SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Blaðsíða 19

SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Blaðsíða 19
26. febrúar 2012 19 H ún var í uppáhaldi tískublaðaog var kölluð „eyðimerk-urrósin“ í Vogue og „Díana,drottning Austurlanda“ í Paris Match, en nú er henni líkt við Maríu Ant- onettu. Asma al-Assad, eiginkona Bashirs al-Assads, einræðisherrans í Sýrlandi, átti þátt í að milda ímynd manns síns. Fyrir hálfum mánuði lýsti hún yfir stuðningi við mann sinn, um það leyti, sem bætt var í sprengjuregnið á bæinn Homs. Hún er úr súnnítafjölskyldu frá Homs, þar sem upp- reisnarmenn eru einna sterkastir. Þar liggja heilu hverfin í rúst að því er fram hefur komið í fjölmiðlum og herinn myrðir íbúana kerfisbundið. Asma fæddist í London árið 1975, móðir hennar er fyrrverandi diplómati og faðir hennar hjartaskurðlæknir. Foreldrar hennar voru vinir Hafez al-Assads, fyrr- verandi forseta Sýrlands og föður núver- andi forseta. Hún nam við Queen’s Col- lege, sem er fyrir konur, og síðan King’s College í London. Eftir námið réði hún sig til starfa í fjárfestingum hjá Deutsche Bank í London. Henni hafði verið veitt innganga í viðskiptaskóla Harvard, en ákvað frekar að giftast Bashir al-Assad, sem er tíu árum eldri en hún, giftust árið 2000 og þá flutti hún í fyrsta skipti til Sýrlands. Þau eiga þrjú börn. Hreifst af „gildum“ eiginmannsins Í breska blaðinu Independent er haft eftir ónefndum ævisöguritara að Bashir hafi valið Ösmu þvert á vilja systur sinnar og móður, sem voru á móti ráðahagnum vegna þess að hún væri súnníti og hann úr röðum alavíta, sem heyra til síta. Asma er eins og klippt út úr tískublaði og hefur verið borin saman við Raniu, drottningu í Jórdaníu, og Cörlu Bruni, for- setafrú í Frakklandi. Hún hefur tekið á móti spænsku konungshjónunum í Sýr- landi og hjónunum og Hollywood- stjörnunum Angelinu Jolie og Brad Pitt. Í heimsókn í Frakklandi 2010 sagði hún í samtali við Paris Match að hún hefði gifst Bashir vegna þeirra „gilda“ sem hann stæði fyrir. Asma al-Assad hefur nánast horfið af sjónarsviðinu eftir að uppreisnin hófst í Sýrlandi í mars í fyrra. Um svipað leyti birtist umfjöllunin, sem vísað var til í upphafi, um hana á forsíðu Vogue. Í greininni var Sýrlandi lýst sem öruggasta landi Mið-Austurlanda og yfir því ríktu hjón, sem rækju heimili sitt á „óheftum lýðræðislegum forsendum“. „Við kjósum öll um hvað við viljum og hvar,“ hafði blaðið eftir henni og sagði í Independent að mörgum Sýrlendingum hefðu ofboðið þessi ummæli og spurt sig hvers vegna As- sad-fjölskyldan leyfði ekki öllum íbúum landsins að njóta þeirra réttinda. Greinin er nú horfin af heimasíðu Vogue. Í byrjun janúar birtist Asma við hlið manns síns þar sem hann ávarpaði stuðn- ingsmenn sína. Myndir af henni skælbros- andi ásamt tveimur barna þeirra birtust víða. Á fundinum sagði forsetinn að sigr- ast yrði á öllum samsærum gegn landinu. Stöðvuð á leið á flugvöllinn Sagt er frá því í grein í þýska blaðinu Ta- gesspiegel að tveimur vikum síðar hafi Asma reynt að flýja land ásamt börnum sínum, móður Assads og frænda. Að sögn stjórnarandstöðunnar þvingaði hópur lið- hlaupa úr leyniþjónustunni bílalest for- setafrúarinnar til að nema staðar á leiðinni út á flugvöll og tókst lífvörðum forsetans með naumindum að bjarga þeim aftur í forsetahöllina. Hlutskipti Ösmu hefur verið víða til umfjöllunar. Fall forsetafrúar Sýrlands í ónáð, var fyrirsögn fréttaskýringar AFP. Breskir fjölmiðlar gera mikið úr bresku ríkisfangi hennar „Hvað finnst eiginkonu Assads, greindri, menntaðri konu, sem al- in er upp í hinu frjálslynda Bretlandi og virðist helga sig góðum málefnum, um þá illsku, sem daglega á sér stað í Sýrlandi og hvergi í meira mæli en Homs, heimabæ fjölskyldu hennar?“ var spurt í grein í breska blaðinu Times. Nokkrum dögum síðar barst blaðinu tölvupóstur frá for- setafrúnni: „Forsetinn er forseti alls Sýr- lands, ekki hluta Sýrlands. Ég styð hann í því hlutverki,“ skrifaði Asma og bætti við að hún vildi brúa bil og hvetja til sam- ræðna. Asma al-Assad, eiginkona Bashirs al-Assads Sýrlandsforseta, sást í janúar á fundi til stuðn- ings manni sínum í Damaskus ásamt tveimur barna þeirra, Karim sjö ára og Zein níu ára. Reuters Eiginkona einræðisherrans reyna að draga úr ódæðisverkinu svaraði Rifaat um hæl: „Um hvað eru að tala, sjö þúsund? Nei, nei. Við drápum 38 þúsund.