Morgunblaðið - 01.03.2012, Side 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2012
Síðbúin kveðja til vinar míns
Kjartans, en í dag, 1. mars, hefðu
verið 33 ár frá því hann fór í með-
ferð á Freeport-sjúkrahúsið í
Bandaríkjunum. Þetta er sá dag-
ur sem hann hélt alltaf upp á og
hafði ávallt í heiðri.
Að setjast niður og ætla sér að
setja niður á blað kveðjuorð til
vinar míns sem ég veit að ég kem
ekki til með að hitta í bráð, er
mér erfiðara en ég hugði í fyrstu.
Það vekur mig til umhugsunar
og mér vefst tunga um tönn, ég
skynja það svo vel hvað við vor-
um nánir. Hann veitti mér svo
mikinn stuðning, eiginlega í all-
flestu sem faðir veitir syni sínum.
Móðir mín heitin sagði einu sinni
við mig, þegar ég var eitthvað að
vandræðast út af einhverju sem
vafðist fyrir mér, af hverju talar
þú ekki við hann pabba þinn
þarna fyrir norðan? Þannig vissu
margir hvernig tengsl okkar
Kjartans voru.
Ég kynntist Kjartani árið
✝ Kjartan SölviEinarsson
fæddist á Siglufirði
13. september 1933.
Hann andaðist á
Heilbrigðisstofnun
Fjallabyggðar á
Siglufirði 2. janúar
2011.
Útför Kjartans
Sölva var gerð frá
Siglufjarðarkirkju
8. janúar 2011.
1980, þá var ég ný-
fluttur norður á
Siglufjörð. Fljótlega
eftir að ég var kom-
inn norður, kynntist
ég AA-samtökun-
um. Eftir það þurfti
ég mjög oft á leið-
sögn Kjartans að
halda. Það var alveg
sama á hvaða tíma
eða degi, það var,
alltaf sama svarið:
„Komdu í kaffi, Gummi minn.“ Þá
voru málin rædd fram og til baka,
þar til viðunandi lausn fannst.
Mér finnst oft eftir á að hyggja
ótrúlegt hvað hann var þolinmóð-
ur og hvað hann hafði góð áhrif á
mig, svona tiltölulega óþolinmóð-
an og stressaðan eins og ég var.
Það geta sjálfsagt margir sagt
eitthvað svipað um Kjartan, en
þetta er mín reynsla og söknuður
minn er mikill. Ég held áfram að
koma við að Hólavegi 39, þar er
gott að koma og þiggja veitingar
og spjall við Brynju. Þó ég komist
lítið að í spjalli milli tveggja
kvenna, þá sest ég bara inn í
stofu meðan konurnar tala saman
og rifja upp liðna tíð.
Ég bið hinn hæsta höfuðsmið
að veita Brynju, dætrum, tengda-
sonum, barnabörnum, öllum
skyldmönnum og vinum allan
þann stuðning sem hann getur.
Þess óska burtfluttir Siglfirð-
ingar, úr Borgarnesi,
Guðmundur Magnússon
og Jóhanna Helgadóttir.
Kjartan Sölvi
Einarsson
Ég kynntist þér
fyrir 21 ári síðan þeg-
ar ég kom inn í fjölskyldu þína og
við urðum mágkonur. Þó það hafi
verið frekar langt síðan er eins og
það hafi verið stutt síðan. Ég man
enn að þú varst með ljóst, sítt hár
niður á rass en í tagli og varst í
íþróttapeysu sem var röndótt,
dökkblá og hvít og komst skæl-
brosandi á móti mér þegar ég kom
í heimsókn í fyrsta skiptið. Þú
varst svo spennt að sjá að bróðir
þinn var kominn með kærustu. Þú
hljópst út um hurðina um leið og
við renndum í hlað á Marbakka-
brautinni.
Ég fékk að fylgjast með þér
stækka og þroskast og verða að
þriggja barna móðir. Þegar þú
varðst tvítug eignaðist þú fyrsta
gimsteininn þinn árið 2000, þá
kom Óðinn Dagur í heiminn, síðan
fljótlega kom Kristófer Máni sem
ég hef ætíð átt mikið í, þremur ár-
um síðar kom svo prinsessan Ísa-
bella Ósk og fæddist hún á afmæl-
isdegi Ogga afa.
