Morgunblaðið - 17.03.2012, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 17.03.2012, Blaðsíða 57
MENNING 57 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012 Hugrún Björnsdóttir hugrunbj@gmail.com Valgeir Sigurðsson hefur haft í nógu að snúast undanfarið. Hann er allt í senn tónskáld, hljóðblandari og upp- tökustjóri og sér um útgáfufyrir- tækið Bedroom Community sem hann stofnaði ásamt samstarfs- mönnum sínum. Valgeir samdi ný- verið tónlist fyrir dansverkið The Architecture of Loss eftir banda- ríska danshöfundinn Stephen Petr- onio, en það er samið fyrir ellefu dansara. Þetta er í fyrsta sinn sem Valgeir semur tónlist fyrir dans- verk. Meira pláss fyrir tónlistina „Ferlið við að semja danstónlist er ekkert ósvipað því að semja tónlist fyrir kvikmyndir og leikrit en það er mun meira pláss fyrir tónlistina í dansinum,“ segir Valgeir en hann samdi tónlist fyrir kvikmyndina Draumalandið og gaf í kjölfarið út plötu með tónlistinni árið 2010. Aðspurður segir Valgeir að sam- starfið við Stephen Petronio hafi komið til að frumkvæði danshöfund- arins. „Hann hringdi í mig og sagði að honum líkaði það sem ég hef gert. Ég þekkti lítillega til hans áður en hann er eitt af stærri nöfnum í dans- heiminum.“ Petronio leggur mikinn metnað í að velja sér samstarfsfólk en hann hefur áður unnið með tón- listarmönnum á borð við Lou Reed, Nick Cave og Yoko Ono. Valgeir og Petronio unnu tónlist- ina og dansinn í sameiningu. „Ég byrjaði á því að koma með hug- myndir og við ræddum hverju þyrfti að breyta. Svo fórum við að prófa okkur áfram þangað til við vorum komnir á einhvern stað sem virkaði. Hann lagði áherslu á að tónlistin yrði flutt beint með dansinum sem er svolítil sérstaða. Ég setti saman lítið band sem hafði tök á því að flytja tónlistina beint og byggði hana upp í kringum bandið.“ Bandið samanstendur af tveimur einstaklingum ásamt Valgeiri sjálf- um en hann leikur á píanó. „Einn leikur á víólu og annar á bassa, slag- verk og hljóðgervil. Tónlistin var því samin með þessa þætti í huga.“ Að- spurður hvernig hann myndi lýsa tónlistinni segir Valgeir að hún sé nokkurs konar „elektró-akústik“, á köflum melódísk en jafnframt af- strakt. Samstarf við Færeyjar Dansverkið Architecture of Loss á sér fleiri norrænar rætur því fær- eysku fatahönnuðirnir Gudrun & Gudrun sáu um búningana og Rannvá Kunoy, sem einnig er fær- eysk, sá um sjónræna hlið verksins. „Norræna húsið í Færeyjum hef- ur komið að verkefninu sem nokkurs konar framleiðandi og er bakhjarl verkefnisins,“ segir Valgeir. Verkið var frumsýnt í Joyce- leikhúsinu í New York í síðustu viku við frábærar undirtektir. Áætlað er að sýna verkið á Norð- urlöndunum og Íslendingar geta átt von á að fá að berja það augum um miðjan ágúst. Þeir sem vilja sjá verkið þurfa þó að fylgjast vel með því aðeins ein sýning er fyrirhuguð á Íslandi. Alþjóðlegt Bedroom Comm- unity Bedroom Community er íslenskt útgáfufyrirtæki, stofnað árið 2006 af Valgeiri, Nico Muhly og Ben Frost. „Við höfum verið útgáfa eða regn- hlífarsamtök fyrir tónlistina sem við stofnendurnir erum að vinna en svo hafa fleiri bæst í hópinn eins og Daníel Bjarnason, Puzzle Muteson og Sam Amidon. Við höfum séð um að gefa út plötur og skipulagt tón- leikaferðir og slíkt í kringum verk- efni meðlima okkar. Bedroom Community mun til dæmis sjá um að gefa út tónlistina úr Architecture of Loss á plötu.