“ Rummungaveldi fjölskyldunnar Fjölskylda Assads hefur því ráðið lögum og lofum í Sýrlandi í rúmlega 40 ár og hrifsað til sín bæði völd og auð. Erfitt er þó greinilega að meta hversu rík Assad-fjölskyldan er. Schmuel Bar, ísr- aelskur Sýrlandssérfræðingur, taldi árið 2006 að fjölskyldan ætti um þrjá milljarða dollara. Jórdanski fréttavefurinn Alba- waba taldi hins vegar nýverið að fjöl- skyldan ætti 40 milljarða dollara, sem væri þrefalt andvirði árlegs útflutnings frá landinu. Vefurinn Canadian Business On- line komst að þeirri niðurstöðu í fyrra að Assad-fjölskyldan ætti 144 milljarða doll- ara. Eftir að Assad komst til valda hreiðraði stórfjölskylda hans um sig við kjötkatlana, frændur, frænkur og tengdafólk. Talað er um að þúsundir vandamanna hafi notið góðs af. Netið er flókið og erfitt að rekja slóð peninganna í áranna rás. Hún liggur í gegnum fyrirtæki, einkaleyfi af ýmsum toga, gjaldeyrisviðskipti. Á vefnum Albawaba er til dæmis talið að Bashir al-Assad, forseti Sýrlands, eigi um tvo milljarða evra, sem liggi á reikningum í Sviss. Meðallaun í Sýrlandi eru um 200 dollarar. Talið er að Bashir al-Assad hafi árið 1998 tekið við yfirumsjón viðskipta við Líb- anon, sem þá var hersetið af Sýrlend- ingum. Telja sérfræðingar að hann hafi átt þátt í umfangsmiklu peningaþvætti. Bas- hir hafi ásamt Mahir bróður sínum tekið 25% af þeim fjármunum, sem fóru í gegn- um peningaþvottavélina. Herra fimm prósent Rami Makluf heldur utan um alla þræði í efnahagslífinu í Sýrlandi. Móðir hans, An- issa al-Assad, var föðursystir Bashirs. Um- svif hans eru meðal annars kunn vegna þess að Bandaríkin lögðu árið 2008 bann við viðskiptum við hann og Evrópusam- bandið sigldi í kjölfarið í fyrra. Ríkisborg- urum Bandaríkjanna og ríkja ESB er bann- að að eiga viðskipti við hann á þeirri forsendu að hann sé áhrifamikill sýr- lenskur kaupsýslumaður, sem hafi byggt veldi sitt upp með því að nota sambönd sín við stjórnarliða, hann „ýti undir spill- ingu í hinu opinbera og hagnist á henni“, eins og segir í rökstuðningi Bandaríkja- manna. Dagblaðið Financial Times komst árið 2011 að þeirri niðurstöðu að 60% af sýr- lensku efnahagslífi lytu stjórn Maklufs. Hann hefur viðurnefnið „herra fimm pró- sent“ vegna þess að sagt er að enginn í Sýrlandi geti stundað viðskipti án þess að hann fái sinn hlut. Að mati franska dag- blaðsins Le Monde voru eignir Maklufs ár- ið 2008 um sex milljarðar dollara. Makluf er helsti eigandi farsímafyrirtækisins Sy- riatel og eignarhaldsfyrirtækisins Cham Holding, sem á lúxushótel, veitingastaði, fasteignir og fyrsta einkaflugfélag Sýr- lands. Þess utan á hann fríhafnarverslanir, fríverslunarsvæði á landamærum Sýrlands að Líbanon og verslunarkeðjur. Hann á hluti í bönkum bæði heima fyrir og er- lendis, tryggingafélögum, sjóvarpssend- um og einkaskólum. Að auki á Makluf- fjölskyldan einkaleyfi á innflutningi á tób- aki til Sýrlands. Það er því engin furða að reiði mótmæl- enda í Sýrlandi skuli einnig beinast að Makluf. Allt frá því að mótmælin hófust fyrir ári hefur mátt sjá mótmælaspjald með ásjónu hans ásamt orðinu „þjófur“. Brot gegn mannkyni Margir óttast að hryllingur sé í vændum í Sýrlandi. Í skýrslu, sem Sameinuðu þjóð- irnar birtu á fimmtudag, segir að sýrlensk stjórnvöld hafi fyrirskipað „umfangsmikil mannréttindabrot“ og um sé að ræða stefnu, sem hafi verið ákveðin á „efstu stigum hers og ríkisstjórnar“. Segir í skýrslunni að um sé að ræða glæpi gegn mannkyni. Þar segir að uppreisnarsveit- irnar, sem kalla sig Frjálsa sýrlenska her- inn og samanstendur að mestu úr lið- hlaupum úr liði Assads, hafi einnig framið glæpi, en þeir séu „ekki samanburð- arhæfir í umfangi og skipulagi við þá, sem ríkið hafi framið.“ Liðhlaupar úr sýrlenska hernum fagna í héraðinu Homs. And- spyrnan við stjórnvöld í landinu kemur úr ýmsum áttum. AP AP

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.