SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Blaðsíða 34

SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Blaðsíða 34
34 26. febrúar 2012 Í Punjap-fylki í Pakistan hafa komiðfram hugmyndir um að þriðja kyn-inu verði skipt í þrennt og kynin ílandinu verði þá fimm talsins. Hijdrurnar í Austurlöndum hafa fylgt menningarsögunni í árþúsund en mann- réttindabarátta þeirra er rétt að byrja. Á Vesturlöndum á þessi hópur sér samsvörun í transfólki og klæðskipt- ingum en það er engu að síður mikil ein- földun að segja að þetta sé sami hóp- urinn. Þegar Pakistanar ákveða að skrá hijdruna sem þriðja kynið er mikilvægt að hafa það í huga að hér skiptir meira máli en á Vesturlöndum af hvoru kyninu einstaklingur er. Kynin geta ekki farið á sömu veitingastaðina nema þá að tjaldað hafi verið fyrir þann hluta þar sem kon- um er ætlað að sitja. Kona getur ekki set- ið við hlið karlmanns í strætó, ekki beðist fyrir í sama herbergi og karlmaður og alls ekki kosið í sömu kjörklefum. Það var í apríl á síðasta ári sem fyrst féll úrskurður um að hijdrurnar ættu rétt á persónuskilríkjum og skráningu í þjóð- skrá. Í nóvember tók hæstiréttur lands- ins mál þessa hóps fyrir að nýju og úr- skurðaði að skylt væri að færa hijdrurnar á kjörskrá. Talið er að í Pakistan sem telur um 180 milljónir íbúa séu á bilinu 80-300 þúsund hijdrur. Sambærileg skref í átt til mannréttinda hijdra hafa verið tekin í Bangladess og Indlandi. Guðlegar verur Hijdrurnar eru svo sannarlega dularfullar verur. Þær klæðast eins og konur og gera kröfu um að vera kvenkenndar en samt eru þær ekki konur að eigin áliti, þær eru einfaldlega hijdrur. Hin fullkomna hijdra er hvorki karl né kona og býr ekki yfir þeim æxlunarmöguleikum sem slíkir einstaklingar hafa. Langflestir hafa ein- hverskonar karlkyns kynfæri en þau eru vanburðug og viðkomandi skortir karl- kyns eiginleika sálar og líkama. Með sama hætti getur kona sem aldrei hefur á klæðum talist hijdra. Í almennu talmáli í Pakistan er algengt að kalla hijdrurnar „eunchs“ eða geldinga. Hin fullkomna kynlausa hijdra er nær því að vera hugmyndafræðilegt fyrirbæri en raunveruleg lýsing á þjóðfélagshóp. Nútímatalsmenn innan þessa hóps við- urkenna að mikill meirihluti hijdranna er að líkamsvexti sem karlmaður, aðeins örfá prósent hópsins eru það sem hægt er að kalla kynlausar verur frá náttúrunnar hendi. Einhver hluti hinna velur sér að fara í ófrjósemisaðgerð en sú leið er litin hornauga í samfélagi múslima. En það er af þessum ástæðum sem ráðuneytismenn og kosningastjórnir velta nú fyrir sér að skilgreina hijdrurnar innbyrðis sem þrjú kyn, karl-hijdrur, kvenhijdrur og kynlausar hijdrur. Stelpustrákar Strax frá barnsaldri finnur hijdran að hún er öðruvísi, hún laðast yfirleitt frekar að stelpum og leikur sér ekki í hefð- bundnum strákaleikjum. Meðal fátækra Pakistana er algengt að strax og einkenn- in koma fram útskúfi foreldrar slíku barni og komi því af sér til eldri hijdru sem gengur því í föður- og móðurstað. Hijdrur búa yfirleitt nokkrar saman og sú elsta í hópnum er kölluð gúrú hópsins. Til hennar rennur helmingur allra tekna heimilisins. Í örbirgð barnmargra feðra er sú leið að gefa hijdru-gúrú eitt sveinbarn ekki talin neitt sérstaklega slæmur kostur. Í landi þar sem mikill meirihluti fátæklinga sér hvorki fram á atvinnu né möguleika á að stofna fjölskyldu er framtíð hijdrunnar ekki endilega það versta. Hijdrur við vinnu sína á fjölförnu götuhorni í Saddarhverfi í Rawalapindi. Eitt einkenni hijdranna er hversu frakkar og orðljótar þær eru. Blaðamaður varð að taka orð manna um munnsöfnuð þeirra trúanlegan. En það var enginn vafi að þær sýndu bíræfni þar sem þær völsuðu um milli bíla í umferðinni og bönkuðu á glugga bílstjóranna til að innheimta sinn skatt af samfélaginu. Ölmusugjafir gegna trúarlegu hlutverki meðal múslima og þess vegna er betlarinn ekki með öllu réttlaus gagnvart velgjörðarmanni sínum. En af öllum betlurum eru líklega engir jafn að- gangsharðir og hijdrurnar. Þessar glæsilegu drósir hitti blaðamaður Morgunblaðsins fyrir um hábjartan dag, þá dökk- klæddu með skeggrótina í Lahore en hina í höfuðborginni Islamabad. Ljósmynd/Bjarni Harðarson Þriðja kynið viðurkennt í Pakistan Með úrskurði hæsta- réttar í Pakistan er nú skylt að skrá þriðja kynið í kjörskrár. Hér- aðsstjórnir landsins, velferðarráðuneyti og lögregluyfirvöld ræða þessa dagana fyrir- komulag og framhald þessa viðamikla mannréttindamáls. Bjarni Harðarson skrifar frá Pakistan.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.