Morgunblaðið - 01.03.2012, Side 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2012
Ghostory er þriðja
plata School of se-
ven bells en það
eru Ben Curtis og
söngkonan Alej-
andra DeHeza sem
manna sveitina.
Tónlistin er að miklu leyti elektrón-
ísk og poppuð þótt áhrifin komi víða
að. Curtis stýrir fleyinu en hann var
áður í The Secret Machines sem var
mjög flott sveit áður en að hann yf-
irgaf hana. Á Ghostory er popp ní-
unda áratugarins brætt saman við
ólíklega strauma á borð við þýskt
krautrokk. Oft á tímum verður út-
koman ágæt, sönglínurnar eru ekki
auðmeltar og vinna á við endurtekna
hlustun. Handbragð hins fjölhæfa
Curtis er áþreifanlegt þar sem mel-
ódíur og taktar minna stundum á
það sem heyrðist hjá TSM. Helsti
gallinn er hinsvegar sá að tónlistin
er á köflum kuldaleg og fjarlæg.
Mikið púður fer í að skapa þennan
hljóðheim og stemninguna sem kem-
ur oftast þrælvel út en fer á köflum
yfir þessa hárfínu línu og með þeim
afleiðingum að tónlistin verður
stundum tilgerðarleg. Í heildina er
School of seven bells þó bragðgott
popp.
Kalt en
bragðgott
School of Seven bells –
Gostory bbbmn
Hallur Már
Meat Loaf hefur
náð að lifa nokk-
urn veginn á einni
plötu alla sína
hunds- og katt-
artíð, það er hinni
epísku Bat out of
Hell sem út kom árið 1977. Platan
hefur samkvæmt síðustu mælingum
selst í 43 milljónum eintaka, takk
fyrir, sem gerir hann fimmtu sölu-
hæstu plötu frá upphafi vega.
Meat Loaf hefur haldið sig meira
og minna við formúluna sem laga-
höfundurinn Jim Steinman og upp-
tökustjórnandinn Todd Rundgren
hrærðu í þar en með æði enda-
sleppum árangri. Þetta nýjasta út-
spil er ekkert öðruvísi að því leytinu
til. Áttum okkur á því að Meat Loaf
er fyrst og síðast skemmtikraftur.
Það útskýrir vonandi þá yfirkeyrðu
dramatík sem einkennir allt hérna.
Ef hann er meðvitaður um það, er
með öðrum orðum að spila vísvit-
andi með það sem fólk býst við af
honum (og ýkir það jafnvel aðeins)
á hann skilið klapp á bakið. En ef
hann er ekki á þeim stað, ef hann
telur í fyllstu alvöru að þetta sé
„persónulegasta“ plata hans til
þessa þá erum við í vandræðum. Ég
kaupi það jafnmikið og þennan
spuna Ólafs Ragnars. Að þessu öllu
sögðu er þetta ekki handónýt plata.
Það má hafa gaman af þessari
„STÆRГ plötunnar á köflum og
sum lögin eru haganlega úr garði
gerð. Söngrödd Meat Loaf er þó
undarleg, afskaplega veik á flestum
stöðum en einhverra hluta vegna
pælir maður samt ekki mikið í því.
Verst er hins vegar algerlega
hörmuleg útgáfa af hinu ágæta lagi
„California Dreamin’“ og svo gestar
Chuck D í einu lagi!? Það segir því
miður meira um hans feril en Meat
Loafs.
Hærra, stærra, meira!
Meat Loaf - Hell in a Hand-
basket
bbnnn
Arnar Eggert Thoroddsen
Pirringur Meat Loaf er dálítið niðri fyrir á nýju plötunni.
Erlendar plötur
Vilhjálmur Andri Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Melavöllurinn er án efa sá íþrótta-
leikvangur sem er hvað mest sam-
ofinn íþróttasögu landsins. Þeir eru
vandfundnir sem ekki hafa heyrt af
vellinum og flest-
ir sem komnir
eru yfir miðjan
aldur fóru ein-
hvern tímann á
kappleik eða við-
burð á vellinum.
Til að heiðra
minningu vall-
arins og halda
uppi merkjum
þessa sögufræga
vallar hefur kvikmyndagerðarmað-
urinn Kári G. Schram unnið heimild-
armynd um völlinn fyrir Íþrótta-
bandalag Reykjavíkur, ÍBR.
