SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Qupperneq 15
26. febrúar 2012 15
fundist gott að prófa sig áfram en að námi
loknu vildi hún fá meiri leiðsögn.
„Eftir þetta sótti ég um í allt öðruvísi
skóla. Ég fór til Kanada, komst inn í skóla
sem heitir Concordia og er í Montréal,“
segir Sunna sem lagði þar stund á nám í
grafískri hönnun.
„Það var í rauninni til að finna teikn-
ingunni einhvern stað. Ég tók líka kúrsa í
prentverki og bókagerð. Þetta er mjög
góður skóli og þarna fékk ég þennan stífa
ramma sem mig vantaði. Þetta var hollt
og gott og einmitt það sem ég þurfti,“ út-
skýrir hún.
„Ég áttaði mig á því að ég var ekki að
fara að einbeita mér að galleríum. Ég er
hrifnari af hugmyndum um fjölföldun, að
dreifa verkinu svo margir geti notið þess.
Og um leið þurfa ekki að vera andlitið á
bakvið verkið, einhver spennandi lista-
týpa, ég var ekki að upplifa mig þannig.
Mér fannst það þægileg tilhugsun að gefa
frá mér verk sem geta bara staðið fyrir
sínu.“
Sunna lærði að binda inn bækur og
dregur fram margar forvitnilegar bækur
sem hún gerði á námstímanum í Kanada.
Þar af er ein sérstaklega skemmtileg sem
er úr tré og í lögun eins og mannshöfuð.
Bækurnar eiga það sammerkt að bera ein-
kenni góðs handverks fremur en tölvu-
væðingar.
Reynir að gera allt í höndunum
„Ég fæ ekki neitt kikk út úr því að setja
upp hlutina. Ég er ekki það tölvuvædd. Ég
er dálítið gamaldags þrjósk með það, að ég
vil ekki nota tölvur of mikið. Ég teikna allt
í höndunum og reyni að gera allt í hönd-
unum. Ég nota ljósaborð í staðinn fyrir að
ljósrita, tölvan er alveg síðasta stoppið. Ég
er alveg hörð á þessu. Ég vil bara nota
hendurnar á mér. Ég trúi því að það sjáist,
það er einhver tilfinning sem fylgir því að
gera hluti í höndunum sem er ekki eins í
tölvunni.“
Eru ekki möguleikar í svona sérstökum
bókum núna mitt í tölvuvæðingunni?
„Ég held að það sé í gangi upprisa
handverksins almennt. Það er að mörgu
leyti skiljanlegt og rökrétt svar við tölvu-
væðingunni.“
Sunna var mjög ánægð með skólann í
Kanada en neyddist til að hætta eftir nám í
einn og hálfan vetur vegna hrunsins en
eins og allir vita jukust útgjöld náms-
manna í útlöndum um helming á einu
bretti.
„Svona er þetta bara. Það var erfitt að
koma heim, ég vissi ekki alveg hvað ég
ætti að gera. Eftir á að hyggja vil ég meina
að þetta hafi verið lán í óláni því eftir dá-
lítinn tíma hérna heima þá bauðst mér
þetta tækifæri með bókina hennar Guð-
rúnar Evu. Það hefði kannski ekki gerst ef
ég hefði ekki þurft að koma heim.“
Hún segir myndasögugerðina í Allt með
kossi vekur hafa í raun verið „algjört
draumaverkefni“.
„Guðrún Eva hafði heyrt um mig og
hringdi einn góðan veðurdag og útskýrði
að hún væri að leita að teiknara og hvort
ég hefði áhuga. Hún var með nokkra
teiknara í sigtinu sem fólk hafði verið að
benda henni á í tengslum við þetta verk-
efni. Ég bauð henni bara hingað yfir í kaffi
og kökur,“ segir Sunna en henni fannst
verkefnið strax hljóma spennandi.
„Ég stóð eftir þetta símtal og hugsaði,
vá, hvað þetta hljómar djúsí! Þetta er ná-
kvæmlega það sem mig langar að gera,“
segir Sunna sem hafði lesið bækur Guð-
rúnar Evu og verið hrifin af þeim.
„Ég hafði ekki tíma til að vera stressuð
áður en hún kom. Ég reif fram allar
skissubækurnar mínar. Ég var ekkert að
ritskoða þær heldur hugsaði, ef hún vill fá
mig í þetta verkefni á það að vera byggt á