Við vorum einmitt mikið í sam-
bandi þegar þú gekkst með Krist-
ófer Mána. Ég var mjög spennt
þegar þú fórst af stað með Krist-
ófer Mána, mig hafði dreymt nafn-
ið hans og var mikil spenna í
gangi. Ég kom um leið heim til þín
þegar fyrstu verkirnir komu. Ég
setti þig í heitt fótabað, gerði fast-
ar fléttur í hárið á þér og nuddaði
á þér fæturna til að fá þig til að
slaka vel á. Held þú hafir slakað
það vel á heima að allt í einu vild-
irðu drífa þig upp á spítala. Við
rukum með þig út í bíl í brjáluðu
veðri í febrúar og brunuðum á
Berglind Ósk
Guðmundsdóttir
✝ Berglind ÓskGuðmundsdóttir
fæddist í Reykjavík
1. september 1980.
Hún lést 20. desem-
ber 2012.
Útför Berglindar
var gerð frá Foss-
vogskapellu 3. jan-
úar 2012.
spítalann. Á leiðinni
fór allt á fullt og
þurfti ég að halda við
hausinn á barninu
með 2 síma á eyranu
á mér, bæði spítal-
ann og neyðarlínuna.
Við náðum niður á
spítala en ekki inn.
Þú fæddir hann í
bílnum fyrir utan
spítalann. Það áttaði
sig enginn á því
hversu langt fæðingin var komin
því aldrei kvartaðir þú undan
neinu. Alveg sama hvað á dundi í
lífinu þá tókstu öllu með ró.
Öll þín æska snerist um dýr,
sérstaklega hunda og hesta og átt-
ir þú bæði. Fékkst hundinn Blon-
die sem þú áttir og hugsaðir mjög
vel um, einnig fékkstu hest í ferm-
ingargjöf sem átti líka hug þinn
allan í mörg ár.
Þú varst einstaklega barngóð
og man ég eftir að þú vildir eiga
mörg börn þegar þú yrðir stór. Þú
passaðir mikið fyrir mig og bróður
þinn, frændsystkini þín, Bjarka,
Katrínu og Sunnu. Þegar þið
Svanur fóruð í ferðalög á sumrin
fékk Katrín oft að fylgja með.
Fékk hún að keyra í fyrsta skiptið
aðeins 12 ára gömul í sveitinni
með ykkur og hefur ekki talað um
annað í mörg ár en að fá bílpróf
eftir það og var sú ósk loks upp-
fyllt fyrir nokkrum dögum síðan.
Þið Katrín voruð alltaf taldar
mjög líkar og margir sögðu ykkur
vera copy-paste. Í dag voru gull-
molarnir þínir í skötuveislu með
fjölskyldunni. Kristófer Máni
snýr sér að Katrínu minni og segir
við hana „Katrín, veistu að þú ert
rosalega lík henni mömmu minni“.
Litlu gimsteinarnir þínir voru
hjá okkur í dag og vil ég að þú vitir
hvað þau eru æðisleg og verða
ætíð í góðum höndum hjá pabba
sínum, afa og ömmu.
Vonandi líður þér vel og fylgist
með okkur frá góðum stað.
Kveðja,
Kristrún Kristinsdóttir.
S:HELGASON
10 - 50%
AFSLÁTTUR
AF
ÖLLUM
LEGSTEINUM
Vandaðir legsteinar
á betra verði!!!
- Sagan segir sitt -
Skemmuvegur 48 s: 557 66 77
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HERDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Hóli,
lést á Dvalarheimili aldraðra Borgarnesi
sunnudaginn 26. febrúar.
Útförin fer fram frá Borgarneskirkju föstu-
daginn 2. mars kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta Dvalarheimili
aldraðra í Borgarnesi njóta þess.
Þórir Finnsson, Rósa Arilíusardóttir,
Sigrún Finnsdóttir,
Guðmundur Óskar Finnsson, Guðrún Fjeldsted,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýnt
hafa fjölskyldunni samúð og kærleika við
andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
TORBEN FRIÐRIKSSONAR,
Gilsárstekk 5,
Reykjavík,
sem lést laugardaginn 4. febrúar.
Sérstakar þakkir færum við Karitas hjúkrunarþjónustu og
starfsfólki krabbameinsdeildar LSH fyrir einstaka þjónustu,
hlýhug og velvilja.
Margrét Björg Þorsteinsdóttir,
Steen Magnús Friðriksson, Heléne Westrin,
Hanna Katrín Friðriksson, Ragnhildur Sverrisdóttir,
Knútur Þór Friðriksson, Hanna Kristín Pétursdóttir
og afabörn.
✝
Ástkær móðir okkar,
ÁSLAUG SVEINSDÓTTIR,
Borgarbraut 53,
Borgarnesi,
andaðist á Dvalarheimili aldraðra í
Borgarnesi laugardaginn 25. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Borgarneskirkju
laugardaginn 3. mars kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Dvalarheimili aldraðra
í Borgarnesi.
