mála alls kyns myndir og voru
landslagsmyndirnar langvinsæl-
astar hjá honum. Ótalmargar
myndir liggja eftir hann og sýna
þær mjög vel hversu einstaklega
vel hann var að sér í staðháttum.
Öll kennileiti og umhverfi eru mál-
uð af það mikilli nákvæmni að
stundum mætti halda að hann
hefði verið á staðnum meðan hann
málaði.
Afi var mjög hreinskiptinn og
mikill húmoristi. Ég gleymi aldrei
svipnum hans og viðbrögðum þeg-
ar við Bjarni sögðum honum frá
því að brátt yrði hann langafi.
Stoltur var hann, og svo sagði
hann glottandi að hann hefði nú
verið farinn að bíða svolítið eftir
þessum fréttum. Rósa litla kom
svo í heiminn aðeins örfáum dög-
um eftir afmælið hans í fyrra og er
ég afar þakklát fyrir þann tíma
sem þau fengu saman. Afa þótti
reglulega gaman að fylgjast með
litlu stúlkunni stækka og dafna og
naut sín vel í langafahlutverkinu.
Elsku afi, núna ert þú kominn
til ömmu og getið þið nú hafið nýtt
líf saman. Ég veit að þið munuð
bæði vaka yfir okkur og blessa.
Ég varðveiti góða minningu um
þig í hjarta mínu um ókomna tíð.
Ástarfaðir himinhæða,
heyr þú barna þinna kvak,
enn í dag og alla daga
í þinn náðarfaðm mig tak.
(Steingrímur Thorsteinsson)
Hvíl í friði elsku afi.
Þín
Helga.
Árna Guðmundsson hefi ég
þekkt síðan ég var barn að aldri þá
er hans góða fjölskylda flutti að
Arnarhóli í Gaulverjabæjarhreppi
í þann mund sem Ísland varð lýð-
veldi. Árni var hæfileikaríkur,
hagmæltur, söngvinn og teiknaði
og málaði fallegar myndir sem
víða prýða veggi auk þess sem
margar þeirra eru minnismerki
um húsakynni fyrri daga. Við
Fanney erum svo lánsöm að eiga
þannig myndir af gömlum bæjum
sem nú eru ekki til nema í minn-
ingum.
Fyrir nú utan þessa ríku hæfi-
leika þá var Árni mjög hlýlegur og
umfram allt ákaflega skemmtileg-
ur maður. Einstaklega minnugur
á vísur og kvæði og svo margt
skemmtilegt sem hann hafði frá
að segja frá fyrri tímum. Mörg
síðustu ár höfum við hist oft til að
spjalla og hlæja. Fátt er jafn
heilsubætandi og hláturinn og af
honum höfðum við mikið á þessum
gleðistundum.
Þau hjónin, Guðrún og Árni,
voru einstaklega gestrisin og átt-
um við Fanney margar hamingju-
stundir með þeim síðustu árin.
Eftir að Guðrún dó hefur Árni
verið mikill aufúsugestur hjá okk-
ur Fanneyju og hefur mér jafnan
þótt að þeim degi væri borgið er
hann birtist í dyrunum, en hann
sagði að sér þætti svo vænt um að
geta komið til að ræða landsins
gagn og nauðsynjar. Við gátum
alltaf rifjað upp liðna tíma og sí-
fellt hlegið að sömu skemmtisög-
unum. Nú eru þessar stundir allar
að baki og við sjáum á eftir þess-
um yndislegu hjónum. Auðvitað
hlaut að koma að því að leiðir
skildi, a.m.k. um sinn og nú yljum
við okkur við fjölmargar skemmti-
legar minningar frá samveru-
stundunum.
Kæru vinir, Guðrún og Árni:
Innilegar þakkir fyrir samveruna.
Samúðarkveðjur til aðstandenda.
Fanney og Hergeir.
