Morgunblaðið - 01.03.2012, Page 16

Morgunblaðið - 01.03.2012, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2012 ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Rólegt var í húsakynnum Mennta- skólans á Akureyri í gær. Ekki var frídagur, heldur var, skv. sam- komulagi, starfs- og hugleiðing- ardagur starfsmanna og nem- enda …    Samkvæmt venju söfnuðust nemendur saman framan við skrif- stofu skólameistara að morgni 28. febrúar og sungu og í framhaldi þess gerðu meistari og nemendur „með sér samkomulag sem byggist á skjali sem varðveitt hefur verið inn- rammað á skrifstofu aðstoð- arskólameistara frá árinu 1984,“ eins og segir á heimasíðu MA.    Á skjalinu segir að 29. febrúar sé „inn á almanak settur mönnum til hvíldar frá dagsins önn og því til þess fallinn að staldra við, líta yfir farinn veg, huga að ókominni tíð og aðgæta hvort um megi bæta á vorri framtíðarbraut“.    Von er á fimm þúsundasta gest- inum á Gulleyjuna, samstarfsverk- efni Leikfélags Akureyrar og Borg- arleikhússins, sem nú er á fjölunum í gamla Samkomuhúsinu. Hann verð- ur leystur út með gjöfum og LA hvetur fólk til þess að flagga sjóræn- ingjafána í tilefni dagsins eins og margir gerðu frumsýningarhelgina.    Uppselt hefur verið á allar sýn- ingar á Gulleyjunni til þessa og jafn- an mikið fjör í salnum. Sumir yngri áhorfenda lifa sig vel inn í leikritið, til dæmis ung stúlka um daginn; þegar byssu var beint að sjóræningj- anum Langa-Jóni Silvur var hún greinilega búin að fá sig fullsadda af klækjum þess mikla refs, og hvatti byssumanninn til dáða: „Skjótt’ann! Skjótt’ann!“ hrópaði sú stutta.    Núna um helgina mætir Leik- félag Reykjavíkur norður og byrjar að sýna farsann Nei, ráðherra! í menningarhúsinu Hofi.    Sjaldan er ein báran stök á þeim bænum, því um aðra helgi verður Ís- lenski dansflokkurinn í Hofi og býð- ur upp á tvær gjörólíkar sýningar; annars vegar Grossstadtsafari eftir Norðmanninn Jö Strömgren og hins vegar Mínus 16 eftir rokkstjörnu dansheimsins, eins og Ohad Naharin er kallaður.    Dagur tónlistarskólanna var haldinn hátíðlegur víða um land fyrir skömmu, en þá var vetrarfrí í Tón- listarskólanum á Akureyri svo hátíð- in fer fram þar á bæ á laugardaginn í Hofi. Dagskrá hefst kl. 10 og lýkur ekki fyrr en síðdegis.    Íþróttafólk tekur daginn oft snemma og eru sundmenn t.d. fræg- ir fyrir það. Hópur ungs knatt- spyrnufólks úr KA og Þór, í nýstofn- aðri Knattspyrnuakademíu Norðurlands sem félögin komu á fót í sameiningu, mætti á æfingu klukk- an 6 að morgni mánudags og þriðju- dags í Boganum og dagskráin er eins í dag. Æft er til sjö, þá borðaður morgunverður áður en haldið er heim á ný og náð í skólatöskuna …    Það eru strákar og stelpur úr 4. flokki sem stunda akademíuna þessa viku og þá næstu, börn úr 5. flokki verða á ferðinni síðari hluta mars og leikmenn úr 3. flokki í apríl.    Högni Reistrup ásamt hljómsveit og Guðrið Hansdóttir frá Færeyjum eru með tónleika á Græna hattinum í kvöld. Plötur beggja sem komu út í fyrra hlutu afbragðs dóma, Morg- unblaðið taldi plötu Guðríðar t.d. með þeim bestu.    Helgi Björnsson og Reiðmenn vindanna verða svo með tónleika á Græna hattinum bæði á föstudags- og laugardagskvöld.    Sýningin Maður fram af manni hefst á bókasafni Háskólans á Ak- ureyri í dag kl. 16. Þetta er sú fjórða og síðasta í ættfræði-seríu Guðrúnar Pálínu Guðmundsdóttur myndlist- armanns. Sýningin fjallar um ættir móðurafa Guðrúnar Pálínu, Hösk- uldar Tryggvasonar frá Víðikeri í Bárðardal.    Sýning Guðrúnar Pálínu sam- anstendur af átta litríkum mál- verkum á tréplötum sem hvíla á gólfi og hallast að veggjunum, eins og segir í tilkynningu. „Það er von Guð- rúnar Pálínu að sýningin veki áhuga áhorfandans á eigin ættarsögu. Bak við hvern einstakling er líf og erfða- efni margra forfeðra og formæðra sem hafa áhrif á hver við erum og hvað við gerum,“ segir þar.    