Morgunblaðið - 01.03.2012, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.03.2012, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2012 Líknardeild aldr- aðra á Landakotsspít- ala var lokað 6. febr. sl. Það kom fram í grein Soffíu Önnu Steinarsdóttur, að- stoðardeildarstjóra, í Mbl. 10. febr. Manni brá í brún. Þrátt fyrir að lokun væri áform- uð, hafði maður vonað í lengstu lög, að hún yrði afturkölluð. Líknardeild á Landakoti hefur verið starfrækt um 10 ára skeið við afar góðan orðstír að mati þeirra, er best til þekkja. Þar hef- ur verið hlúð að mikið veiku, öldr- uðu fólki af fagmennsku og kær- leiksríkri umhyggju. Nú á að rífa þetta langveika fólk upp og flytja yfir á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, þar sem þessar tvær deildir verða sameinaðar sam- kvæmt ákvörðun yfirstjórnar spít- alans frá því í haust. Með samein- ingunni verður legurúmum fækkað um 4, verða 13 í stað 17 áður. Þrátt fyrir harðorð mótmæli, m.a. starfsfólks líknardeildarinnar á Landakoti, sem sendi bréf til allra alþingismanna, tókst ekki að fá þessari ákvörðun breytt. Talað er um, að með sameiningunni muni spítalinn spara einhverja tugi milljóna. Fram hefur komið að gera þurfi umtalsverðar end- urbætur á húsrými líknardeild- arinnar í Kópavogi til að hún geti tekið við þessari viðbót. Þeim endurbótum mun að sögn ekki ljúka fyrr en með vori og á með- an lengist biðlistinn á líknardeildinni. Ljóst er því, að þessi breyt- ing mun hafa í för með sér skerðingu á þjónustu við aldrað, langveikt fólk, eins og berlega kemur fram í grein Soffíu Önnu, og þýða aukið álag á aðr- ar bráðadeildir spítalans, sem maður hélt að væri ærið fyrir. Þetta er gert á sama tíma og öldr- uðum fer stöðugt fjölgandi í þjóð- félaginu og m.a. krabbameins- sjúklingum. Þá er ótalin sú andlega röskun, sem því er samfara að rífa aldrað, veikt fólk upp úr umhverfi, sem það er farið að þekkja og þar sem því líður vel, og flytja á nýjan stað. Mannlegi þátturinn skiptir ekki síður máli en ytri aðbúnaður. Þátt- ur velferðarráðherra, Guðbjarts Hannessonar, er sérkennilegur í þessu máli. Hann kýs að vísa á stjórn Landspítalans, hvað ákvörð- un snertir, sem vissulega tekur ákvörðunina; spítalinn sé að hag- ræða og sér virðist breytingin „fyllilega réttlætanleg“, eins og hann lætur hafa eftir sér. Allir vita, að Landspítalanum er nauð- ugur einn kostur að skera niður og spara, þar sem hann hefur mátt sæta niðurskurði á fjárlögum síð- ustu ár, orðið að skera niður um tugi prósenta og fækka starfsfólki svo hundruðum skiptir. Samkvæmt fjárlögum 2012 var spítalanum ætlað að spara um 630 milljónir, þótt sú tala hafi eitthvað verið lækkuð við lokaafgreiðslu. Hin endanlega ábyrgð er hins veg- ar hjá fjárveitingarvaldinu og und- an því geta ráðherrarnir ekki vik- ist. Ráðherra velferðarmála hefði verið í lófa lagið að afturkalla þessa ákvörðun, hefði hann beitt sér, og hið sama hefðu ráðherrar hins stjórnarflokksins, VG, getað gert. Mál þetta kom nokkuð til umræðu á landsfundi VG á Ak- ureyri í haust, þar sem samþykkt var ályktun, þar sem frekari nið- urskurði í heilbrigðiskerfinu var mótmælt. En þrátt fyrir góðan hug gerðist ekkert í máli líkn- ardeildarinnar. Núverandi rík- isstjórn hefur þurft að takast á við mörg erfið úrlausnarefni þann Nokkur orð í tilefni af lokun líknardeildar á Landakoti Eftir Ólaf Þ. Hallgrímsson » Aldraðir eru ekki hávær þrýstihópur í samfélaginu. Þess vegna er svo auðvelt, þegar spara þarf í heilbrigðiskerfinu, að þrengja að þeim, sem berskjaldaðastir eru og síst geta varið sig...