Árni fæddist í blautum Flóan-
um árið áður en Flóaáveitan var
tekin í gagnið. Eftir það gátu
menn stjórnað bleytunni, aukið
við eða dregið úr eftir þörfum. Þá
fóru menn að hefja sig upp úr
mýrunum, efnahagslega og and-
lega. Það tók auðvitað sinn tíma,
Árni þurfti að sveifla orfinu lengi, í
bleytunni, í rigningunni, við lítinn
regngalla, en hann hóf sig með
íþróttunum eins og jafnaldrar
hans margir. Hann var jafnaldri
Kolbeins Kristinssonar íþrótta-
frömuðar, Jóhannesar bróður síns
og Elísabetar Englandsdrottning-
ar. Allt varð þetta afreksfólk. Árni
vann fyrstu afrekin í hástökki á
Þjórsártúnsmótum, þá keppti
hann fyrir Samhygð, síðan fluttist
hann að Selfossi og keppti síðan
með okkur, liðinu þar. Aðallega
var hann í langstökki og sprett-
hlaupum, þar mætti ég honum,
hann vann mig lengi vel fyrst. En
aldrei bar skugga á vináttu okkar,
keppnisandinn varð vináttunni
aldrei yfirsterkari í því góða liði.
Oftast var keppt á túnblettum
sem þóttu sæmilega sléttir, mikill
varð fögnuður þegar fyrsti völlur-
inn með reglulegri hringbraut var
tekinn í notkun á Selfossi, það var
árið 1950. Brautin var 224 metra
löng en þótti æði þótt hún væri dá-
lítið grýtt. Aðalvandinn var sá að
okkur hætti til að fljúga út úr
brautinni á beygjunum þegar
sæmilegum hraða var náð. Þetta
voru dásamlegir tímar, hafðu heila
þökk fyrir samvistirnar.
Blessuð sé minning Árna Guð-
mundssonar.
Þór Vigfússon.
Árni Guðmundsson
✝ Stefán GunnarBragason
fæddist 4. júlí 1955.
Hann lést á líkn-
ardeild Landspít-
alans í Kópavogi
10. febrúar 2012.
Foreldrar hans
eru Sigrún Sigurð-
ardóttir sjúkraliði,
f. 28.8. 1929, og
Bragi Sigurðsson
lögfr. og blaðamað-
ur. Foreldrar hennar Sigurður
Stefánsson vígslubiskp á Möðru-
völlum í Hörgárdal og frú María
Ágústsdóttir. Foreldrar hans
voru hjónin Sigurður Arn-
grímsson ritstjóri og verzl-
unarmaður á Seyðisfirði og
kona hans Ólöf Kristjánsdóttir
ljósmóðir. Bræður Stefáns
Gunnars; Sigurður Sigfússon, f.
1.5. 1948, Einar Sigfússon, f. 8.4.
1951, d. 23.12. 1989, Ólafur
Bragi Bragason, f. 4.9. 1957, og
Kristján Ingi Bragason, f. 19.1.
1962, d. 21.5. 2008.
Kona hans var
Svanhvít Tóm-
asdóttir, þau gift-
ust 7.2. 1976 en
skildu 1992. Synir
þeirra eru Daníel
Ingi, f. 28. okt.
1979, Sigurður, f.
16.3. 1984, og Stef-
án Brynjar, f. 22.7.
1986.
Stefán lauk námi
við Iðnskólann
1979, meistaraprófi 7.1. 1984,
eftir það lauk hann m.a. námi
við tæknideildina í markaðs- og
fasteignamati, svo fátt eitt sé
talið. Hann stofnaði eigið fyr-
irtæki, „Fagafl“, sjálfstæðan
rekstur, undir því nafni tók
hann að sér ógrynni af verk-
efnum, m.a. hjá Reykjavík-
urborg. Synir hans einn eða allir
störfuðu við hlið hans allt til
enda.
Útför Stefáns Gunnars fór
fram frá Fossvogskapellu í
kyrrþey.
Kveðja til sonar
„Dáinn, horfinn“ – harmafregn!
hvílíkt orð mig dynur yfir!
En eg veit að látinn lifir;
það er huggun harmi gegn.
(Jónas Hallgrímsson.)
Elskulegi sonur minn og besti
vinur. Það er erfitt að kveðja þig
með fáum orðum. Við vorum búin
að vera samferða í 56 ár. Ég fékk
að sjá þig opna fallegu bláu augun
þín, í fyrsta sinn og fékk líka, að
sjá þig loka þeim í síðasta sinn.
