Morgunblaðið - 01.03.2012, Síða 23

Morgunblaðið - 01.03.2012, Síða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2012 Samkvæmt lögum um þingsköp Alþingis er sérhverjum þing- manni skylt að sækja þingfundi „nema nauð- syn banni“. Þeim er einnig skylt að taka þátt í atkvæða- greiðslum. Þingmaður er aldrei vanhæfur til að greiða atkvæði, nema atkvæða- greiðslan snúist um fjárveitingu til hans sjálfs. Um þetta eru lögin skýr og þar eiga þingmenn ekkert val eftir eigin skoðun eða smekk. Gert er ráð fyrir því, að nú alveg á næstunni verði á Alþingi greidd at- kvæði um hvort halda skuli til streitu ákæru á hendur Geir H. Haarde. Heyrst hefur af því að einn þing- manna, Björgvin G. Sigurðsson, hafi í hyggju að vera ekki viðstaddur at- kvæðagreiðsluna. Er þó engin nauð- syn sem bannar honum það og frá- leitt er að hann sé vanhæfur til þess, enda snýst atkvæða- greiðslan hvorki um hann sjálfan né fjárveit- ingar til hans. Hann mun gefa þá skýringu, að honum sjálfum þyki óeðlilegt að greiða atkvæði um mál- ið, því ákæra á hendur Geir hafi verið sam- þykkt um leið og tekin var fyrir tillaga um ákærur á þrjá aðra fyrr- verandi ráðherra, þar á meðal Björgvin sjálfan. Sú afsökun hans fyrir fjarveru stenst á engan hátt. Málinu er lokið að því er Björgvin varðar. Hann er nú aðeins eins og hver annar þingmaður, hvort sem þeir voru í stjórn með Geir, sátu í stjórnarandstöðu gegn honum, eða eru nýir á þingi. Björgvin hefur sömu skyldu og aðrir þingmenn til að greiða atkvæði um tillöguna. En komi Björgvin G. Sigurðsson ekki til atkvæðagreiðslunnar þá verð- ur sú framganga hans lengi í minnum höfð, og mun sennilega ekki gleymast meðan þingsaga verður skrifuð á Ís- landi. Fyrir því er ástæða sem allir menn sjá og skilja. Eftir að meirihluti Alþingis hafði, með taktískum at- kvæðagreiðslum Samfylkingarinnar, komið málum svo fyrir að Geir H. Haarde var settur á sakamannabekk en mínútu síðar hafnað að ákæra Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, þá var tekin fyrir tillaga um ákæru á hendur Björgvini G. Sigurðssyni. Sjálfstæðismenn höfðu horft upp á ótrúlega framgöngu einstakra þing- manna Samfylkingarinnar í málinu. Engu að síður slógu þeir skjaldborg um Björgvin G. Sigurðsson og forð- uðu honum frá pólitískri ákæru. Þeim hefði verið í lófa lagið að senda hann sömu leið og Geir. Og hvað gerir Björgvin sjálfur? Hvernig hyggst þessi sami Björg- vin G. Sigurðsson standa að málum, nú þegar reynir á manndóm hans sjálfs? Hann ætlar að láta sig hverfa! Það er í öllum tilfellum óeðlilegt ef þingmenn hafa ekki manndóm til þess að sinna skyldu sinni og taka þátt í atkvæðagreiðslu þegar kosið er um svo alvarlegan hlut og hvort ein- staklingur skuli sæta ákæru Alþingis. En ef Björgvin G. Sigurðsson, af öll- um mönnum, ákveður að láta sig hverfa og vera bara úti í bæ, þá er það sennilega mesti ódrengskapur í allri þingsögunni og er þá langt til jafnað. Ég held því alls ekki fram að Björgvini sé skylt að greiða atkvæði með því að ákæran á Geir verði aft- urkölluð. En honum ber