Morgunblaðið - 17.03.2012, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 17.03.2012, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012 Sogið er vatnsmesta bergvatnsá landsins. Hún kemur úr Þingvallavatni og rennur um Úlfljótsvatn og Álftavatn í Hvítá í Árnessýslu skammt neðan við Þrastarskóg. Sogið er fornfrægt fyrir stóra laxa og minnir af og til á þá staðreynd. Veiðisvæðið fyrir landi Ásgarðs er þéttskipað kyngimögnuðum veiðistöðum Fyrir Ásgarðslandi, eru aðstæður til fluguveiða eins og þær gerast bestar. Veiðitími er frá 1. apríl til 24. september ár hvert. Allar nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 480 2900, steindor@log.is eða 863 2900. Fornfræg stórlaxaá til sölu Öll veiðiréttindi í Soginu Ásgarði ásamt glæsilegu veiðihúsi við ána eru nú til sölu Dagskrá: 1. Skýrsla félagsstjórnar um starf félagsins á liðnu starfsári. 2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til umræðu og afgreiðslu. 3. Ákvarðanir teknar um ávöxtun sjóða félagsins. 4. Kjöri stjórnar, trúnaðarráðs og samninganefndar, kjörstjórnar, skoðunarmanna reikninga og uppstill- inganefndar lýst. 5. Kosning endurskoðenda. 6. Tillögur um fulltrúa á þing Alþýðusambands Íslands 2012. 7. Tillögur um fulltrúa á ársfundi lífeyrissjóða sem FIT er aðili að. 8. Önnur mál. Veitingar í boði félagsins. Stjórnin. AÐAL FUNDUR Félagið veitir ferðastyrk til þeirra félagsmanna sem búa í meira en 40 km fjarlægð frá fundarstað. Félags iðn- og tæknigreina verður haldinn í Iðnaðarmanna- salnum Skipholti 70, laugardaginn 24. mars 2012 kl. 11.00. Aðalmeðferð í landsdómsmálinu SAMANTEKT Baldur Arnarson baldura@mbl.is Spennan var mikil í dómssalnum í Þjóðmenningarhúsinu þegar síðasta lotan hófst eftir hádegishlé á níunda degi réttarhaldanna yfir Geir H. Haarde í gær. „Ég vil biðja ykkur að spenna öryggisbeltin,“ sagði dóm- vörður og uppskar hlátrasköll. Fór svo með ræðuna um að slökkva bæri á farsímum og standa upp þegar dómarar gengju í salinn og úr honum. Andri Árnason, verjandi Geirs, kom sér fyrir í púltinu og lauk síðari hluta fyrri málflutningsræðu sinnar. „Ég er þá kominn að ákærulið 1.5,“ sagði Andri og tók svo að andmæla ákæruliðnum sem kveður á um að Geir hafi vanrækt að stuðla að flutn- ingi Icesave-reikninga Landsbank- ans yfir í breskt dótturfélag. Var inntakið í vörn Andra að það hefði hvorki verið í verkahring Geirs að beita sér fyrir flutningnum né hefði hann haft ástæðu til þess að vé- fengja störf eftirlitsaðila í þessu efni. Snýst aðeins um flutninginn „Ákæran lýtur ekki að því að til dæmis að ... lækka innistæður á um- ræddum reikningum heldur ein- göngu að flutningi yfir í dótturfélög,“ sagði Andri og færði rök fyrir því að miða ætti við tímabilið frá júlí 2008 og þar til bankarnir féllu hvað þennan ákærulið varðar, en ekki tímabilið frá febrúar og fram í október 2008, líkt og miðað er við í ákærunni. Andri nefndi því næst hvernig fjöldi vitna hefði fyrir Landsdómi staðfest að litið hefði verið á inn- lánasöfnun bankanna sem jákvætt skref til að tryggja fjármögnun, í þessu tilviki með söfnun innlána inn á erlenda Icesave-netreikninga. Hinn 25. mars 2008 hefði Seðla- banki Íslands ákveðið að afnema bindiskyldu vegna þessara innlána. „Þetta var ákvörðun bankaráðs Seðlabanka Íslands sem ákærði kom hvergi nærri eða vissi af ... Það er ljóst að þessi ákvörðun var hvorki borin undir ákærða né var honum kunnugt um hana,“ sagði Andri. Hann rakti síðan hvernig