SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Page 45
D
anski rithöfundurinn
Jussi Adler-Olsen
hefur verið hlaðinn
lofi upp á síðkastið. Í
fyrra fékk hann viðurkenn-
inguna Gullna lárviðarlaufið
fyrir bókina Journal 64 og í
hittifyrra tvenn verðlaun, nor-
ræna Glerlykilinn og Harald
Mogensen-verðlaunin, fyrir
Flaskepost fra P. Báðar þessar
bækur fjalla um deild Q innan
dönsku lögreglunnar líkt og
bókin Veiðimennirnir, sem hér
er til umfjöllunar og er önnur
bókin í flokknum. Sú fyrsta,
Konan í búrinu, kom út á ís-
lensku í fyrra.
Í Veiðimönnunum berst 20
ára gamalt mál inn á borð Carls
Mørcks, yfirmanns deildar Q,
sem reyndar er ekki fjölmenn-
ari en svo að hann hefur einn
aðstoðarmann og ritara sér til
fulltingis. Málið snerist um
hrottalegt morð á systkinum í
sumarbústað og virðist hafa
verið leyst því að piltur einn
játaði á sig verknaðinn og var
settur í fangelsi. Ýmislegt
bendir þó til að ekki sé allt sem
sýnist og á ferðinni hafi verið
klíka, sem varð til í skóla og
kastaði frá sér öllum viðmiðum
siðferðis og samvisku.
Fyrir fimmtíu árum kom út
bókin A Clockwork Orange
eftir Anthony Burgess um hinn
siðblinda táning Alex, sem
ásamt vinum sínum lifði fyrir
handahófskennt, taumlaust
ofbeldi. Stanley Kubrick gerði
1971 samnefnda mynd eftir
bókinni. Adler-Olsen býr til
tengingu milli klíkunnar með
því að láta hana horfa á mynd
Kubricks við hvert tækifæri.
Ólíkt Burgess í framtíðarsýn
sinni er Adler-Olsen ekki að
velta fyrir sér illsku, siðblindu,
heilaþvotti, betrun og tví-
skinnungi samfélagsins. Hann
er einfaldlega að skrifa glæpa-
sögu og þar er hann í essinu
sínu.
Lögregluforinginn Mørck
ber nafn með rentu þar sem
hann ráfar um í myrkri. Flest
gengur á móti honum, einka-
lífið snautt og deildinni hans
holað niður í skúmaskoti í
kjallara með samstarfsfólki,
sem hann veit ekki alveg hvar
hann hefur og á erfitt með að
meta að verðleikum vegna
þess hvað það fer í taugarnar á
honum. Honum er þó ekki alls
varnað í starfi og er naskur
þrátt fyrir lánleysið, sem gæðir
bókina húmor, sem verður til
að létta lesturinn þegar
óþverrinn er að ná yfirhönd-
inni.
Í þessari veiðisögu eru allir í
tveimur hlutverkum, þeir eru
bæði veiðimenn og bráð og þar
liggur grunnurinn að þessum
ágæta reyfara.
Dýrslegir glæpir
í Danaveldi
Danski reyfarahöfundurinn Jussi Adler-Olsen fer mikinn um þessar mund-
ir og njóta bækur hans um Carl Mørck nokkurra vinsælda.
Bækur
Frá deild Q:
Veiðimennirnir
bbbnn
Jussi Adler-Olsen
Hilmar Hilmarsson þýddi,
Vaka-Helgafell
Karl Blöndal
26. febrúar 2012 45
Bók nýrra tíma
Í árdaga rafbókanna töldu menn að þar
væri komið nýtt snið bóka. Í stað þess að
þær væru bara stafir á blaði yrðu þær
gagnvirkar, myndu steypa saman sögu,
hreyfingu og hljóði sem lesandinn gæti
stýrt eftir eigin höfði, ákveðið fram-
vindu, tekið útúrdúra og upplifað í fleiri
víddum. Þrátt fyrir talsverða tilrauna-
starfsemi hefur þó ekki bólað á slíkum
bókum fyrr en nú að spjaldtölvan gefur
nýja möguleika. Það sannast á rafbókinni
The Fantastic Flying Books of Mr. Morris
Lessmore eftir William Joyce sem er í
senn barnasaga, eins konar tölvuleikur
og teiknimynd.