alger skylda til þess að mæta í þingsal og greiða atkvæði um málið. Telji hann að ákæra beri Geir, þá greiðir hann ein- faldlega atkvæði gegn afturköll- unartillögunni. En ef hann telur að ekki beri að ákæra hann, þá greiðir hann atkvæði með tillögunni. Þetta eru þeir tveir kostir sem Björgvin G. Sigurðsson hefur. Rétt eins og hann hefur einnig þá tvo kosti, að vera drengur eða ódrengur. Þar hefur hann engan milliveg. Með sama hætti eiga þeir þing- menn Samfylkingarinar, sem á sínum tíma greiddu atkvæði gegn ákæru á hendur Geir Haarde, nú aðeins tvo kosti. Þeir sitja nú undir miklum þrýstingi ofstækisfyllstu þingmanna landsins sem krefjast þess að ákær- unni verði haldið til streitu, þar sem „ekkert nýtt hafi komið fram í mál- inu“. En ef ekkert nýtt hefur komið fram í málinu þá hljóta þeir, sem töldu ekki ástæðu til ákæru, að vera enn sömu skoðunar og greiða þá at- kvæði með því að hin ástæðulausa ákæra verði dregin til baka. Ákær- anda, í þessu tilfelli Alþingi, er ekki heimilt að halda ákæru til streitu nema ákærandinn telji meiri líkur á sakfellingu en sýknu. Ef ákærandi, Alþingi, er ekki á þeirri skoðun, þá er honum skylt að afturkalla ákæruna. Til þess þarf hann engin „ný gögn“. Sé það rétt, að ekkert nýtt hafi komið fram, þá eiga þeir sem sögðu nei við ákæru á sínum tíma, engan annan kost en að greiða atkvæði afturköllun sömu ákæru. Eftir Bergþór Ólason »Ef Björgvin G. Sigurðsson lætur sig nú hverfa, þá er það mesti ódrengskapur í manna minnum. Bergþór Ólason Höfundur er fjármálastjóri. Drengur eða ódrengur verið að tillögur stjórnlagaráðsins þoli ekki skoðun fræðimanna, eða eru það kannski fræði- mennirnir sem þola ekki að skoða tillögurnar? Alla vega er það athyglisvert að fræðimenn hafa lítið tjáð sig efnislega um það „frumvarp“ sem nú stendur til að láta þjóðina kjósa um. Ummæli þeirra fáu sérfræðinga sem hafa tjáð sig eru á einn veg: Þarna eru athyglisverð- ar hugmyndir en plaggið sem slíkt er ónothæft sem fullbúið frumvarp að stjórnarskrá. Að sjálf- sögðu fara þeir svo kurteisisorðum um þetta líkt og þeir sem hrósa teikningum sem hreykin börn veifa. Nú er það svo að fólkið í landinu tekur ekki allt þátt í þessum farsa. Það sýndi sá meirihluti kjósenda sem sat heima kosningadaginn til stjórnlagaþings. Samt skal draga tjöldin frá Málsmeðferðin við endur- skoðun stjórnarskrárinnar er öll komin úr böndum. Þjóðin er í vanda með þær tillögur sem stjórnlagaráðið sendi frá sér. Og það eru fleiri í vanda. Þau sem hönnuðu þessa atburðarás eru einnig í vanda. Það var aldrei hugmynd þeirra sem að þessu leikriti stóðu að stjórnlagaráðið myndi rífa í sig alla stjórn- arskrána og fara að smíða upp nýja stjórnarskrá frá grunni. „Fulltrúar fólksins í landinu“ áttu bara að ein- beita sér að tveimur atriðum. Hið fyrra var að koma orðskrípinu „þjóðareign á auðlindum“ í stjórnarskrána og svo átti í leiðinni að banka að- eins í forsetann, enda hafði hann ekki sýnt rétt viðbrögð þegar broddverjar framkvæmdavalds- ins toguðu í þá strengi sem þau héldu að forset- inn gegndi