Morgunblaðið - 01.03.2012, Page 2

Morgunblaðið - 01.03.2012, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Óvenjulegur lægðafjöldi hefur ein- kennt veðrið síðustu vikur með til- heyrandi umhleypingum. Það skilaði sér í góðum meðalhita febrúar- mánaðar með mikilli úrkomu. Vetur- inn er þó ekki búinn og framundan er marsmánuður sem sjöunda hvert ár að meðaltali er kaldasti mánuður ársins. Samkvæmt upplýsingum Trausta Jónssonar veðurfræðings var með- alhitinn fyrstu 28 dagana í febrúar 2,6 stig í Reykjavík eða 2,3 stigum yfir meðallaginu 1961-1990. Frá 1870 er mánuðurinn í áttunda sæti í Reykjavík, en langhlýjast var í febr- úar 1932 þegar meðalhitinn var fimm stig. Mjög hlýtt var einnig í febrúar 1945 og svo 2006, en þá var meðalhit- inn 3,3 stig. Hlaupársdagurinn var heldur svalari en mánuðurinn í heild, en ekki er útlit fyrir að hann dragi mánuðinn langt niður. Í nýliðnum febrúar var meðalhit- inn á Akureyri 2,3 stig og mánuður- inn sá fimmti hlýjasti frá upphafi mælinga þar árið 1882. Eins og í Reykjavík var hlýjast í febrúar 1932. Trausti segir að undanfarið hafi verið óvenjumiklir umhleypingar og óvenjumargar lægðir. Þessu hafi fylgt mikil úrkoma eða í kringum 130 millimetrar í febrúar sem sé nálægt tvöfaldri meðalúrkomu. Á Akureyri hafi úrkoman verið nálægt með- allagi. Bændur hefðu kannski kvartað vegna áfreða og bleytu „Hins vegar hafa veður ekki verið neitt óskaplega vond síðustu vikur og sjaldan hvesst að ráði á öllu land- inu í einu,“ segir Trausti. „Ég hugsa að flestir séu fegnir að vera lausir við klakann sem var yfir öllu í desember og fram í janúar. Raunverulegur stór kuldakafli stóð ekki nema í rúmlega hálfan mánuð frá lokum nóvember og fram í desember. Síðan kom ann- ar kafli frá þeim tíma lengi fram eftir janúar þar sem hiti var nálægt með- allagi og reyndar marði janúar með- allagið. Síðan tók þessi hlýi kafli við. Langvinnir umhleypingar geta þó einnig haft ýmsa erfiðleika í för með sér. Þeir sem eru með hesta á úti- göngu eru ekki hrifnir af því þegar bleytir og frýs til skiptis í langan tíma. Áður fyrr hefðu bændur kannski kvartað um áfreða og bleytu og sjálfsagt er full ástæða til að hafa áhyggjur af kali í vor,“ segir Trausti. Morgunblaðið/Ómar Leiðindi Umhleypingar falla hrossum ekki vel í geð og það fór ekki á milli mála við hesthúsin í Víðidal í gær. Fjöldi lægða í hlýjum og blautum febrúar  Marsmánuður sjöunda hvert ár kaldasti mánuður ársins Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Morten Jung, yfirmaður Íslands- mála á stækkunarskrifstofu Evr- ópusambandsins í Brussel, segir ómögulegt að spá um það hvenær hægt verði að ljúka aðild- arviðræðum Íslands og ESB. Hann sagði á fundi á Akureyri í gær stefnt að því að opna alla kafla í samningsviðræðunum á þessu ári. Jung kom fram ásamt Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi, á opnum fundi sem haldinn var af Evrópustofu, upplýsingamiðstöð ESB á Íslandi; þeim fyrsta í röð funda sem verða víðs vegar um land á næstunni. Þeir lögðu áherslu á, sem og Birna Þórarins- dóttir, framkvæmdastýra Evr- ópustofu, að ekki stæði til að hafa áhrif á umræðuna, heldur hvetja til hennar og veita hlutlægar upplýs- ingar. Einn fundarmanna spurði hvers vegna ekki væri drifið í því að ræða fyrst um sjávarútvegs- og landbúnaðarmál, sem allir vissu að yrðu erfiðustu þættirnir. Sendi- herrann sagði nauðsynlega heima- vinnu nú standa yfir beggja vegna borðsins og ekki væri vitað hvenær henni lyki. Hann benti á að sjáv- arútvegsstefna ESB væri í endur- skoðun og því væri ekki vitað hvernig hún yrði á næstum árum. „Það verður auðveldara að ræða málin þegar við vitum hvernig um- hverfið í sjávarútvegi [í ESB] verð- ur í framtíðinni.“ Stefnt á að opna alla kafla á árinu  Óvíst hvenær viðræðum við ESB lýkur Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson ESB Morten Jung, yfirmaður Ís- landsmála, á fundinum á Akureyri. Hólmfríður Gísladóttir Anna Lilja Þórisdóttir Skúli Bjarnason, lögmaður Gunn- ars Þ. Andersen, forstjóra Fjár- málaeftirlitsins, hefur fyrir hönd umbjóðanda síns farið fram á að stjórn FME svari því fyrir kl. 16 í dag hvort hún muni ekki þegar í stað fella niður „hið löglausa upp- sagnarferli,“ eins og segir í bréfi Skúla til stjórnarinnar. Þar segir að réttindi Gunnars sem embættismanns hafi verið virt að vettugi í yfirstandandi brott- rekstrarferli en Oddný G. Harð- ardóttir fjármálaráðherra staðfesti í gær að Gunnar hefði réttarstöðu embættismanns. „Umbjóðandi minn