Morgunblaðið - 17.03.2012, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 17.03.2012, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012 „. . . VIÐAMIKIÐ OG VANDAÐ VERK .. .“ E I N A R F A L U R I N G Ó PI PA R \T BW A -S ÍA -15kr. af lítranum í 10. hvert skipti sem þú dælir 25 lítrum eða meira með ÓB-lyklinum! Sæktu um ÓB-lykil núna á ob.is. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Reikna má með að loðnuvertíðinni ljúki á næstu 2-3 dögum veiðist vel um helgina. Nokkur skipanna eru búin með kvóta sína en flest þeirra sem enn eru að veiðum áttu í gær eftir einn túr. Í gær voru skipin ýmist á Faxa- flóa eða komin vestur af Snæfellsnesi. Þar varð vart við talsvert af loðnu en hún lá við botninn fram eftir degi og skipin fóru ekki að kasta fyrr en upp úr hádegi. Vilhjálmur Vilhjálmsson, deildarstjóri upp- sjávardeildar hjá HB Granda sagði í gær að óhætt væri að segja að loðnuvertíðin hefði verið lífleg og gengið á ýmsu við erfiðar að- stæður. „Í heildina virðist þetta vera að ganga upp og vertíðin gengið vel. Það sem riðið hefur baggamuninn er hversu mikið hefur verið af loðnu á miðunum,“ sagði Vil- hjálmur Frá því að loðnukvótinn var gefinn út í febrúar hafa veiðar verið stundaðar af kappi. Heildarkvóti íslenskra skipa endaði í rúm- lega 590 þúsund tonnum og er vertíðin þegar orðin sú besta í mörg ár eða frá því á vertíð- inni 2004/05. Aðstæður hafa verið góðar á mörkuðum fyrir mjöl, lýsi og frystar afurðir. Síðustu daga hefur allt kapp verið lagt á að frysta loðnuhrogn, sem er verðmætasta af- urðin og hefur að mestu farið til Japans. Áætlað hefur verið að útflutningsverðmæti loðnuafurða verði á bilinu 28-30 milljarðar króna. Líklegt er að einhver uppsjávarskipanna haldi fljótlega til veiða á kolmunna. Líflegri loðnuvertíð lýkur á næstu dögum  Á ýmsu hefur gengið við erfiðar aðstæður í vetur en „í heildina virðist þetta vera að ganga upp“ Ljósmynd/Börkur Kjartansson Á miðunum Skipin hafa síðustu daga verið beggja vegna Reykjaness, á Faxaflóa og við Snæfellsnes. Kap VE vinstra megin, Faxi RE dælir nær og Börkur NK fjærst. Í ljósaskiptum á miðvikudag. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Íbúðalánasjóður á nú 1751 eign og er verðmæti þeirra um 22 milljarðar króna. 529 þessara eigna eru á Suð- urnesjum og segir Sigurður Erlings- son, fram- kvæmdastjóri ÍLS, að staðan á Suðurnesjum sé mikið áhyggju- efni. „Þetta ástand leysist ekki af sjálfu sér og það er engin önnur leið út úr þessari stöðu á Suðurnesjum en bætt atvinnu- ástand,“ segir Sigurður. Hann reiknar með að sjóðurinn muni á þessu ári setja 200-250 eignir í sölu og þessa dagana séu 20-30 eignir að verða tilbúnar í söluferli. Sigurður segir að hluti þeirra eigna sem Íbúðalánasjóður hafi leyst til sín á síðustu árum hafi verið verðmetinn eins og sjóðnum ber skylda til að gera. Þar sem verðmati sé ekki lokið sé stuðst við fasteignamat. Miðað við þessar forsendur sé nið- urstaðan sú að 22 milljarðar af fjár- munum Íbúðalánasjóðs séu bundnir í þessum eignum. Tekjur af húsaleigu hafi á síðasta ári staðið undir hús- næðisrekstrinum. Á þessu ári muni leigutekjur væntanlega skila afgangi upp í fjármagnskostnað. Gagnagrunnur byggður upp Sigurður segir markmiðið að selja eignir á eðlilegu markaðsvirði og sjóðurinn hafi