Júlíus Jónsson, Inga Kolfinna Ingólfsdóttir,
Garðar Sveinn Jónsson, Aldís Eiríksdóttir,
Ólafur Þór Jónsson,
Ásberg Jónsson, Sigríður Jóna Sigurðardóttir,
Hrefna Bryndís Jónsdóttir, Þorvaldur T. Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýju við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÁRNA GUÐMUNDSSONAR,
Grænumörk 5,
Selfossi.
Guðmundur Árnason,
Bárður Árnason, Aðalbjörg Skúladóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Þökkum samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður og afa,
JÓNS GUÐMUNDSSONAR
framhaldsskólakennara,
Þorláksgeisla 33,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki gjörgæsludeildar
Landspítalans í Fossvogi fyrir góða umönnun og hlýhug.
Hjördís Vigfúsdóttir,
Vignir Jónsson, Þorbjörg Kolbeinsdóttir,
Heimir Jónsson, Jóhanna Kristín Jónsdóttir,
Fríða Jensína Jónsdóttir, Auðunn Gísli Árnason,
Hörður Jónsson, Ingibjörg Kolbeinsdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær sonur okkur og bróðir,
KRISTJÁN PÉTUR GUÐMUNDSSON,
Hjallalundi 17f,
Akureyri,
lést á Calmette-sjúkrahúsinu í Phnom Penh,
Kambódíu, fimmtudaginn 23. febrúar.
Útförin mun fara fram í kyrrþey.
Við þökkum af alhug auðsýnda samúð og
vinarhug.
Helga Þóra Kjartansdóttir,
Guðmundur Kristjánsson, Anna Karin Júlíussen,
Hrefna Guðmundsdóttir,
Kjartan Guðmundsson, Emilía Gunnarsdóttir.
✝
Hjartans þakkir fyrir samúð og vináttu við
andlát
LÁRU MARGRÉTAR RAGNARSDÓTTUR,
fyrrverandi alþingismanns.
Anna Kristín Ólafsdóttir, Hjörleifur B. Kvaran,
Ingvi Steinar Ólafsson, Sigrún Guðný Markúsdóttir,
Atli Ragnar Ólafsson,
Kristján Tómas Ragnarsson, Hrafnhildur Ágústsdóttir,
Árni Tómas Ragnarsson,
Ásta Kristrún Ragnarsdóttir, Valgeir Guðjónsson,
Hallgrímur Tómas Ragnarsson, Anna Haraldsdóttir,
Lísa Margrét, Eysteinn, Bjarki, Anika Embla,
Salvör Íva, Auður Ísold og Katrín Rán.
✝
Þökkum innilega hlýhug samúð og vináttu
við andlát og útför elskulegrar eiginkonu
minnar, móður, tengdamóður og ömmu,
MARÍU JÓNSDÓTTUR
Furulundi 3a,
Akureyri.
Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á Grenilundi
og Hlíð.
Birgir Aðalsteinsson,
Ingibjörg Helga Birgisdóttir, Birgir Óli Sveinsson,
Einar Þór Birgisson,
Birgir Karl Birgisson, Elínborg Sigríður Freysdóttir,
og barnabörn.
✝
Okkar ástkæra,
HELGA ÁSDÍS EINARSDÓTTIR,
Grundartúni 4,
Akranesi,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Vesturlands,
Akranesi, laugardaginn 25. febrúar.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju
mánudaginn 5. mars kl. 14.00.
Þórður Björnsson,
Ágúst Svavar Þórðarson, Linda Gustafsson,
Jón Ingi Þórðarson, Ingunn Dögg Eiríksdóttir,
Ilmur Jónsdóttir,
Jón Helgi Einarsson, Guðbjörg Andrésdóttir,
Sigríður Björk Einarsdóttir.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, afi
og langafi,
HALLGRÍMUR V. JÓNSSON,
Skálanesi Reykhólahreppi,
lést fimmtudaginn 23. febrúar á Hjúkrunar-
og dvalarheimilinu Barmahlíð Reykhólum.
Útförin fer fram frá Reykhólakirkju laugar-
daginn 3. mars klukkan 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er
bent á Hjúkrunar- og dvalarheimilið Barmahlíð.
Katrín Ólafsdóttir,
Ólafur Arnar Hallgrímsson, Sigrún Halldóra Arngrímsdóttir,
Sveinn Berg Hallgrímsson, Andrea Björnsdóttir,
Elías Már Hallgrímsson, Arna Vala Róbertsdóttir,
Guðrún Þ. Hallgrímsdóttir, Oddur Hannes Magnússon,
Ingibjörg J. Hallgrímsdóttir, Helgi Ingvarsson,
barnabörn og barnabarnabarn.