The Fantastic Flying Books of Mr.
Morris Lessmore segir frá rithöfund-
inum Morris Lessmore sem hrifinn er af
fellibyl þar sem hann situr við skriftir.
Vindurinn ber hann til lands þar sem allt
er fullt af flögrandi sögum og Lessmore
tekur til við að nýta sér orðin sem svífa
um loftið til að fylla bók sína.
Hægt er að láta rafbókina segja söguna,
en líka getur lesandinn verið með, smellt
á tiltekna staði á skjánum, leyst þrautir,
teiknað, spilað á píanó, leikið sér með
mat og haft áhrif á framvinduna eða horft
á söguna eins og teiknimynd. Sú teikni-
mynd, sem er fimmtán mínútur, var ein-
mitt tilnefnd til Óskarsverðlaunanna í
flokki stuttmynda. Þess má geta að Willi-
am Joyce er fyrrverandi starfsmaður hjá
Pixar og margverðlaunaður fyrir starf sitt
að sjónvarpsþáttum. Hann hefur mynd-
skreytt og samið á sjötta tug bóka og
leikstýrt teiknimyndum.Söguhetjan Morris Lessmore.
Verið
velkomin
LISTASAFN ÍSLANDS
Söfn • Setur • Sýningar
RÚRÍ
YFIRLITSSÝNING
3.3. - 6.5. 2012
Sýningin opnar fyrir almenning
laugardaginn 3. mars kl. 11.
SÚPUBARINN, 2. hæð.
Hollt og gott allan daginn!
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600,
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga.
Allir velkomnir! www.listasafn.is
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ
Þúsund ár - fjölbreytt verk úr safneign Listasafns Íslands
frá 19. öld til nútímans. Fyrsti áfangi nýrrar grunnsýningar
um þróun íslenskrar myndlistar.
„Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“
Sýning um æsku og lífsstarf þjóðhetjunnar,
undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar.
Sýningin höfðar sérstaklega til barna og ungs fólks á skólaaldri.
Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna.
Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir.
Listsýning Eddu Heiðrúnar Backman.
Munnmáluð vatnslitaverk og olíumálverk.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík
Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is
Listasafn Reykjanesbæjar
Á BÓNDADAG
– A Farmer´s Day Feast
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
20. janúar– 18. mars
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Bátasafn Gríms Karlssonar
Opið virka daga 12.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Sunnudagsleiðsögn 26. febrúar kl. 14:00:
Harpa Árnadóttir leiðir gesti um sýninguna
Handaverk frú Magneu Þorkelsdóttur
Fjölbreyttar sýningar:
Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu
TÍZKA – kjólar og korselett
Handaverk frú Magneu Þorkelsdóttur
Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár
Spennandi safnbúð og Kaffitár
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið þriðjudaga-sunnudaga kl. 11-17. Lokað á mánudögum
Kyrralíf
Sýning á kyrralífsmyndum
eftir íslenska listamenn
Undanfari
Sigurður Guðjónsson
Fimmtudagskvöld 1. mars kl. 20
Listamannsspjall
- Sigurður Guðjónsson
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is sími 585 5790
- Aðgangur ókeypis
10. febrúar til 4. mars 2012
Systrasögur
Tvíhent á striga
Sara og Svanhildur
Vilbergsdætur
Opið 13-17, nema mánudaga.
Freyjugötu 41, 101 Rvk
www.listasafnasi.is
Aðgangur ókeypis.
LISTASAFN ASÍ
SJÁLFSAGÐIR HLUTIR
(10.2.- 20.5. 2012)
HLUTIRNIR OKKAR
(9.6.2011 – 4.3.2012)
Opið alla daga
nema mán. kl. 12-17.
Verslunin KRAUM í anddyri.
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
ÁSJÓNA
Verk úr safneign
Viltu teikna?
---
Pappírsævintýraheimur
Baniprosonno
---
Kaffistofa – Leskró – Barnakró
Opið fim.-sun. Kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
Hveragerði