“ Starfsemi Bedroom Community er því ekki eingöngu bundin við Ís- land. „Hluti af okkur er staddur í New York, Englandi og víðar. Þetta er því alþjóðlegt samstarf.“ Plata með Damon Albarn Valgeir lauk nýverið við að hljóð- blanda plötu með Damon Albarn sem ber nafnið Dr. Dee. „Þetta er tónlist úr óperu sem var sett upp í fyrrasumar. Hún var svolítið óhefð- bundin en Damon var hálfgerður sögumaður í verkinu og það voru sjö aðrir söngvarar með honum, flestir klassískir. Svo sá stór sinfóníu- hljómsveit um að flytja tónlistina. Verkið er tveggja klukkustunda langt en þegar við gerðum plötuna notuðum við aðeins helminginn af tónlistinni. Platan er því innan við klukkustundar löng. Ætlunin er að gefa hana út 8. maí, áður en verkið verður sett upp aftur í sumar.“ Valgeir er með ýmislegt fleira í bí- gerð en plata sem hann vann með Hauschka og Hilary Hahn kemur einnig út í maí. „Ég hef verið að semja talsvert mikið af tónlist fyrir ýmsar hljómsveitir. Svo er ég líka að vinna í nýrri sólóplötu og tek að mér verkefni fyrir aðra.“ Höfundur er meistaranemi í blaða- og fréttamennsku við Há- skóla Íslands. „Meira pláss fyrir tónlistina …“ Rými „Það er mun meira pláss fyrir tónlistina í dansinum,“ segir Valgeir Sigurðsson um nýjasta verkefni sitt sem er nú á fjölunum í New York.  Valgeir Sigurðsson semur tónlist fyrir nýtt dansverk  Hljóðblandaði plötu með Damon Albarn Stefán S. Stefáns- son á mikla og merkilega sögu hvað íslenska tón- list varðar þó hann sé ekki alltaf í for- grunni. Stefán er djassleikari, tónlistarskólastjóri, námsefnisfrömuður, tónskáld og ... poppari. Þekktustu afrek hans á síð- asttalda sviðinu eru m.a. þau að hafa samið hið sígilda „Disco Frisco“ sem Ljósin í bænum fluttu og einnig hið magnaða „Fallinn“ með hljómsveit- inni Tívolí. Síðan hafa áratugir liðið en popplögin hafa safnast í sarp Stefáns hægt en örugglega. Þeim eru nú loks gerð skil á þessari plötu. Flest lögin eru í einslags djass- poppstíl, jafnvel má tala um nokkurs konar mjúkdjass eða „smooth jazz“. Bræðingur að hætti Mezzoforte kemur og upp í hugann og þeir meistarar í Steely Dan eru heldur ekki langt undan. „Þetta langa tímabil gerir það að verkum að sum lögin bera þess merki að hafa ekki verið samin í gær,“ sagði Stefán í viðtali og sló þar með vissan varnagla fyrir væntan- lega hlustendur. En þessi vöntun á „nýmóðinsheitum“ ef ég má orða það svo skyggir á engan hátt á út- komuna. Stefán er nefnilega um margt nokkuð glúrinn popp- lagasmiður og glíman við það knappa form í flestum tilfellum gjöf- ul. Lögin „standa“ þannig öll mjög vel og maður finnur fyrir yfirleg- unni. Platan er þá línuleg í rennsl- inu, svipaður blær er yfir öllu utan að tvær ballöður detta inn undir rest. Vart þarf þá að taka fram að spilamennska öll er til fyrirmyndar og söngvararnir, þau Regína Ósk og Þór Breiðfjörð, skila sínu með sóma og sann. Stefán S. Stefánsson – Von bbbmn Dægiljúft djasspopp Arnar Eggert Thoroddsen Nýi uppáhaldsstaðurinn þinn í Reykjavík! Borðapantanir í síma 553 5323 AÐALSTRÆTI 2 - 101 REYKJAVÍK - WWW.RUB23.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.