Eini sonur minn sem fæddist fyrir
norðan,
á Möðruvöllum hjá ástríkum
afa og ömmu, þar fékkst þú að
dafna fyrstu mánuðina þína. Und-
ir sigurkufli með eina tönn svo
fagur og fullkominn. Við komum
vor hvert, til sumardvalar, eins og
vorfuglarnir. Þú varst lánsamur
eins og Siggi og Einar að eiga öll
þín æskusumur í faðmi þeirra inn
milli fjallanna í öryggi, ást og
hlýju. Þar fenguð þið það vega-
nesti sem mestu máli skipti fyrir
ævina ykkar alla. Frá fyrstu ein-
kenndist gangan þín um lífsins
veg öllum þeim góðu eiginleikum
sem þú fékkst í vöggugjöf. Að vita
hvað þú vildir, heiðarleiki, rétt-
lætiskennd, dugnaður og sam-
viskusemi, það er ekki svo lítil gjöf
að hafa að leiðarljósi. Allt þitt
starf ævina út varst þú svo stað-
fastur í trúnni á það góða. Þú
stóðst með þér og þínum. Þú skil-
ur eftir fagurt líf. Synirnir þínir
bera því vitni. Þú varst þeim fað-
irinn, fyrirmyndin, lærimeistar-
inn og besti vinurinn sem aldrei
brást.
Gæfan mín er mikil að hafa
fengið að fylgja ykkur alla leið.
Þetta sl. ár var mikið þroskaár.
Fylgja þér í gegnum það gerði
okkur að betri manneskjum.
Æðruleysi þitt, viljinn þinn,
sterka réttlætiskenndin, aldrei að
gefast upp. Öllu sem þér var trúað
fyrir gerði samfylgdina með þér
svo lærdómsríka. Þú skilur eftir
mikinn mannauð, synina þína sem
munu reyna að bregðast ekki,
heldur feta í fótsporin þín. Verkin
tala. Ómetanlegan auð skilur þú
eftir handa þeim. Þeir fengu að
njóta þess besta sem hægt er að
skilja eftir og mun styðja þá og
styrkja allt þeirra líf. Þeir eru
fjársjóðurinn sem þú skildir eftir,
þeirra er framtíðin. Í veikindun-
um þínum, sást það best hvern
mann þeir hafa að geyma. Þú
varst að hverfa, og þeir báru þig á
höndum sér. Daga og nætur varst
þú umvafinn ást þeirra og um-
hyggju, öll stóðu þau vaktina til,
að gera lífið, eins gott og hægt
var. Það tókst þeim. Ógleyman-
legar stundir hlaðast upp. Þú
varst umvafinn elsku þeirra og
umhyggju. Þú varst sæll að hafa
ástvinina þína alla hjá þér daga og
nætur þar til yfir lauk.
Elskulegi sonurinn minn, nú er
skarð fyrir skildi, minninginn um
þig er svo björt og fögur. Við meg-
um syrgja þig. Minnismerkið í
Skorradal „Vinastaðir“ mun
standa, þar er andi þinn og sál.
Þangað munu afkomendur þínir
sækja orku og styrk eins og þú
gerðir og minnast allra stundanna
með þér. Ég fæ að vera með,
halda áfram að fylgja strákunum
þínum og bestu vinunum í leik og
starfi. Gleði og sorg fylgjast allaf
að, til skiptis vaka þær og sofa.
Sonur minn sofðu í ró, svefninn
þér sígur á brá, þú veist – ég vaki
þér hjá.
Mamma þín.
Elsku pabbi minn.
Mér tregt er um orð til að þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,
unz hittumst við aftur heima.
Ó, elsku pabbi, ég enn þá er
aðeins barn, sem vill fylgja þér.
Þú heldur í höndina mína.
Til starfanna gekkstu með glaðri lund,
þú gleymdir ei skyldunum eina stund,
að annast um ástvini þína.
Þú farinn ert þangað á undan inn.
Á eftir komum við, pabbi minn.
Það huggar á harmastundum.
Þótt hjörtun titri af trega og þrá,
við trúum, að þig við hittum þá
í alsælu á grónum grundum.
