Morgunblaðið - 01.03.2012, Side 40
FIMMTUDAGUR 1. MARS 61. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Þjálfari hafði mök við 13 ára stúlku
2. Vissi ekki af máli Jóns Baldvins
3. Laug að tengdafjölskyldunni
4. Fórnarlömb 9/11 í landfyllingu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
New York Magazine birtir ítarlegt
viðtal við Björk vegna Bíófílíutónleika
hennar í New York. Heimili hennar í
Brooklyn er einnig til nokkurrar um-
fjöllunar og fer allnokkurt púður í
vangaveltur þar um. Sjá nymag.com.
Fjallað um heimili
Bjarkar í New York
Fjórar íslenskar
konur eiga leikrit
sem valin hafa
verið til kynningar
á alþjóðlegri ráð-
stefnu um leikrit
eftir konur. Um
600 leikrit bár-
ust, 100 hlutu náð
og fjögur þeirra
eru eftir Hlín Agnarsdóttur, Jónínu
Leósdóttur, Sölku Guðmundsdóttur
og Völu Þórsdóttur. Verkin verða
kynnt í Stokkhólmi í ágúst.
Fjögur íslensk kven-
leikskáld á ráðstefnu
Kvicmyndavefurinn Twitch-
film.com, sem er einn sá öflugasti í
heiminum að því er varðar sjálfstæða
kvikmyndagerð, fjallaði um mynd
Munda vonda og Snorra
Ásmunds, Óttalegir
jólasveinar, í vikunni.
Það er stofnandi síð-
unnar, Todd Brown,
sem leiðir net-
heima í sann-
leikann um
Munda og
Snorra.
Óttalegir jólasveinar
á Twitchfilm.com
Á föstudag Suðaustan 13-18 m/s og rigning, en úrkomulítið norð-
austanlands. Hiti 3 til 8 stig.
Á laugardag Suðlæg átt, 5-13 m/s og rigning. Kólnandi veður.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan og síðar sunnan 5-13 og dálítil él,
en bjartviðri austantil. Vaxandi suðaustanátt í kvöld með slyddu
eða snjókomu um landið sunnan- og vestanvert.
VEÐUR
Mikið gekk á í leikjum gær-
kvöldsins á Íslandsmóti
kvenna í körfubolta. Með
Jordan Murphree í far-
arbroddi vann lið Snæfells
frækinn sigur á KR í Vest-
urbænum. Valskonur gerðu
sér lítið fyrir og kjöldrógu
Íslandsmeistara Keflavíkur
á Hlíðarenda, Njarðvík lenti
í kröppum dansi í Hvera-
gerði og Fjölnir náði í óvænt
og dýrmæt stig í botn-
slagnum. »4
Jordan reyndist
KR-ingum erfið
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu hóf keppni í Algarve-
bikarnum með naumum ósigri gegn
Evrópumeisturum Þjóðverja. Þjálf-
arinn og fyrirliðinn eru ánægð með
frammistöðuna en ekki úrslitin. Nýir
leikmenn fengu tækifæri í byrj-
unarlið-
inu og
systur
léku
saman í
fyrsta
skipti. »1-3
Góð frammistaða gegn
Evrópumeisturum
„Það eru dálítil vonbrigði að hafa tap-
að leiknum eins og hann þróaðist en
það hefði kannski ekki verið sann-
gjarnt ef við hefðum unnið. Þeir voru
heldur sterkari en við í heildina. En
eftir að við jöfnuðum áttum við að
skora aftur, fyrst var skotið í þverslá
og síðan fengum við dauðafæri upp
úr því,“ sagði Lars Lagerbäck eftir
naumt tap í Svartfjallalandi. »1-3
Vonbrigði að tapa
í Svartfjallalandi
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
„Við kynntumst fyrst á hinni frægu
Hótel Borg og giftum okkur svo rétt
rúmlega tvítug. Það var nú ekkert
stórkostlegt brúðkaup, við létum
bara gefa okkur saman heima hjá
prestinum, séra Jóni Auðuns,“ segir
Pétur Ingason. Hann og Sigrún Ey-
dís Jónsdóttir eiga 60 ára brúð-
kaupsafmæli í dag, svokallað dem-
antsbrúðkaup.