Ólafur Þ. Hallgrímsson Alþingi Íslendinga er nú að skoða hvort fella eigi niður ákæru á hendur Geir H. Haarde. Umræða al- þingismanna um þetta mál hefur oft verið ein- kennileg. Í fyrsta lagi er það nokkuð und- arlegt að alþingismenn ræddu ekki meira um hvers konar fyrirbæri Landsdómur er áður en þeir fóru af stað. Í öðru lagi að þeir spurðu ekki hvort ekki væri undarlegt að þeir, pólitískur löggjafi, væru orðnir póli- tískt ákæruvald. Telja verður áhuga- leysi þeirra um þetta einkennilegt í ljósi þess að þingmenn tala mikið um þrískiptingu ríkisvaldsins og ekki megi hrófla við henni þegar þeir ræða nú um Landsdómsmálið. Gott hefði verið ef þeir hefðu rifj- að upp söguna um Clinton og Starr. Clinton var ákærður af bandaríska þinginu fyrir meinsæri og fyrir að hindra réttvísina. Talið er að rann- sókn Starr vegna þess máls hafi kostað skattborgara um níu millj- arða króna. Ekkert kom út úr því máli nema kannski skömm fyrir þá sem að því stóðu. Alþingismenn hefðu mátt spyrja sig hvort sú ákæra hafi verið pólitísks eðlis og hvort eitthvað mætti læra af henni. Geta slíkar ákærur verið annað en pólitískar? Bent hefur verið á í þessu sambandi að rétt hafi þótt að ákæra forseta fyrir að ljúga til um kynlíf en forseti hafi ekki verið ákærður fyrir að hafa logið til um réttlætingu á Íraksstríðinu. Kom pólitík því eitt- hvað við? Í athugasemdum við það laga- frumvarp sem varð að lögum um Landsdóm segir um tilurð slíkra dómstóla: „Allt frá því á miðöldum var það viðurkennd regla á Eng- landi, að konungur væri ábyrgð- arlaus í öllum stjórnarmálefnum (The king can do no wrong) ( Innsk. höf. Talið var að konungar hefðu vald sitt frá Guði. Svipað ákvæði er um forseta Íslands samkvæmt stjórn- arskránni, hann er ábyrgðarlaus af stjórn- arframkvæmdum (for- setinn getur ekkert rangt gert)). Í stað þess voru ráðgjafar konungs taldir bera ábyrgð á stjórn- arframkvæmdum, og varð ábyrgð á hendur þeim komið fram fyrir almennum dómstólum. Jafnframt komst þó sá háttur á, að neðri deild Parliamentisins gæti kært ráðherra fyrir lávarðadeild- inni, er dæmdi í þeim málum. Lá- varðadeildin hafði frjálsari hendur en almennir dómstólar. Hún gat eigi aðeins sakfellt ráðherra fyrir til- tekin embættisbrot heldur og fyrir ráðsmennsku, sem talin var ríkinu skaðsamleg. Þetta sérstaka sak- sóknarúrræði reyndi þingið að nota til þess að skapa stjórninni aðhald og til þess að knýja hana til að virða stjórnskipun ríkisins. Þetta úrræði var því að nokkru leyti pólitísks eðl- is.“ Það er nokkuð athyglisvert, mið- að við þá umræðu sem fram fer á þinginu nú, að þetta úrræði sé talið pólitískt strax í árdaga þess. Erum við ekki komin það langt á braut mannréttinda að við getum öll viðurkennt að ákæra með þessum hætti verður aldrei annað en pólitísk ákæra? Þá skiptir ekki máli hvort er verið að ákæra Geir, Clinton eða einhvern annan. Eftir Berg Hauksson »Erum við ekki komin það langt á braut mannréttinda að við getum öll viðurkennt að ákæra með þessum hætti verður aldrei ann- að en pólitísk ákæra? Bergur Hauksson Höfundur