„Ég vann fyrir nokkru mynd um
KR-völlinn og í kjölfarið hafði ÍBR
samband við mig og bað mig að gera
mynd um Melavöllinn en hann var
þá að verða 100 ára gamall því völl-
urinn var fyrst vígður 1910 og síðan
aftur 1926 eftir að gamli völlurinn
hafði fokið í miklu óveðri.“ Kári
treysti ekki bara á opinberar myndir
og myndbúta heldur leitaði hann um
allan bæ á háaloftum og í kjöllurum
fólks til að finna efni sem aldrei áður
hefur verið birt opinberlega. „Það er
margt að finna í Kvikmyndasafninu
sem er gullnáma af gömlu efni en ég
fór líka að leita að efni sem er í
einkaeigu og það er ótrúlega mikið
til af slíku efni. Íslendingar hafa allt-
af verið duglegir að kaupa sér græj-
ur og taka myndir og það er ýmis-
legt til myndrænt frá vellinum. Ég
krækti í marga gullmola frá vell-
inum sem ekki hafa verið sýndir op-
inberlega.“
Ísland - Svíþjóð 4 - 3
Eitt af því sem fram kemur í
myndinni er myndskeið sem hvergi
annars staðar er til að sögn Kára en
það er upptaka af leik Íslands og
Svíþjóðar árið 1951. „Þetta er ein af
stóru stundunum í íslenskri íþrótta-
sögu en við vorum að sigrast á
frændum okkar í Skandinavíu í
frjálsum íþróttum á sama tíma og
við unnum Svía í fótbolta á Melavell-
inum og Ríkharður fór á kostum í
leiknum.“ Að sögn Kára gaf völl-
urinn okkur meira en bara kapp-
leiki. Hann átti stóran þátt í að efla
og styrkja trú þjóðar, sem nýlega
hafði fengið fullveldi og síðar sjálf-
stæði, á sjálfri sér. „Það var mik-
ilvægt að sjá að við gátum unnið
aðrar þjóðir í kappleikjum, ekki síst
Dani.“
Sagan sem Kári segir í heimild-
armynd sinni er hins vegar ekki ein-
ungis íþróttasaga heldur líka saga
fólksins sem byggði völlinn og skap-
aði goðsögnina. „Ég talaði við alla
sem höfðu eitthvað um völlinn að
segja, eins og Baldur Jónsson sem
var vallarstjóri frá 1950 og þar til
völlurinn var rifinn. Þetta er ekki
bara saga vallarins heldur fólksins
sem gaf honum líf, fólksins sem sigr-
aði, grét, svitnaði og blæddi á hon-
um. Saga þeirra og þess fólks sem
hugsaði um völlinn er engu síðri og
henni geri ég líka góð skil í mynd-
inni.“
Þó Melavöllurinn sé horfinn og
ummerki um þennan völl hvergi að
finna í Reykjavík lifir hann enn.
Ekki bara í hugum og hjörtum fólks
heldur í sveitum landsins. „Ég fann
völlinn. Efni úr honum er að finna í
útihúsum og fjósum víða um land.“
Heimildarmynd Kára verður til sýn-
is í Regnboganum fyrir áhugasama.
Melavöllurinn í myndum og máli
Heimildarmynd um Melavöllinn verður sýnd í Regnboganum í mars
Þjóðarleikvangur Melavöllurinn er samofinn íþróttasögu landsins og var
helsti samkomustaður fyrir kappleiki og stærri viðburði.
Kári G. Schram
Brúðkaupsblað
Föstudaginn 16. mars kemur út hið árlega
BrúðkaupsblaðMorgunblaðsins.
–– Meira fyrir lesendur
SÉ
R
B
LA
Ð
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 12. mars
Brúðkaupsblaðið hefur verið eitt af vinsælustu sérblöðum Morgunblaðsins
í gegnum árin og verður blaðið í ár sérstaklega glæsilegt.
Látið þetta glæsilega Brúðkaupsblað ekki framhjá ykkur fara ...
það verður stútfullt af spennandi efni.
Sigríður Hvönn Karlsdóttir
sigridurh@mbl.is
Sími: 569-1134
Brú
ðka
up
MEÐAL EFNIS:
Fatnaður fyrir brúðhjónin.
Förðun og hárgreiðsla
fyrir brúðina.
Veislumatur
Brúðkaupsferðin.
Undirbúningur fyrir
brúðkaupið.
Giftingahringir.
Brúðargjafir
Brúðarvöndurinn.
Brúðarvalsinn.
Brúðkaupsmyndir.
Veislusalir.
Veislustjórnun.
Gjafalistar.
Og margt fleira skemmtilegt
og forvitnilegt efni.
Þ.Þ., FRÉTTATÍMINN A.E.T., MORGUNBLAÐIÐH.V.A., FRÉTTABLAÐIÐ
TOTAL FILMBOXOFFICE MAGAZINE
SVARTHÖFÐI.IS
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
HAYWIRE KL. 10.30 16
HAYWIRE LÚXUS KL. 10.30 16
GHOST RIDER 3D ÓTEXTUÐ KL. 10.30 12
THIS MEANS WAR KL. 10.30 14
STAR WARS EPISODE 1 3D ÓTEXTUÐ KL. 4 10
SAFE HOUSE KL. 10.30 16
SKRÍMSLI Í PARÍS 3D KL. 3.40 L
CHRONICLE KL. 4 12
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 3.40 L
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
GHOST RIDER 2 3D ÓTEXTUÐ KL. 8 - 10 12
HAYWIRE KL. 8 - 10 16
THIS MEANS WAR KL.6 14 GLÆPUR OG SAMVISKA KL.5.45
GHOST RIDER 3D ÓTEXTUÐ KL. 8 - 10.15 12
CHRONICLE KL. 6 - 8 - 10 12
THIS MEANS WAR KL. 5.45 - 8 14
STAR WARS EPISODE 1 3D ÓTEXTUÐ KL. 10.15 10
THE DESCENDANTS KL. 5.30 L
LISTAMAÐURINN KL. 6 - 8 - 10 L
FRÁ LEIKSTJÓRUM
CRANK KEMUR
EIN ÖFLUGASTA
SPENNUMYND
ÞESSA ÁRS.
HREIN
RÆKT
UÐ HA
SARM
YND
FBL.