Pétur og Sigrún búa nú í South-
ampton í Englandi en sín fyrstu bú-
skaparár bjuggu þau í Hafnarfirði.
Þau eiga tvö börn, son og dóttur.
„Sigrún er fædd og uppalin í Hafn-
arfirði en ég átti heima á Akranesi í
nokkur ár, annars er ég ættaður
norðan úr Steingrímsfirði. Við
bjuggum svo saman í Hafnarfirði frá
1952 þangað til við fórum til Skot-
lands 1961,“ segir Pétur. Þau hafa
búið úti síðan. „Ég er samt ansi
hræddur um að við lítum alltaf á
okkur sem Hafnfirðinga,“ bætir Pét-
ur við og hlær.
Úr flugvélum í báta
Pétur var flugvirki hjá Flugfélagi
Íslands í Glasgow frá 1961 til 1979.
„Við vorum í tuttugu ár í Skotlandi,
eða þangað til flugið til Glasgow var
lagt niður. Þá voru börnin upp-
komin, farin að vinna og læra í Skot-
landi, svo við ákváðum að fara ekki
aftur til Íslands. Í Skotlandi áttum
við alltaf bát, annaðhvort siglara eða
vélbát og notuðum heilmikið. Þegar
ég hætti hjá flugfélaginu gafst okkur
kostur á að fá vinnu á bát í Suður-
Frakklandi og var það til þess að við
fórum þangað og vorum í hátt í tíu
ár.“
Pétur rak bátasmíðafyrirtæki og
fleiri fyrirtæki á þeim vettvangi eftir
að hann hætti að starfa sem flugvirki
og ferðuðust þau hjónin víða um
heiminn síðastliðin 30 ár í tengslum
við starf sitt við skútur og siglingar.
„Eitt sinn rákum við stóra
snekkju, í einkaeign, í fimm ár og
bjuggum í henni árið um kring.
Snekkjan ferðaðist aðallega um
frönsku ströndina en var staðsett í
Mónakó á sumrin. Ég hef séð um
byggingar á bátum víða um heim og
höfum við því dvalið á mörgum stöð-
um í tengslum við það.“
Þau halda enn tengslum við Suð-
ur-Frakkland, eiga þar íbúð sem þau
dvelja í nokkra mánuði á ári. Þau
hafa ekki komið til Íslands í sjö ár en
segjast vera í miklu sambandi við
vini og ættingja hér á landi.
Spurð hvað þau hafist að þessa
dagana segir Pétur að þau séu svo
upptekin af því að gera ekki neitt að
þau komi bara engu verk, svo skellir
hann upp úr.
Gift heima hjá prestinum
Eiga demants-
brúðkaup eftir 60
ára hjónaband
Farsæl Sigrún Eydís Jónsdóttir og Pétur Ingason í Suður-Frakklandi. Í dag, 1. mars, hafa þau verið gift í 60 ár og
eiga því demantsbrúðkaup. Þau ætluðu út að borða í tilefni dagsins en bjuggust ekki við frekari hátíðarhöldum.
Spurður hver sé lykillinn að því að
eiga svona langt og farsælt hjóna-
band dæsir Pétur og segist ekki
vita það, en svarar svo: „Það er
sennilega að geta komið sér sam-
an um hlutina. Það er ekki alltaf
sem maður þarf að vera sammála
um allt en að koma sér saman, ég
held að það sé dálítið áríðandi.“
Pétur og Sigrún fylgjast vel með
fréttum frá Íslandi og hann er ekki
hrifinn af ástandinu í fjármálum
og pólitík á Íslandi núna. Segir að
þar mætti reyna að koma sér sam-
an um hlutina.
„Það er svo mikið ósamkomulag
í öllum hlutum. Þetta er ekki það
stór hópur að það þurfi að vera
svona mikið ósamkomulag. Ef ein-
hver stingur upp á einhverju vilja
aðrir eitthvað þveröfugt. Það ætti
að vera hægt að komast að nið-
urstöðu í sátt og samlyndi, eins og
í hjónabandi.“
Koma sér saman um hlutina
LYKILLINN AÐ FARSÆLDINNI