Morgunblaðið - 01.03.2012, Side 21

Morgunblaðið - 01.03.2012, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2012 Flestir forystumenn kristinna manna í Sýrlandi hafa stutt einræðisstjórn Bashars al-Assads, forseta landsins, en þeir lögðust gegn stjórnarskránni sem samþykkt var í þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudag. Ástæðan er ákvæði um að forseti Sýrlands þurfi að vera músl- ími, þannig að kristnir Sýrlendingar geta ekki boðið sig fram til forseta. Ákvæðið hefur verið í stjórnar- skrá Sýrlands frá 1920 þegar fyrsta stjórnarskrá landsins var sett. Kristnir og fleiri Sýrlendingar, sem vilja aðskilnað ríkis og trúar, hafa lengi beitt sér fyrir því að ákvæðið verði numið úr gildi. Hafez al-Assad, þáverandi forseti, lagði til að ákvæð- ið yrði afnumið árið 1973 en varð að hætta við það vegna harðrar and- stöðu íhaldssamra múslíma. Eldri kynslóð kristinna Sýrlend- inga hefur stutt sýrlensku ráða- mennina, en þeir eru alavítar sem eru ein grein sjía-íslams. Margir kristnu mannanna óttast að hreyf- ingar íslamista á borð við Bræðralag múslíma komist til valda ef einræðis- stjórnin fellur. Meðal ungra krist- inna manna er hins vegar meiri stuðningur við kröfuna um að komið verði á lýðræði í Sýrlandi. Sjítar eru um 3% af íbúum lands- ins og þeir styðja einræðisstjórnina. Þeir saka uppreisnarmenn úr röðum súnníta í Homs og fleiri borgum um að myrða sjíta og lýsa þeim sem „hryðjuverkamönnum“, eins og stjórn Assads hefur gert. bogi@mbl.is Kristnir menn höfnuðu stjórnarskránni TRÚARBRÖGÐ Í SÝRLANDI Alevi Kristnir Drúsar Gyðingar Ísmailítar (minnihluta- hópur meðal sjíta) >10015-100 Súnnítar Sjítar Yezidi Alavítar Nusairi Íslam Aðrir Heimild: M. Izady - Gulf/2000 project, Columbia-háskóli Tölurnar byggjast á manntali frá 2008-2009 eða áætlunum TRÚARHÓPAR Í SÝRLANDI sem% af íbúa- fjöldanum Súnnítar 69,5% Alavítar 12,8% Kristnir 9,3% Drúsar 3,2% Sjítar 3% Aðrir 2,2% 22 mln T Y R K L A N D S Ý R L A N D L Í B A N O N ÍSRAEL K Ý P U R Í R A K J Ó R D A N Í A Damaskus Sanamein Deraa Vestur- bakkinn Jerúsalem Homs Hama Aleppo Latakia Tartus Beirút Haifa  Sjítar líta á upp- reisnarmennina sem hryðjuverkamenn Stjórn Bandaríkj- anna skýrði frá því í gær að stjórnvöld í Norður-Kóreu hefðu samþykkt að hætta auðgun úrans sem hægt væri að nota í kjarnavopn. Norður- Kóreustjórn hefði einnig fallist á að hætta öllum tilraunum með lang- drægar eldflaugar og heimila Al- þjóðakjarnorkumálastofnuninni (IAEA) að hefja að nýju eftirlit með umdeildu kjarnorkuveri í Yongbyon. Í staðinn samþykkti Bandaríkja- stjórn að senda um 240.000 tonn af matvælum til Norður-Kóreu. Mikill matarskortur hefur verið í landinu frá því hungursneyð geisaði þar á síðasta áratug aldarinnar sem leið. Stjórnvöld í Norður-Kóreu stað- festu fréttina og sögðu að markmiðið með samkomulaginu væri að byggja upp traust milli ríkjanna tveggja og bæta samskipti þeirra. Samkomulagið náðist í fyrstu við- ræðum ríkjanna eftir valdatöku Kims Jong-uns, leiðtoga N-Kóreu. Samkomulagið getur greitt fyrir við- ræðum sex ríkja um kjarn- orkuafvopnun á Kóreuskaga. Norður-Kóreumenn slitu viðræðun- um árið 2009. Hætta auðgun úrans  Nýtt samkomulag við N-Kóreumenn Kim Jong-un ICELANDAIR GROUP HF. DAGSKRÁ: 1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár 2. Staðfesting ársreiknings og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu 3. Tillögur um breytingar á samþykktum 4. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna 5. Tillögur félagsstjórnar um starfskjarastefnu 6. Kosning stjórnar félagsins 7. Kosning endurskoðanda 8. Heimild til að kaupa eigin hlutabréf 9. Önnur mál löglega fram borin Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar með það löngum fyrirvara að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins sem lögð verður fram tveimur vikum fyrir fundinn. Þannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en kl.16:30 föstudaginn 9. mars 2012. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu félagsins www.icelandairgroup.is. Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað. Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn, geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins. Öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins og tillögur, eru hluthöfum tiltæk á heimasíðu félagsins. Endanleg dagskrá verður birt á heimasíðu félagsins tveimur vikum fyrir fundinn, 9. mars 2012, kl.16:30. Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar. Tilkynnt verður um framkomin framboð tveimur dögum fyrir aðalfundinn. Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn er að finna á vefsíðu félagsins, www.icelandairgroup.is. Reykjavík, 28. febrúar 2012. Stjórn Icelandair Group hf. Aðalfundur Icelandair Group hf. verður haldinn föstudaginn 23. mars 2012 í Víkingasal Icelandair Hótel Reykjavík Natura og hefst klukkan 16:30. ÍS L E N S K A /S IA .I S /I C E 58 65 5 02 /1 2 AÐALFUNDUR 2012 Meðal efnis : Hönnuðir,arkitektar og aðrir þátttakendur. Ný íslensk hönnunn. Húsgögn og innanhúshönnun. Skipuleggjendur og saga hönnunarMars. Dagskráin í ár. Erlendir gestir á hátíðinni. Ásamt fullt af öðru spennandi efni um hönnun. HönnunarMars Morgunblaðið gefur þann 22. mars út glæsilegt sérblað um HönnunarMars Á HönnunarMars gefst tækifæri til að skoða úrval af þeim fjölbreytilegu verkefnum sem íslenskir hönnuðir og arkitektar starfa við. Hátíðin verður haldin víðsvegar um Reykjavík –– Meira fyrir lesendur PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, FÖSTUDAGINN 16. MARS Katrín Theódórsdóttir Sími 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: SÉRBLAÐ Simbabvemaður hefur verið sóttur til saka fyrir að gera grín að Robert Mugabe forseta, sem hefur verið við völd í Simbabve frá því að land- ið fékk sjálfstæði frá Bretlandi árið 1980. Maðurinn var handtekinn á bar í borginni Mutare á laugardag þegar hann sat með vinum sínum og horfði á hátíðarhöld í tilefni af 88 ára afmæli forsetans í vikunni sem leið. Hann grínaðist með það hvort Mugabe væri nógu ern til að geta blásið upp af- mælisblöðr- urnar. Maðurinn var ákærður fyrir að „móðga og grafa undan valdi for- setans“. Hann var látinn laus gegn tryggingu en réttað verður í málinu í næsta mánuði, að sögn lögmanns hans. Ákærður fyrir að gera grín að Mugabe forseta Mugabe heldur upp á afmælið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.