lítur það að sjálfsögðu mjög alvarlegum augum að lög hafa verið brotin á honum með þessum hætti og mun hann kalla menn til ábyrgðar á því,“ segir einnig í bréfinu. Gunnar hafði krafist þess að ráðherrann úrskurðaði um réttar- stöðu hans, þannig að enginn vafi léki á því hvort hann félli undir lög um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins vegna fyrirhugaðr- ar uppsagnar hans. Skúli segir uppsagnarferlinu sjálfhætt eftir úrskurðinn og fær ekki séð að hægt verði að halda uppsögninni til streitu. „Þá þyrftu þeir að fara í eitt- hvert áminningaferli og það þyrfti að víkja honum til hliðar í ein- hvern tíma, kannski hálft ár, á meðan fagleg rannsóknarnefnd á vegum fjármálaráðherra færi yfir það hvort lögmætar ástæður lægju að baki uppsögn. En það er auðvit- að alls ekki þannig. Maðurinn hef- ur ekkert brotið af sér,“ segir Skúli. Aðalsteinn Leifsson, formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins, vildi ekki tjá sig í gær um hvaða áhrif ákvörðun ráðherra hefði á vinnslu málsins hjá stjórninni en sagðist harma að málið væri orðið jafn stór hluti af opinberri umræðu og raun bæri vitni. Krefst svara fyrir kl. 16  Vill að stjórnin svari því umsvifalaust hvort hún hyggist halda uppsögninni til streitu  Mun kalla menn til ábyrgðar  Gunnar embættismaður, segir ráðherra Á veðurbloggi Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings kemur fram að í Reykjavík hafi aðeins einn sólarhringur verið úrkomulaus fyrstu 28 dag- ana í febrúar í ár, hinn 18. Hann segir að í Reykjavík láti nærri að ríflega þriðjungur ætlaðrar meðalúrkomu ársins sé þegar fallinn. „Ég er fyrir löngu búinn að missa töluna á öllum þeim hraðfara lægð- um sem verið hafa hér á sveimi síðustu vikurnar og þeim fjölmörgu úr- komusvæðum sem skotist hafa norðaustur yfir landið,“ skrifar Einar. Búast má við að svalt verði í dag, fyrsta dag marsmánaðar, en síðan hlýni aftur. Samkvæmt meðaltalinu er janúar kaldasti mánuður ársins og síðan desember, febrúar og mars og lítill munur á þessum mánuðum samkvæmt meðaltalinu. Einn sólarhringur án úrkomu BÚINN AÐ MISSA TÖLUNA Á LÆGÐUNUM Fjármálaráðherra byggir úrskurð sinn á því að embætti forstjóra FME var birt á forstöðu- mannalista ráðherra í Lögbirt- ingablaðinu 27. janúar 1999 en skv. 2. mgr. 22. gr. laga nr. 70/ 1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins skal ráð- herra skera úr um hvaða starfsmenn teljist forstöðumenn rík- isstofnana og rík- isfyrirtækja, og þ.a.l. embættismenn, og birta yfir þá lista í Lögbirtinga- blaðinu. Rök ráðherra EMBÆTTISMAÐUR Gunnars Þ. Andersen Hjörtur J. Guðmundsson hjorturj@mbl.is „Ráðningarsamningurinn gerir ráð fyrir því að ef bæjarstjórinn hætti á miðju kjörtímabilinu af einhverri svona ástæðu fái hann biðlaun í 12 mánuði eða fari í sitt fyrra starf eða sambærilegt starf. En alls ekki hvort tveggja,“ segir Hafsteinn Karlsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, um samning um starfslok Guðrúnar Páls- dóttur, fyrrverandi bæjarstjóra Kópavogs. Samkvæmt starfslokasamningi verður Guðrún á bæjarstjóralaunum í ár frá 1. apríl næstkomandi en hún er í veikindaleyfi fram að þeim tíma. Þá er gert ráð fyrir að laun hennar hækki aftur í tímann um 7,5% í fjóra mánuði og er þar miðað við leiðréttingu á þingfararkaupi þingmanna vegna lækkunar á launum þeirra 2008. Hinn 1. september er gert ráð fyrir að Guð- rún taki við sviðsstjórastarfi hjá Kópavogsbæ og segir Hafsteinn að þar sé um að ræða starf sviðsstjóra tómstunda- og menningarsviðs sem hún gegndi áður en hún tók við bæj- arstjórastarfinu. Þá er gert ráð fyr- ir að ótekið orlof frá 2007 verði gert upp og greitt út á morgun í ein- greiðslu sem nem- ur samtals 77 dög- um en Hafsteinn segir að ein- greiðslan hljóði upp á 4,5 milljónir króna auk launatengdra gjalda. „Munurinn á ráðningarsamningn- um og þessu er 13-14 milljónir, sem er bara kostnaðarauki fyrir bæinn,“ seg- ir Hafsteinn. Fréttastofa Rúv sagði frá því í gær- kvöldi að Ármann Kr. Ólafsson, nú- verandi bæjarstjóri, hefði sagt í svari við fyrirspurn Ólafs Þórs Gunnars- sonar, bæjarfulltrúa Vinstri grænna, að samningurinn myndi ekki leiða til aukins kostnaðar umfram ákvæði ráðningarsamningsins. Hins vegar kæmi til vinnuframlag frá Guðrúnu á móti, sem næmi alls 9 milljónum króna og því mætti segja að sparn- aður bæjarins næmi þeirri upphæð. Biðlaun eða sama starf en ekki bæði  Gagnrýna starfslok bæjarstjórans Hafsteinn Karlsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.