Morgunblaðið - 17.03.2012, Side 20
Icelandair verð-
launað í Denver
Icelandair og alþjóðaflugvöllurinn
í Denver hlutu viðurkenninguna
„Tourism Star 2011“ á hátíðar-
kvöldi ferðaþjónustunnar í Denver
sem haldin var þar í borg í vik-
unni. Þykir flug Icelandair til og
frá borginni, sem hefst í vor, sæta
miklum tíðindum, enda langþráður
draumur ferðaþjónustunnar að fá
beint flug með mikla tengimögu-
leika frá Evrópu til borgarinnar,
segir í tilkynningu Icelandair.
„Ferðastjarnan“ er árlega af-
hent þeim sem skara fram úr í
ferða- og ráðstefnuþjónustu í Colo-
rado-fylki. Helgi Már Björgvins-
son, framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs Icelandair, tók við
viðurkenningunni fyrir hönd fé-
lagins við hátíðlega athöfn í Den-
ver. Sérstakur sjóður á vegum
ferðamálaráðs borgarinnar stend-
ur á bak við athöfnina sem kölluð
er „Denver Tourism Hall of
Fame“.
Á myndinni að ofan er Helgi
Már, annar frá hægri, ásamt for-
stjóra Denverflugvallar og forystu
ferðamálaráðs borgarinnar við
móttöku viðurkenningarinnar.
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012
ÍSLENSK ÚR FYRIR
ÍSLENDINGA
www.gilbert.is
SVIÐSLJÓS
Ágúst Ingi Jón sson
aij@mbl.is
Það er ekki nóg með að Erling Ólafs-
son, skordýrafræðingur á Náttúru-
fræðistofnun, hafi sett margvíslegan
fróðleik um 250 pöddur inn á vef
stofnunarinnar heldur hefur hann
myndað þær allar og gefið mörgum
þeirra íslensk heiti. Pödduvefurinn
nýtur vinsælda og flestir leita á
pödduvefinn til að afla upplýsinga
um heimilisvanda sem tengist
óboðnum gestum. á heimilum. Öðr-
um vandamálum á heimilum segist
Erling ekki koma nálægt!
Hann segir að þetta sé í sjálfu
sér eilífðarverkefni, en hann hafi síð-
ustu ár reynt að koma fróðleik um
tvær pöddur inn á vefinn í viku
hverri með öðrum störfum hjá Nátt-
úrufræðistofnun. Í vikunni bættust
smáraskjanni og perlufiðrildi á vef-
inn og á Erling nöfn þeirra beggja.
Ákveðið skipulag við nöfnin
„Ég reyni að gefa þessum smá-
dýrum heiti eftir ákveðnu skipulagi
og skjannar er annað heiti á hvítum
fiðrildum, sem líka hafa verið nefnd
kálfiðrildi á íslensku. Lirfa smá-
raskjanna lifir á smára og tekur því
nafnið að hluta eftir uppáhalds-
fæðunni eins og margar aðrar teg-
undir. Heitið á perlufiðrildi sótti ég í
sænska heitið á tegundinni, en mjög
oft er hægt að styðjast við erlendu
heitin,“ segir Erling.
Meðal heita á pöddunum má
nefna alls konar fætlur, sveifur,
rana, vefara, glyttur, bokka og
svermur. Fjölbreytnina vantar ekki í
nöfnin enda er úrvalið á vefnum mik-
ið. Þar er að finna fróðleik um teg-
undir af hinum ýmsu hópum smá-
dýra, s.s. skordýr, áttfætlur,
fjölfætlur, snigla og ánamaðka. Þar
eru fulltrúar tegunda sem lifa í nátt-
úrunni, húsagörðum og húsakynn-
um, þar sem margt kvikindið er
óvelkomið. Nýir landnemar eru
dregnir fram sérstaklega, segir í
frétt á ni.is
Sagt er frá heimsútbreiðslu
hverrar tegundar, útbreiðslu eða
fundarstöðum hér á landi, lífsháttum
og ýmsu tilfallandi. Einnig er gefin
gróf lýsing á útliti sem nota má til að
þekkja tegundirnar.
Pöddutegundum á
eflaust eftir að fjölga
Erling segir að alls konar pödd-
um hafi fjölgað á síðustu árum og
eigi eflaust enn eftir að fjölga hægt
og bítandi. Flestar þeirra komi með
vindum og alls konar varningi. Svo
sé undir hælinn lagt hvort þær nái
bólfestu hér á landi. Dæmi um teg-
undir sem hafa fengið lögheimili á ís-
landi séu rauðhumla og Spánar-
snigill.
„Forsenda þess að pöddur fari
inn á vefinn okkar er að þær hafi
fundist hér á landi og ég hafi náð að
mynda þær lifandi,“ segir Erling.
„Sumar fara ekki þarna inn, þar sem
ekki hefur reynst gerlegt að mynda
þær og ég hef ekki komist í tæri við
aðrar. Ég á samt fullt eftir af mynd-
um og held ótrauður áfram,“ segir
Erling.
Leita á pödduvefnum til að fræð-
ast um óboðna gesti á heimilum
Hefur myndað og skrifað um 250 pöddur og gefið mörgum þeirra nafn
Morgunblaðið/Eggert
Erling Ólafsson Öll hafa smádýrin nafn og á vefnum má lesa um alls konar fætlur, sveifur, rana og vefara.
Ljósmynd/Erling Ólafsson
Spánarsnigill Haustið 2003 fundust tveir stórir, rauðleitir sniglar í Reykja-
vík og Kópavogi. Reyndist hér vera á ferð svokallaður spánarsnigill sem í
nágrannalöndum okkar er orðinn alræmd plága, segir á pödduvefnum.
Spurður hvernig líti út með vöxt
og viðgang í pödduheimum á
komandi sumri segist Erling að
mestu hættur að reyna að spá
um slíka hluti. „Hitt er annað
mál að mér líst alltaf vel á snjó-
þunga vetur þegar ekki gerir
þung frost á auða jörð. Ég gæti
trúað að Spánarsnigilinn gerði
rækilega vart við sig í sumar,“
segir Erling.
Á pödduvefnum er birt áskor-
un um að fólk skili eintökum
sem finnast af átvaglinu Spán-
arsnigli til Náttúrufræðistofn-
unar til rannsóknar. Þar segir að
mikilvægt sé „að sporna gegn
landnámi Spánarsnigils eins og
frekast er unnt og skal því tor-
tíma þeim sniglum sem ekki
gefst kostur á að skila til Nátt-
úrufræðistofnunar.“
Hans varð ekki vart á mörg-
um stöðum í fyrra, en gaus þó
t.d. upp í garði í Grafarvogi og
segir Erling að hann reikni með
að slíkum skotum eigi eftir að
fjölga á komandi árum.
Hann segist ekki sjá annað en
að humlur geti náð sér vel á
strik á sumri komanda. Öðru
máli gæti gegnt um geitunga,
„sem sumum er illa við ein-
hverra hluta vegna“. Árgangur
síðasta sumars átti í vök að
verjast og þess gætu sést merki
í sumar, þó að ekki sé alltaf
fylgni á milli ára.
Humlur gætu
náð sér á
strik, óvissa
með geitunga
SPÁNARSNIGILL GÆTI
MINNT Á SIG