er lögmaður og viðskiptafræðingur. Saksóknarúrræði þings talið pólitískt strax í árdaga Póstþjónustu við landsmenn hefur hrakað því meira sem tækni og vegakerfi hefur breyst þannig að hraði og stytting milli fólks hefur kallaða á betri nærþjónustu. Þjónustu og þróun hjá póstinum er best lýst með eftirfarandi kveðskap. Góður, betri, bestur burtu voru reknir, vondur, verri, verstur aftur voru teknir. Þetta á afar vel við um þá ákvörðun að leggja niður pósthús í Mjódd. Mjóddin er afar þýðingarmikil mið- stöð fjölbreyttrar þjónustu sem allir íbúar Breiðholts njóta og þurfa, jafn- vel lífsnauðsynlega að sækja. Í Mjóddinni er þjónustumiðstöð borg- arinnar, lögreglustöð, mikilvæg og fjölbreytt læknisþjónusta, bankaþjón- usta, ökukennsla, lyfsölur, fatahreins- un, úra- og skartgripaverslanir, blómabúð, myndbandaleiga, pitsu- staður, fiskbúð, bakarí, fataverslanir, lágverðsverslun Netto, stræt- isvagnamiðstöð, einn besti matsölu- staður bæjarins hjá Dóra. Skósmiður, kvikmyndahús og pósthúsið okkar góða og lengi mætti trúlega telja enn. Í Mjóddina geta Breiðhyltingar sótt sér svo góða og vandaða þjónustu og viðskiptalíf að í Breiðholti er nánast hægt að lifa nærri algjörlega án þess að sækja eftir slíku utan Breiðholts. Sé vikið að persónulegum mál- efnum, þá er óbeint félagslíf afar mik- ið innan aðalbyggingar Mjódd- arinnar. Algengt er að hitt gamla vini og kunningja þegar farið er í Mjódd- ina til að njóta einhverrar þjónustu. Vegna sérstöðu Mjóddarinnar verða íbúar Breiðholts gjarnan að góðkunn- ingjum þess fólks sem veitir sína þjónustu þar. Mjóddin vegna sinnar fjölþættu þjónustu og í sinni hæfilegu stærð er nánast eins og kaupmað- urinn á horninu. Ég sem er hæfilega aldraður (76 ára) og átti ungur heima í Blesugróf og nú um 30 ár í suður- hluta Breiðholts, finn til mikillar ánægju að búa hér og ekki síst þeirr- ar ánægju að í hvert sinn sem ég kem í Mjóddina finn ég fólk sem ég þekki sem góða kunningja og jafnvel gamla vini. Ég stend í miklum bréfa- og pakkasendingum til innlendra og er- lendra kunningja og ég vil alls ekki þurfa að fara í annað sveitarfélag til að sækja þjónustu póstsins. Ekki vil ég gleyma að nefna að stúlkurnar í pósthúsinu í Mjódd eru líka góðkunn- ingjar mínir. KRISTINN SNÆLAND, Breiðhyltingur. Hreppaflutningar póstsins Frá Kristni Snæland Kristinn Snæland Markmið með uppbyggingu Landspítala við Hringbraut sem fyrirhuguð er snýst og mun ávallt snúast fyrst og fremst um sjúklinga landsins. Þetta vill gleymast í um- ræðu um stækkun spítalans, en löngu tímabært er að ráðast í hana. Hagur sjúklinga til framtíðar verður best tryggður með margs konar framförum sem hljótast af stækkun spítalans. Ávinningur sjúklinga af bættri aðstöðu fyrir spítalastarfsemina er augljós. Landspítali starfar nú á 17 stöðum í um 100 húsum og sex heil- brigðisdeildir háskólans starfa á 13 stöðum, allt frá Hofsvallagötu að Eirbergi á Landspítalalóð. Húsnæði spítalans er margt gamalt og úr sér gengið. Meginstarfsemin er einkum í tveimur húsum og mikið óhagræði af flutningum veiks fólks á milli. Þá deila flestir sjúklingar sjúkrastofum með allt að þremur öðrum ein- staklingum. Enginn þarf að efast um hversu óþægilegt getur verið við slíkar aðstæður að ræða meðferð og líðan við lækna, hjúkrunarfræðinga og annað starfsfólk, eða