SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Síða 14
14 26. febrúar 2012
Sunna Sigurðardóttir tekur vel ámóti blaðamanni með kaffi ogkökum í íbúð sinni í reisuleguhúsi við Bergstaðastræti. Þetta
lítur út fyrir að vera íbúð þar sem hægt er
að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn.
Gengið er upp þröngan stiga til að komast
upp í íbúðina og við enda hans blasir við
skrifborðshorn. „Þetta var skápur,“ segir
Sunna og má segja að þessi umbreyting
beri sköpunargleði hennar vitni.
Sunna teiknaði alls þrjár myndasögur í
bókina Allt með kossi vekur eftir Guð-
rúnu Evu Mínervudóttur, sem hreppti Ís-
lensku bókmenntaverðlaunin 2011 í flokki
fagurbókmennta. Mest áberandi er sagan
sem byrjar bókina en myndasaga eftir
Sunnu prýðir fyrstu fimmtíu síður bók-
arinnar eða svo. Myndasagan er áhrifa-
mikil en hún hefst í árdaga ef svo má
segja, í aldingarðinum með Adam og Evu.
En hver er uppruni teiknarans?
„Mér þykir leitt að segja það því það er
hálfgerð klisja en ég var alltaf að teikna
sem barn. Ég man ekki eftir mér öðru-
vísi,“ segir hún en ef til vill hefur það haft
einhver áhrif að móðir hennar, Bryndís
Kondrup, er myndlistarkona.
„Ég var alltaf meðvituð um að það væri
ekkert of sniðugt að herma eftir og fannst
skemmtilegra að reyna að finna uppá ein-
hverju sjálf. Mér fannst gaman að búa til
sögur, þetta var alltaf frásagnartengt hjá
mér. Ég ætla samt ekkert að blása þetta
upp, ég var bara krakki sem fannst gaman
að teikna.“
Sunna segist aldrei hafa ætlað sér að
verða listakona þegar hún var yngri. „Ég
sá það aldrei í hillingum heldur ætlaði ég
alltaf að verða eitthvað „lógískt“. Ég var á
sálfræðibraut og hafði áhuga á manneskj-
ustúdíum. Svo áttaði ég mig á því að þetta
væri stór heimur og það væri mögulega
hægt að vinna við þetta. Þá fór ég að skoða
hvort maður passaði einhvers staðar inn.“
Það tók Sunnu samt tíma að finna hvar
hún passaði inn. Hún fór fyrst í MH en
skipti síðan yfir í FB út af listabrautinni.
Eftir stúdent fór hún að velta fyrir sér
bæði myndlist og hönnun. „Ég fór í lista-
skóla í Hollandi og var þar í fjögur ár,“
segir hún en skólinn heitir AKI og er í
Enschede.
Fékk verðlaun fyrir stól
„Ég valdi mér opna myndlistarbraut og
fékk að leita og prófa ýmislegt. Þetta átti
ótrúlega vel við mig. Ég tók líka hönn-
unaráfanga í náminu og vann meira að
segja verðlaun fyrir stól. Myndlistin mín
færðist alltaf meira og meira í teikningu.
Ég var alltaf mest að teikna, þó ég hafi gert
stærri myndir og málverk voru þau alltaf í
þessum teiknifrásagnarstíl.“
Skólinn byggðist mikið á einstaklings-
frumkvæði og segir Sunna að sér hafi
Einlægni er
spennandi
Sunna Sigurðardóttir fékk draumaverkefnið
þegar hún teiknaði myndasögur í verðlaunabók
Guðrúnar Evu Mínervudóttur, Allt með kossi vek-
ur. Hún vinnur nú að sinni fyrstu myndasögubók.
Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Myndir: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is