ýmis tæki til að nálg- ast upplýsingar um hvað sé eðlilegt verð. Hann nefnir að byggður hafi verið upp gagnagrunnur innan ÍLS með verðmötum og upplýsingum frá Þjóðskrá um þinglýsta kaupsamn- inga. Þessi gögn séu keyrð saman og skoðað hvort ásett verð Íbúðalána- sjóðs séu í samræmi við það sem sambærilegar eignir hafa verið seld- ar á á markaði. Þá sé leitað eftir skoðun fasteignasala á raunhæfu verði á opnu húsi fyrir þá. „Þegar svo stórt eignasafn er selt er mikilvægt að tryggja bæði opið og gagnsætt söluferli ásamt því að fá eðlilegt markaðsverð fyrir eignir sjóðsins,“ segir Sigurður. Hann seg- ist telja að í þeim tilvikum sem sjóð- urinn hefur fengið lakara verð en aðrir fyrir sambærilegar eignir helgist það af því að eignirnar séu oft í lakara ástandi en gerist og gengur þegar sjóðurinn leysir þær til sín. Eðlilegt leiguverð mikilvægt Á leigumarkaði sé sjóðurinn það umsvifamikill að hann þurfi að fara varlega í því samkeppnisumhverfi sem ríkir. „Ef við færum að undir- bjóða markaðinn gæti sú staða auð- veldlega komið upp að við teldumst vera að misnota markaðsráðandi stöðu. Okkur er ekki ætlað að bjóða hagstæðari leigukjör en aðrir og not- um meðal annars gögn frá Þjóðskrá um þinglýsta leigusamninga til að leggja mat á hvað sé eðlilegt leigu- verð á markaði,“ segir Sigurður. Þegar sjóðurinn eignast húsnæði ber honum að bjóða ábúendum að leigja eignina, hvort sem er um fyrri eig- endur að ræða eða leigjendur. Sigurður hafnar þeirri gagnrýni sem fram kom í máli Ásmundar Friðrikssonar, bæjarstjóra í Garði, í blaðinu í gær. „Íbúðalánasjóður er hvorki erfiður í samskiptum né gerir kröfur um óraunhæft verð. Við erum og eigum að vera á sama róli og markaðurinn og værum hreinlega að brjóta lög ef við værum í undirboð- um,“ segir Sigurður. Eignir fyrir 22 milljarða  Íbúðalánasjóður reiknar með að setja 200-250 eignir í söluferli á þessu ári  Engin önnur leið út úr erfiðri stöðu á Suðurnesjum en bætt atvinnuástand Sigurður Erlingsson Skúli Hansen skulih@mbl.is Víkurprjón í Vík í Mýrdal var í gær selt félaginu Drífu ehf. sem er í eigu Ágústs Þórs Eiríkssonar og er til húsa í Garðabæ. „Já, það stendur frekar til að auka þessa starfsemi, því að Drífa er með gott sölukerfi og hefur alla mögu- leika á því að bæta eða auka söluna á þessum vörum sem hér eru fram- leiddar,“ segir Þórir N. Kjartansson, fráfarandi framkvæmdastjóri Vík- urprjóns, spurður hvort hann telji líklegt að gerðar verði einhverjar breytingar á starfsemi Víkurprjóns. Fyrirtækið er einn stærsti vinnu- staður sveitarfélagsins og að sögn Þóris eru ársverk innan Víkurprjóns 18 talsins. Þórir mun fljótlega láta af störfum sem framkvæmdastjóri Vík- urprjóns en því starfi hefur hann gegnt síðan fyrirtækið var stofnað fyrir 32 árum. Aðspurður hvað þýð- ingu salan hafi fyrir starfsmenn Vík- urprjóns segist Þórir vona að það verði engin breyting þar á. „Nei, ég hef ekki áhyggjur af því,“ segir Þór- ir aðspurður hvort hann hafi áhyggj- ur af því að starfsemin flytjist úr bænum í ljósi þess að nýir eigendur eru til húsa í Garðabæ. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Selt Víkurprjón í Vík í Mýrdal var í gær selt fyrirtækinu Drífu ehf. Víkur- prjón selt Drífu ehf.  Auka starfsemina

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.