SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Qupperneq 42

SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Qupperneq 42
42 26. febrúar 2012 Á tyllidögum tölum við ummenningararfinn og mik-ilvægi hans. Oft er átt við þauverðmæti sem felast í gömlum skræðum. Stundum er átt við hluti sem geymdir eru á Þjóðminjasafninu. Það þykir mikilvægt að við glötum ekki tengslum við fortíðina því án hennar eigum við erfiðara með að átta okkur á nútímanum og getum verr spáð um framtíðina. Fortíðin geti nefnilega ekki bara sagt okkur til um hvernig hlutirnir voru heldur líka hvernig og hvers vegna þeir eru eins og þeir eru og í besta falli hvernig ætla má að þeir verði ef engu er breytt. Gömul kvæði og sögur gefa okkur dýrmætar upplýsingar um hugmyndir forforeldra okkar um lífið og tilveruna. Gera verður ráð fyrir því að það sem er sagt og skrifað núna verði seinna talið menningararfur. Það sem skrifað er gefi mynd af því hvaða hugmyndir við höfum um lífið og tilveruna. Væntanlega verður það sem gefið hefur verið út nokkuð að- gengilegt, að minnsta kosti ekki síður aðgengilegt en þau handrit, skinn og pappírs, sem geyma þann menningararf sem við eigum. Ólíkt forforeldrum okkar höfum við ekki bara möguleika á að safna og varðveita ritað efni heldur get- um við líka safnað því sem sagt er og þannig geta upplýsingarnar gefið fyllri mynd af hugmyndum okkar um lífið, til- veruna og samferðarmenn okkar. Slík söfnun er þegar hafin. Á dögunum sat ég fyrirlestur Bryndísar Björgvins- dóttur, þjóðfræðings, þar sem hún talaði um brandara. Í fyrirlestrinum kom fram að um nokkurra ára skeið hafa þjóðfræð- ingar og þjóðfræðinemar safnað saman bröndurum sem fólk segir og skráð þá og ýmislegt sem máli skiptir í tengslum við brandarana. Þar má nefna hver segir brandarann, við hverja brandarinn er sagður og í hvaða samhengi, en allt skiptir þetta máli. Fyrirlestur Bryndísar bar heitið „Af hverju eru konur með fætur?“ og í hon- um fékkst svarið: „Svo að það komi ekki slímrendur í parketið.“ Ef þér þótti þessi brandari fyndinn, kæri lesandi, ættir þú ef til vill að velta því fyrir þér hvað hann segir um þig og hvaða ályktanir komandi kynslóðir geta dregið af hugmyndum þínum um konur. Í máli Bryndísar kom einnig fram að í 650 brandara safni er ekki dæmi um brandara um konu þar sem kynferði hennar er ekki hluti brandarans. Þannig eru konur í brönd- urum ekki í öðrum hlutverkum en þeim sem þær einar geta sinnt eða almennt er talið hluti af kvenlegum eiginleikum. Í bröndurum þar sem konur eru í aðal- hlutverki er sem sagt algengt að sjónum sé beint að brjóstum þeirra og píkum og eiginleikum eins og að ganga með og ala börn. Annar brandari sem finna má í brand- arasafninu og Bryndís gerði að umtals- efni hljómar svona: „Hvað þarf marga svertingja til að skúra fótboltavöll?“ og svarið var: „Engan, þetta er kvenmanns- verk.“ Ef þér fannst þessi góður ættir þú að spá í hvað þér fannst fyndið og hvað það segir um hugmyndir þínar. Í máli Bryndísar kom fram að það sem virðist vera rasistabrandari reynist vera karl- rembuhúmor. Brandarinn opinberar líka þær hugmyndir að svertingjar hljóti að vera karlar. Það er sama heilkenni og við þekkjum úr Hafnfirðingabröndurum og svo sem flestum bröndurum sem taka ekki fram að um konu sé að ræða. Þú ættir að gamni að renna yfir nokkra brandara í huganum og kanna hvernig þessu er háttað í þínum kolli. Brandarar, húmor og háð geta verið sterkt vopn í baráttu fyrir betri heimi. En geta líka ýtt undir óþolandi staðalmyndir sem eiga ekki við neitt að styðjast nema úreltar hugmyndir og fordóma. Hugsaðu þig um áður en þú segir einn laufléttan um ljóskuna eða konuna með fæturna. Það sem þú segir mun lifa þig og kom- andi kynslóðir munu draga þær ályktanir að þú hafir verið rotin karlremba sem ekki sé nokkurt mark takandi á. Menningararfur framtíðar ’ Brandarar, húmor og háð geta verið sterkt vopn í baráttu fyrir betri heimi. En geta líka ýtt undir óþolandi staðal- ímyndir sem eiga ekki við neitt að styðjast nema úr- eltar hugmyndir og for- dóma. Málið El ín Es th er „Ég er bestur, LOL“? Ég er að safna saman merkilegum ummælum eftir mig, sem heimildum fyrir þjóðfræðinga framtíðarinnar. Hvað ert þú að gera, Pedró minn? Tungutak Halldóra Björt Ewen hew@mh.is Ég hafði glatað ánægjunni af þvíað syngja og valdi því að takamér ótímabundið hlé. Núna finnég hins vegar að mér er aftur farið að finnast gaman að syngja. Ég hef þó engin plön um að snúa mér aftur alfar- ið að atvinnumennsku á sömu forsendu og áður þar sem ég vil ekki neyðast til að taka verkefni til þess eins að eiga fyrir salti í grautinn. Þannig tek ég aðeins að mér þau söngverkefni sem mér finnast spennandi og vel því að sinna