þá ættingja og vini. Endurteknar spítalasýkingar hafa verið verulegt vandamál sem stundum hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér. Ein af ástæðum þess er fjölbýlin. Hvers virði er fyrir veikt fólk að losna við allt þetta? En stækkun Landspítala mun líka hafa í för með sér ýmsan annan ávinning fyrir sjúklinga en þann sem lýtur beint að spítalastarfsemi. Samstarf lykilatriði Kjörorð nútíma heilbrigðisþjón- ustu eru teymi og samstarf – tíma einyrkja er liðinn. Mikilvægt er að samstarfið hefjist strax á fyrsta ári í skóla. Skilyrði þess er að koma nem- endum heilbrigðisdeilda saman und- ir eitt þak. Fólk þarf að koma saman og vinna saman að rann- sóknum, kennslu og þjónustu. Þá má minna á að tæki eru dýr. Samnýt- ing rannsóknastofa, tækjabúnaðar og starfsfólks býður ekki aðeins upp á fjárhags- lega hagræðingu heldur einnig mikil fagleg tækifæri. Ný- lega var stofnað Líf- vísindasetur Háskóla Íslands. Það er samstarfsvettvangur allra þeirra sem sinna grunnrannsóknum í líf- og heilbrigðisvísindum. Í nýju húsi kæmist öll starfsemi því tengd und- ir eitt þak. Nálægð bóklegs náms og grunnrannsókna við rannsóknir og nám á sjúkradeildum efla starfs- þjálfun nemanna og gera þá enn hæfari til að sinna og mæta þeim miklu breytingum sem verða munu í fagi þeirra á næstu árum og ára- tugum. Það eru hagsmunir þeirra sem fá þjónustu á helsta spítala landsins að þar sé vel búið um alla hnúta. Nálægð við háskólann mikilvæg Þau atriði sem að ofan eru rakin vega þungt í umræðu um stækkun Landspítala. Nokkru púðri hefur þó undanfarið verið eytt í staðsetningu nýs spítala. Hér er rétt að minna á að áformin um upp- byggingu spítalans eiga sér langa sögu. Rúm fimmtán ár eru liðin frá því að umræðan um þau hófst fyrir alvöru í að- draganda sameiningar sjúkrahúsanna í Reykjavík. Sjúkrahúsin voru sameinuð um mitt ár 2000 og tveimur ár- um síðar var bygging- unni valinn staður á Grænuborgartúni, á lóð Landspítala við Hring- braut. Hér vógu tvær ástæður þyngst. Sú fyrri felur í sér bættan hag sjúk- linga með uppbyggingu spítalans í námunda við háskólann. Það mun gera spítalanum kleift að eflast sem háskólasjúkrahús með því að blanda saman starfsemi sinni enn frekar, styrkja samstarf og samvinnu til að efla þjónustu, rannsóknir og kennslu. Hin ástæða staðarvalsins er sú að á lóðinni við Hringbraut er mun meira af byggingum sem nýta má áfram en hefði nýju húsi verið kom- ið fyrir annars staðar. Bygging við Hringbraut er því ódýrari en bygg- ing á öllum öðrum stöðum sem nefndir hafa verið. Það væri skrýtið ef það þætti ekki skipta máli. Ekki verður nógsamlega undir- strikað að hagur sjúklinga er hafður að leiðarljósi hjá öllu því fólki sem nú talar fyrir mikilvægi þess að strax verði hafist handa við að stækka Landspítala og búa hann undir að gegna verðugu hlutverki í heilbrigðisþjónustu framtíðarinnar á Íslandi. Á sjúklingum er því miður er enginn hörgull og verður ekki. Þeirra vegna er brýnt að hefjast handa. Stærri Landspítali í þágu sjúklinga Eftir Sigurð Guðmundsson »Endurteknar spítalasýkingar hafa verið verulegt vandamál sem stundum hafa alvarlegar afleið- ingar í för með sér. Sigurður Guðmundsson Höfundur er forseti Heilbrigðisvís- indasviðs Háskóla Íslands. Bréf til blaðsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.