Fjár- málaeftirlitið og Seðlabanki Íslands hefðu talið þessa innlánasöfnun af hinu góða og talið eðlilegt að Lands- bankinn hefði forgöngu um viðræður við bresk yfirvöld vorið 2008 um flutning reikninganna yfir í breskt dótturfélag. Á þessum tíma hefði ekki verið tilefni til þess að ætla að Geir hefði „haft forsendur til að taka fram fyrir hendur á eftirlitsaðilum“. Óraunhæfar kröfur á Geir Tók Andri þar með undir það sjón- armið margra vitna að það hefði verið í verkahring FME og Seðlabanka Ís- lands að hafa eftirlit með Icesave en ekki forsætisráðherrans. „Það verður að hafna því al- gjörlega að það hafi verið á nokkurn hátt raunhæft, eðlilegt eða komið til álita að hinn ákærði yrði í forystu- sveit Landsbankans í viðræðum við bresk yfirvöld eins og ráða má af málatilbúnaði ákæruvaldsins. Það gerist auðvitað aldrei þannig.“ Framan af ári 2008 hafi ákærði ekki haft tilefni til þess að ætla að Landsbankinn ynni ekki að flutn- ingnum yfir í breskt dótturfélag af heilindum, né að eftirlitsaðilar ynnu ekki að málinu sem skyldi. Komið hefði fram á fundi samráðs- hóps stjórnvalda um fjármála- stöðugleika 27. júlí 2008 að forstjóri Fjármálaeftirlitsins, þ.e. Jónas Fr. Jónsson, hefði upplýst að stjórnendur Landsbankans væru að fara til Lund- úna til viðræðna við breska fjármála- eftirlitið. Framan af sumri hefði breska fjármálaeftirlitið ekki viljað fara dótturfélagaleiðina heldur viljað semja við Landsbankann um lausa- fjárstýringu samkvæmt breskum reglum. „Síðan verður viðhorfsbreyt- ing hjá breskum yfirvöldum í júní 2008. Í byrjun júní snúast hlutverkin við. Þá fer breska fjármálaeftirlitið sjálft að leggja áherslu á það að þetta verði flutt yfir í dótturfélag,“ sagði Andri. Ákæruliður 1.5 kveður á um að Geir hafi ekki „leitað leiða til að stuðla að framgangi [flutningsins] með virkri aðkomu ríkisvaldsins“. Andri leitaðist við að hrekja þenn- an lið með því að benda á þann skiln- ing sem æðstu embættismenn lögðu í framgang málsins. Máli sínu til stuðnings vísaði hann til bókunar Bolla Þórs Bollasonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármála- ráðuneytinu, um málið á fundi sam- ráðshópsins. Niðurstaðan hefði verið sú að bankarnir ættu forgöngu um að eiga þessar viðræður en að ráðherrar kæmu að því á síðari stigum. Var í höndum FME og SÍ „Á þessu stigi er ekki á nokkurn hátt gert ráð fyrir að aðkoma hins ákærða sé nauðsynleg ... Það er alveg ljóst að í samráðshópnum er litið svo á að það eru Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands sem eiga að fylgja þessu eftir,“ sagði Andri og átti við flutning reikninganna. „Þetta mál var til umfjöllunar á hverjum einasta fundi [samráðshóps- ins] í júlí ... Menn voru ekki að spara fundina í júlí til þess að taka þetta mál til úrvinnslu ... Á fundi samráðs- hópsins 22. júlí kemur það upp og kannski í fyrsta sinn ... að Lands- bankinn sé orðinn mótdrægur því að flytja þetta yfir í dótturfélög,“ sagði Andri og vék að umsögnum viðkom- andi embættismanna um farveg málsins um sumarið 2008. „Þarna er komið í lok júlí og það er Flutningur Icesave í höndum annarra  Verjandi Geirs H. Haarde vísaði til verkaskiptingar  Telur tjónskröfu ákæruvaldsins illa skilgreinda Kveðjustund „Þakka ykkur fyrir samsetuna,“ sagði Geir H. Haarde og brosti til Sigríðar J. Frið- jónsdóttur saksóknara og Helga Magnúsar Gunn- arssonar varasaksóknara við lok réttarhaldanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.