Morgunblaðið - 17.03.2012, Síða 16
SVIÐSLJÓS
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
„Mig var nú lengi búið að langa til að
prufa þetta,“ sagði Haukur Berg-
steinsson, mælingamaður sem í gær
fór sinn fimmhundraðasta sjósund-
sprett í Nauthólsvík, spurður hvað
það hefði verið sem kom honum af
stað í sjósundið.
Haukur er að verða 76 ára í vor og
því má segja að þessi árangur megi
teljast nokkuð markverður.
Haukur segist hafa byrjað að
kynna sér aðstæður fyrst í Nauthóls-
vík vorið 2008 og það hafi tekið hann
um mánuð áður en hann fór að prófa.
„Svo fór ég að fara alltaf og fannst
þetta áhugavert. Það verða fjögur ár
núna í vor,“ sagði Haukur.
Hann segir sjósundið gera sér
mjög gott. „Mér finnst ég hafa allur
styrkst frekar.“
„Svo var nú verið að gera grín að
mér, að mér fyndist áhrifin vera
þannig að ef ég væri það lengi úti að
ég skylfi í heita pottinum í 10 mínútur
þá liði mér mjög vel á eftir þegar hit-
inn færi að koma aftur,“ sagði Hauk-
ur og bætti við að ef hann hefði ekki
skolfið svolítið í heita pottinum þá
væri það mælikvarði á að hann hefði
ekki verið nógu lengi í sjónum.
„Jú, ég hef farið nokkrum sinnum
annarsstaðar en þetta er 500. skipti
sem ég fer í Nauthólsvík,“ sagði
Haukur aðspurður hvort hann hefði
prófað sjósund á öðrum stöðum, og
segist einungis hafa farið í sjóinn á
sólarströndum erlendis, en ekki í
svona kaldan sjó.
Konan segir þetta vera fíkn
„Ég veit það ekki. Mér finnst
þetta ómissandi. Konan segir nú
að þetta sé orðið fíkn hjá mér,“
sagði Haukur og bætti við að þegar
menn byrjuðu að stunda þetta gætu
þeir ekki hætt því eftir það. „Mér
finnst alveg orðið ómissandi að fara
svona þrisvar í viku,“ sagði Haukur.
„Ísleifur sem er yfir á Ylströndinni
segist ætla að halda stærri veislu
þegar ég kem í þúsundasta skiptið,“
sagði Haukur og sagðist hvergi nærri
hættur að stunda sjósund.
Veisla að loknu sjósundi í gær
Vel var gert við Hauk að lokinni
500. sjósundsferðinni og boðið upp á
heitt kakó og bakkelsi í fallegu gull-
slegnu kaffistelli.
„Þetta er erfðagripur frá honum
Ísleifi og hann tekur þetta fram við
hátíðleg tækifæri,“ sagði Haukur og
segist alltaf fá kakó í Nauthólsvík.
„Ég fékk það þegar ég var 74 ára.
Þá gerði hann mér þann heiður að af-
henda mér myndir af mér og ég fékk
kort upp á frítt kakó alltaf þegar ég
kem,“ sagði Haukur, glaður í sinni.
Íþrótta- og tómstundaráð Reykja-
víkur starfrækir Ylströndina í Naut-
hólsvík, en hún var tekin í notkun ár-
ið 2000. Þar nýtur sjósund vaxandi
vinsælda. Einnig hefur Siglinga-
klúbburinn Siglunes aðstöðu á staðn-
um og hann er vinsæll áningarstaður
fyrir hlaupara og annað útivistarfólk
sem nýtir sér ýmsar hlaupa- og
gönguleiðir, í Öskjuhlíð, meðfram
ströndinni til vesturs eða inn Foss-
vogsdal í átt að Elliðavatni.
Hitað upp með affallsvatni
Lónið og pottarnir á Ylströndinni
eru hitaðir upp með affallsvatni frá
hitaveitugeymunum í Öskjuhlíð, sem
hefur þegar verið nýtt til upphitunar
á húsum borgarbúa. Á veturna er op-
ið á Ylströndinni alla virka daga.
500 sjósundsprettir á 4 árum
Er 75 ára og hvergi nærri hættur
Segir sundið hafa styrkjandi áhrif
Morgunblaðið/Ómar
Veisla Árangri Hauks var fagnað á Ylströndinni í dag þegar hann fór sinn fimmhundraðasta sjósundsprett á 4 árum og var honum boðið upp á heitt kakó, tertu og vínarbrauð eftir sundsprettinn.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012
DÚKA KRINGLUNNI SÍMI: 533 1322 SMÁRALIND SÍMI: 564 2011
20% afsláttur
af Swing glösum
frá Leonardo
um helgina
Sjósundið hefur hjálpað Hauki
við að efla heilsuna. „Ég fór nú í
krabbameinsmeðferð árið
2005. Það hjálpaði mér mjög
mikið að þá var ég nú að
skokka, en ég er hættur því
núna. En mér finnst þetta hafa
styrkt mig allan,“ sagði Haukur
„Já, ábyggilega. Ég trúi því
allavega,“ sagði Haukur að-
spurður hvort hann teldi að
þessi mikla sjó-
sundsiðkun hans
síðustu fjögur
árin hefði hjálp-
að honum við
að ná betri
heilsu eft-
ir með-
ferðina.
Heilsusam-
legt
SIGRAÐIST Á KRABBAMEINI
Erfðagripur Ísleifur Friðriksson hellir kakó í bolla hjá Hauki. Stellið er
erfðagripur frá móður Ísleifs og oft notað við hátíðleg tilefni á Ylströndinni.