SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Page 36
36 26. febrúar 2012
Á árum áður lagði oft ljúfansúkkulaðilm frá Hvannavöllum14 á Akureyri, þar sem EyþórTómasson og starfsmenn hans
framleiddu m.a. Lindu-buffið gómsæta.
Músíkgyðjunni var lengi sýnd lotning í
húsinu þar til Tónlistarskólinn á Akureyri
flutti í Hof fyrir nokkrum misserum og
angan af blómum gladdi nágranna og veg-
farendur þar til á síðasta ári að Býflugan og
blómið flutti.
Nú er Lindu-buffið kom heim, þó í öðru
formi sé en áður. Linda – steikhús er á
jarðhæðinni og tónlistarsalina uppi bjóða
Júlía og Birgir fyrir veislur.
Júlía, sem er formaður Klúbbs mat-
reiðslumeistara á Norðurlandi, hefur lengi
verið í faginu. Aðeins 17 ára fór hún sem
eldabuska að Ástjörn í Kelduhverfi þar sem
Bogi heitinn Pétursson rak áratugum sam-
an sumarbúðir fyrir drengi, og þangað hef-
ur hún reyndar farið á hverju sumri síðan
til þess að elda.
„Það má segja að ég hafi unnið við mat-
reiðslu síðan og fór einmitt að læra árið eft-
ir að ég var fyrst á Ástjörn,“ segir hún við
Sunnudagsmoggann.
Hjónin hafa komið víða við; rekið
skemmtistað, kaffihús og sportbar, og
Birgir starfaði árum saman í Sjallanum. Þau
hafa lengi rekið veisluþjónustu, og gera
enn, enda nóg að gera á þeim vettvangi.
„Fólk hættir aldrei að gifta sig, skíra,
ferma og útskrifa; breytingin síðustu ár er
að fleiri veislur eru í heimahúsum og þær
eru minni, en fólk vill samt gera þetta vel,“
segir Júlía.
Draumurinn um að setja á fót eigið steik-
hús var alltaf fyrir hendi. „Við byrjuðum að
hugsa um þetta af alvöru fyrir einu og hálfu
ári,“ segir Birgir. Til stóð að kaupa
veitingahús í rekstri en ekkert varð úr og
húsnæðið við Hvannavelli kom upp í
hendurnar á þeim.
Eftir að starfsemi Lindu var flutt suður
var Nói-Síríus í húsnæðinu um tíma, síðan
var Byko með timburgeymslu á jarðhæð-
inni og loks blómabúðin sem áður var
nefnd. Hjónin segjast hafa þurft að taka
húsnæðið gríðarlega í gegn. „Við unnum
þetta að miklu leyti sjálf og verkið tók því
lengri tíma en við ætluðum okkur. Til stóð
að opna í fyrrasumar en það tókst ekki fyrr
en í lok september,“ segir Júlía.
Þrátt fyrir að hafa misst af viðskiptum
sumarsins eru þau ánægð. „Það kemur
alltaf annað sumar,“ segir Júlía brosandi.
„Veturinn hefur verið góður að janúar
undanskildum, sem var mjög rólegur eins
og víða annars staðar,“ segir Birgir og Júlía
segir þau gríðarlega ánægð með móttök-
urnar. „Héðan fara allir ánægðir út og það
skiptir okkur mestu máli.
Haft hefur verið á orði að ótrúlega marg-
ir góðir veitingastaðir séu á Akureyri miðað
við stærð samfélagsins. „Það er mikill
metnaður í veitingageiranum á Akureyri.
Allir kokkar og aðrir viðriðnir bransann
sem hingað koma tala um hve metnaður-
inn er mikill. Samkeppnin er vissulega
mikil, en hún er alltaf af hinu góða. Sam-
keppnin er nauðsynleg því hún heldur
mönnum á tánum. Og þess vegna eru stað-
irnir góðir. Útlendingar tala stundum um
það að á Akureyri séu ekki einu sinni léleg-
ar sjoppur!“ segir Júlía.
Sérstaða Lindu – steikhúss felst í því að
allir aðalréttir eru eldaðir á kolagrilli; hvort
sem er fiskur eða kjöt, fyrir utan kótelettur
í raspi reyndar, sem steiktar eru upp úr
smjöri á gamla mátann og hafa slegið í
gegn. „Margir verða undrandi að sjá þær á
seðlinum og standast ekki mátið! Hingað
kom eitt kvöldið í mat kótelettuklúbbur
bæjarins og það var gaman að gefa þeim
körlum að borða!“
Júlía gefur þrjár uppskriftir hér á síð-
unni, m.a. að t-bone-steik sem er á mat-
seðlinum og hún er stolt af, ekki síður en
frægasta réttinum, Lindu-buffinu. Þau
nota bara lund í alla nautakjötsréttina
(nema t-bone-steikina auðvitað, sem er
bæði lund og fillet) og í buffið er notaður
besti hluti lundarinnar.
Þau nefna að frá því í ársbyrjun hafi börn
12 ára og yngri í fylgd með fullorðnum
fengið frítt að borða af barnamatseðli og
segja hjónin það hafa komið skemmtilega á
óvart að mun meira fari af svínasteik og
fiskbollum en samlokum og hamborgur-
um. „Það er misskilningur að krakkar vilji
ekki borða venjulegan mat,“ segir Júlía.Bjóða buff! Hjónin Birgir Eyfjörð Torfason og Júlía Skarphéðinsdóttir, eigendur steikhússins.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Lindubuffið
komið heim
Hjónin Júlía Skarphéðinsdóttir og Birgir Eyfjörð
Torfason hafa lengi verið í veitingabransanum.
Í haust létu þau gamlan draum rætast og opnuðu
steikhús í gamla Lindu-húsinu á Akureyri.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Júlía í eldhúsi Lindu – steikhúss. Þar ræður þessi margreyndi matreiðslumaður ríkjum.
Matur
1 hluti salt
1 hluti sykur
2 hlutar grænt dill
Blandað saman og laxaflakið hulið með
blöndunni, strá svo yfir það eftirtöldu:
dillfræjum
muldum pipar
sinnepsfræjum
1 msk. ólífuolíu á hvert flak
Svo er endalaust hægt að leika sér með
hvaða bragð á að standa upp úr, bara sjá
hvað er til í kryddhillunni eða ísskápnum.
Hefðbundin graflaxsósa með
majónes eða sýrður rjómi
sætt og sterkt sinnep
hunang
dill
Sinneps-vinaigrette
er líka góð með laxi
góð olía
sætt sinnep
balsamic-edik
dill
Allt saman í matvinnsluvél.
Laukur, blaðlaukur og hvítlaukur
saxaðir smátt og settir saman við
dressinguna.
Heimalagaður
graflax