Beint flug verður frá Akureyri til Slóveníu á vegum ferðaskrifstof- unnar Nonna í sumar eins og í fyrra. Von er á allt að 180 manns að utan 26. júní og mun hópurinn ferðast um Norðurland í sjö daga. Á meðan spókar sig væntanlega hópur Íslend- inga í Slóveníu. Þangað fóru margir í í beina fluginu í fyrra. Skjótt’ann, skjótt’ann! Ljósmynd/Sverrir Páll Hefð Nemendur MA á leið til að syngja fyrir skólameistara sinn í vikunni. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Í bítíð Krakkar úr KA og Þór fá sér hafgragraut um sjöleytið á þriðjudag. Stuðningur almennings, samtaka og fyrirtækja við starf Hjálp- arstarfs kirkjunnar í desember og janúar sl. til neyðarhjálpar á hung- ursvæðum Austur-Afríku og til inn- anlandsaðstoðar var 61 milljón króna. Fjármunirnir eru m.a. notaðir til að mæta brýnustu þörfum fólks sem býr við hrikalegar aðstæður á þurrkasvæðum og í flóttamanna- búðum í Austur-Afríku. Aðstoð innanlands Frá því inneignarkort voru tekin upp í maí sl. og út árið 2011 hafa 1200 einstaklingar og fjölskyldur fengið afgreidd kort. Þar sem um 3 einstaklingar eru að meðaltali á bak við hverja umsókn eru það um 3600 einstaklingar sem nutu að- stoðar. Á sama tímabili fengu 1815 aðra aðstoð en mataraðstoð. Frá búðum í Guud í Sómalíu. Rúm 61 milljón í neyðarhjálp Barnsmissir verður umfjöllunar- efni næsta fræðslukvölds Nýrrar dögunar, samtaka um sorg og sorg- arviðbrögð, í kvöld kl. 20.30 í safn- aðarheimili Háteigskirkju. Fyrirlesari er sr. Vigfús Bjarni Albertsson, sjúkrahúsprestur á barnadeild Landspítalans. Stuðningshópur fyrir foreldra sem hafa misst barn hefur starf- semi þriðjudaginn 6. mars kl. 20 í safnaðarheimili Háteigskirkju. Fundur um sorgarviðbrögð Landlæknisemb- ættið mælir með því að fólk taki þorskalýsi áfram þótt byrjað sé að vítamínbæta mjólk. Þetta kemur fram á vef landlæknisemb- ættisins. Embætti land- læknis og Rannsóknastofa í nær- ingarfræði hafa hvatt mjólkuriðn- aðinn til að bæta 10 míkrógrömmum af D-vítamíni í hvern lítra af mjólk og mjólkur- vörum til að auðvelda fleirum að fá nægilegt D-vítamín. Ný, D-vítamínbætt léttmjólk, er nú komin á markað. Mælir áfram með þorskalýsi STUTT Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í gær úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála um að Lyf og heilsa hefðu misnotað markaðs- ráðandi stöðu sína þegar fyrirtækið greip til aðgerða sem beindust gegn Apóteki Vesturlands. Hafnaði Hér- aðsdómur einnig kröfu um lækkun sekta sem áfrýjunarnefndin ákvað að væru hæfilegar 100 milljónir króna. Samkeppniseftirlitið hóf rannsókn á meintum brotum Lyfja og heilsu í september 2007 í kjölfar ábendinga um að fyrirtækið hefði gripið til að- gerða til að hindra að nýstofnað Apótek Vesturlands næði að hasla sér völl á Akranesi. Fólust þær m.a. í stofnun vildarklúbbs sem var ætlað að tryggja að mikilvægir við- skiptavinir hæfu ekki viðskipti við samkeppnisaðilann. Í ákvörðun nr. 4/2010 komst Sam- keppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Lyf og heilsa hefðu misnotað markaðsráðandi aðstöðu sína með skipulagðri atlögu gegn Apóteki Vesturlands. Lyf og heilsa skutu ákvörðuninni til áfrýjunarnefnd- arinnar sem staðfesti ákvörðunina en lækkaði sektina úr 130 milljónum króna í hundrað milljónir. Að mati héraðsdóms voru brotin „alvarleg, miðuðu að því að hindra innkomu nýrrar lyfjaverslunar á markað, sem stefndi sat áður einn að, og síðan að því að veikja hinn nýja aðila og raska samkeppni.“ Morgunblaðið/Golli Sekt Þurfa að borga 100 milljónir. Staðfesti brot Lyfja og heilsu  100 milljóna króna sekt stendur Útboðsþing Samtaka iðnaðarins - Verklegar framkvæmdir 2012 - Grand Hótel Reykjavík, Gullteigur A Föstudaginn 2. mars kl. 13:00 – 16:30 Reykjavíkurborg Framkvæmdasýsla ríkisins HS Orka Landsvirkjun Eftirtaldir aðilar kynna framkvæmdaáætlanir sínar á árinu: Siglingastofnun Landsnet Orkuveita Reykjavíkur Vegagerðin Skráning á www.si.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.