þegar hann tók ákvörðun um að hafna Icesave. Allt þetta afhjúpaðist með eft- irminnilegum hætti á Alþingi daginn sem kosn- ingar til stjórnlagaþings voru dæmdar ólögleg- ar. Sú mynd sem þar birtist af forsætisráðherra landsins mun seint gleymast. Nú hefur stjórnlagaráðið teikn- að upp nýja stjórnarskrá þar sem þetta er allt inni en bara svo miklu, miklu meira. Þau hafa meira að segja diktað upp nýtt kosn- ingakerfi og vilja hafa það bundið í stjórnarskrá. Galskapurinn í kringum þetta allt saman minnir á þá fölskvalausu gleði en jafnframt fyrirhyggjuleysið sem grípur kýrn- ar þegar þær komast undir bert loft eftir vetrarlanga innistöðuna. Framhald málsins hefur síðan ver- ið með all-sérkennilegum hætti. Þegar formaður stjórnlagaráðs- ins afhenti forseta Alþingis tillögurnar gat hún þess að þetta væru ekki fullmótaðar tillögur og rétt framhald málsins væri, að á þeim yrði gert álagspróf varðandi gæði og samræmi við gild- andi stjórnarskrá og almenn lög í landinu. Stjórnskipunarnefnd Alþingis hefur nú setið á þessum tillögum það sem af er vetri, þar til ný- verið að nefndin lagði til við þingið að tillög- unum yrði vísað aftur til stjórnlagaráðsins. Ekkert bólar enn á álagsprófinu sem okkar bestu fræðimenn áttu að gera og mun tíma- skorti kennt um. Samt hefur Alþingi setið leng- ur yfir tillögunum en höfundar þeirra. Getur næsta þætti, sem ber heitið: Samráð við fólkið í landinu. Því ætlar Alþingi nú að bjóða þjóðinni upp á að kjósa um tillögur stjórnlagaráðs, án þess að þær hafi verið yfirfarnar af sérfræðingum á vegum þingsins. Ekkert bólar á álagsprófi eða sérfræðiáliti, almenningi til handa, sem hafa mætti til hliðsjónar við mat á tillögum stjórnlag- aráðsins. Það er eins og að þeir sem hér ráða ferðinni standi í þeirri trú að öll þjóðin sé lög- fræðimenntuð og geti samkvæmt því tekið upp- lýsta afstöðu til tillagna stjórnlagaráðs. Þeir sem lengst vilja ganga í að ota tillög- unum áfram saka þá sem svona tala um að telja þjóðina vera svo heimska að hún eigi ekki skilið að fá að kjósa um þessar snilldartillögur. Ég vil minna á að á upphafsdögum stjórnlagaráðs voru meðlimir þess settir á nokkurra daga nám- skeið í stjórnlagarétti. Að því loknu var stjórn- lagaráðið talið fullnuma og tilbúið að semja heila stjórnarskrá á tíma sem telst vera heims- met í stjórnarskrárgerð. Væri nú ekki ráð að bjóða þjóðinni upp á svipað námskeið fyrir kosningarnar? Reynslan sýnir að nóg er til af opinberu fé þegar þetta stórbrotna tilrauna- og gæluverkefni stjórnvalda er á vogarskálunum. Eftir Óðin Sigþórsson » Það var aldrei hugmynd þeirra sem að þessu leikriti stóðu að stjórnlagaráðið myndi rífa í sig alla stjórnarskrána og fara að smíða upp nýja stjórn- arskrá frá grunni. Óðinn Sigþórsson Heimsmet í að teikna stjórnarskrá Höfundur er bóndi. Harka Til eru þeir sem fárast út í allt og alla, ekki síst umhleypingana, en þessar stúlkur eru ekki í þeim hópi og stunda líkamsræktina í Laugardalnum burtséð frá veðri og vindum. Ómar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.