Þú þreyttur varst orðinn og þrekið
smátt,
um þrautir og baráttu ræddir fátt
og kveiðst ekki komandi degi.
(Hugrún)
Takk fyrir allt pabbi minn, ég
sakna þín sárt.
Stefán Brynjar Stefánsson.
Hetjan mín. Það voru erfiðir
mánuðir hjá þér þeir síðustu, en
viljastyrkur þinn að klára það
mikilvæga áður en kallið kæmi
rak þig áfram á hverjum degi, þú
vildir tryggja að synir þínir þyrftu
ekki að kvíða framtíðinni, og
ganga frá öllum þínum málum og
skilja við sáttur.
Orðið vinur heyrði ég oft á dag
þar sem þú heilsaðir ávallt sonum
þínum á því orði, og kvaddir þá.
Við áttum óteljandi yndislegar
stundir þau 40 ár sem við áttum
og langar mig að þakka þér fyrir
þær. Við töluðum um að fara að
veiða í vor ef Guð leyfði, en ég bað
þig um að senda mér regnbogann
ef þú kæmir ekki með, og eftir að
þú kvaddir okkur í faðmi mínum,
sona þinna og móður og ég gekk
út í nóttina og leit upp til himins
sá ég sterkan regnbogahring í
kringum fullt tungl sem leystist
upp í rauðan bjarma sem sann-
færði mig um að þér liði vel og þú
værir að láta mig vita. Eftir að þú
fórst á líknardeild höfðum við
þann háttinn á að þú værir aldrei
einn og tókum við á það ráð að
skiptast á um að vera hjá þér. Mig
langar að minnast á það elskulega
starfsfólk sem vinnur á líknar-
deild, þar er valin kona í hverju
rúmi og hlýjan og kærleikurinn
sem frá því starfsfólki kemur er
með eindæmum. Þú óskaðir eftir
að verða jarðsettur í kyrrþey en
vildir samt taka það fram við þá
sem vildu minnast þín að öll fram-
lög til líknardeildar í Kópavogi
væru vel þegin.
Elsku Stefán minn takk fyrir
allt, „sjáumst síðar“.
Þín
Svanhvít.
Stefán Gunnar
Bragason
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, lang-
afi og langalangafi,
HAUKUR PÁLSSON
húsasmíðameistari,
Sléttuvegi 15,
Reykjavík,
lést á Landspítala Landakoti sunnudaginn
12. febrúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 20. febrúar
kl. 15.00.
Guðrún Helga Hauksdóttir, Jóhann Örn Guðmundsson,
Gunnar Haraldur Hauksson, Kristín Jóna Guðjónsdóttir,
Sigurjón Páll Hauksson, Sigríður Valdís Karlsdóttir,
Kristín Hulda Hauksdóttir, Gylfi Jónasson,
Haukur Hauksson, Dögg Jónsdóttir,
Unnur Erna Hauksdóttir, Ólafur Örn Valdimarsson,
Jónas Guðgeir Hauksson, Sigrún Guðmundsdóttir,
Júlíana Hauksdóttir, Loftur Ólafur Leifsson,
Guðfinna Hauksdóttir, Hafliði Halldórsson
og fjölskyldur.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
RÓSA LILJA JÓHANNESDÓTTIR
frá Flögu Þistilfirði,
Langanesvegi 23,
Þórshöfn,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Nausti
Þórshöfn, þriðjudaginn 14. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Þórshafnarkirkju laugardaginn
25. febrúar kl. 14.00.
Reynir Þórisson,
Björn Jóhannes Þórisson,
Guðmundur Gestur Þórisson, Katrín Ósk Þorgeirsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SVAVAR MAGNÚSSON
fv. bóndi,
Skörðum,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Silfurtúni
Búðardal miðvikudaginn 15. febrúar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Pálína Guðrún Gunnarsdóttir,
Sigríður Jóna Svavarsdóttir, Jóhann Eysteinn Pálmason,
Gunnar Örn Svavarsson,
Guðgeir Svavarsson, Kristín Ármannsdóttir,
Sigmar Svavarsson, Valborg Reisenhus,
Margrét Svavarsdóttir, Sigurður Helgason,
barnabörn og barnabarnabörn.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800