söngnum á forsendum ástríðunnar,“ segir Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari. Seinni hluta árs 2010 kom hann fram á sínum síðustu opinberu söngtónleikum og hugðist í framhaldinu snúa sér alfarið að öðru, en hins vegar höguðu örlögin því þannig að söngáhuginn sem vikið hafði um stund kom aftur af fullum þunga og þar með hætti Gunnar við að hætta. „Þegar ég tók mér frí frá söngnum var ég alls ekki viss um að ég myndi snúa aftur. Ég var búinn að syngja svo lengi eða í tæpan aldarfjórðung, því ég byrjaði í at- vinnumennsku aðeins rétt rúmlega tví- tugur, raunar áður en ég hafði lokið form- legu námi. Það var því komin í mig þreyta, sem ég áttaði mig ekki fyllilega á fyrr en ég var alveg hættur. Þá gerði ég mér grein fyrir því hvað ég var orðinn þreyttur á bransanum, álaginu, stöðugum ferðalögum og því hvað þetta getur verið hæðóttur bransi þar sem allt gengur eins og í sögu einn daginn á meðan allt er í hers höndum þann næsta,“ rifjar Gunnar upp. Gat ekki meira fjárhagslega Spurður hvort hann hafi verið alveg sátt- ur við að hætta á sínum tíma svarar Gunnar því játandi. „Það reyndist mér al- veg ótrúlega auðvelt að hætta að syngja og í raun kann ég enga skýringu á því aðra en að ég hafi verið orðinn saddur í ákveðnum skilningi. Kannski var líka komin í mig ákveðin kergja af því að mér fannst hlut- irnir ekki ganga eins og mér fannst að þeir ættu að ganga,“ segir Gunnar og vísar þar til þess að stuttu áður en hann hætti að syngja skipti hann um raddfag. „Ég var búinn að fara í gegnum mjög langan og farsælan feril sem lýrískur tenór og skipti síðan yfir í hetjutenór eða dramatískan tenór. Það tók dálítinn tíma og hafði í för með sér nokkurn kostnað. Ég fékk góð viðbrögð við skiptunum, þannig fékk ég sem dæmi jákvæðustu gagnrýni á öllum mínum ferli fyrir hlutverk Hüons í óp- erunni Oberon eftir Weber sem ég söng í Freiburg haustið 2009, en þá var ég farinn að syngja hetjutenór. Þrátt fyrir þetta gekk ekkert upp, ég komst ekki að í stærri óperuhúsum. Ég fann að ég var á réttri leið hvað varðaði röddina en ég gat ekki meira fjárhagslega. Ég var stöðugt að syngja fyrir og var yf- irleitt í hópi topp þriggja, en á endanum var alltaf einhver annar valinn sem var með aðeins meiri reynslu sem hetjutenór en ég. Þegar þarna var komið sá ég aðeins fram á að geta fengið fastráðningu, en það hefði þýtt að ég hefði farið á hausinn, enda ekki hægt að reka tvö heimili og sjá fyrir fjölskyldu með þremur börnum á þeim tekjum sem bjóðast með fastráðn- ingu. Ég tók mér því góðan umhugs- unartíma og komst að þeirri niðurstöðu að þetta væri orðið gott og best að snúa sér að öðru, m.a. að sinna meistaranám- inu við Háskólann á Bifröst í menningar- stjórnun sem ég var þá byrjaður í og snúa mér af krafti að blaðamennskunni,“ segir Gunnar og vísar þar til menningarskrifa sinna á netinu við góðan orðstír, fyrst undir merkjum Menningarpressunnar og síðar undir Smugumenningu. Samhliða þessu hefur Gunnar einnig kennt söng í hlutastarfi auk þess að taka að sér skammtímaverkefni eins að halda utan um óperusýningadeild við Söngskóla Sig- urðar Demetz. Söngáhuginn logaði ennþá En hvað fékk Gunnar til að hætta við að hætta? „Fyrir tveimur árum var ég beðinn að syngja einsöngshlutverkið í Requiem eftir Dvorak á tónleikum með Sinfón- íuhljómsveit Gautaborgar í nóvember 2011. Þegar ég í millitíðinni ákvað að hætta ótímabundið ákvað ég að sjá til með þetta verkefni og gefa það ekki frá mér nema með tveggja mánaða fyrirvara, sem væri nógur tími fyrir skipuleggjendur til að finna annan söngvara í staðinn fyrir mig ef ég kæmist að þeirri niðurstöðu að ég væri alveg endanlega hættur í þessum bransa. Síðla sumars árið 2011 ákvað ég að byrja aftur að syngja og tékka á röddinni og þá áttaði ég mig á því að það logaði ennþá einhver söngáhugi í mér. Einnig fann ég að ég hafði haft gott af því að þegja, því það var eins og ákveðnir hlutir í röddinni hefðu náð að setjast betur, t.d. í sambandi við það að syngja veikt, nokkuð sem margir töldu mitt aðalsmerki sem lýrískur tenór. Þegar ég var að skipta úr lýrískum tenór yfir í dramatískan fann ég t.d. að íslensku sönglögin sem alltaf höfðu legið svo vel fyrir mér gerðu það ekki lengur. Eftir þessa löngu hvíld fann ég að ég gat mun betur en áður brúað bilið á milli þessara tveggja raddstíla, sem var Söngurinn á forsendum ástríðunnar Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari hugðist leggja sönginn alfarið á hilluna fyrir tæpu hálfu öðru ári og snúa sér að öðru. Söngáhuginn kom hins vegar aftur af fullum þunga og því ákvað hann að hætta við að hætta. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Lesbók

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.