Morgunblaðið - 17.03.2012, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 17.03.2012, Blaðsíða 48
48 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012 Páll Pétursson, bóndi á Höllustöðum í Húnavatnshreppi, al-þingismaður fyrir Framsóknarflokkinn 1974-2003 og fyrr-verandi félagsmálaráðherra, er 75 ára í dag. „Nú ekkert nema bara lifa svona hversdagslega eins og venju- lega,“ sagði Páll aðspurður hvað hann hygðist gera í tilefni dagsins og vildi lítið gera úr þessum tímamótum. Páll segist ekki vera mikið afmælisbarn alla jafna. „Við erum reyndar búin að halda upp á afmælið. Um síðustu helgi hittumst við og gerðum okkur glaðan dag,“ segir Páll, en þá kom fjölskyldan saman í Reykjavík. Bólstaðarhlíðarkórinn kom til Reykjavíkur og hélt tónleika tileinkaða Birni á Löngumýri, móðurbróður Páls. Tengdasonur og barnabarn Páls syngja með kórnum og kórinn er Páli hugleikinn en hann sjálfur söng með honum um árabil og faðir hans gerði það einnig. Þegar Páll var spurður hvort hann hefði haldið upp á stórafmæli sín í gegnum tíðina sagði hann að svo hefði ekki verið nema þegar hann varð fimmtugur og sextugur, hann hefði ekki haldið sérstak- lega upp á önnur stórafmæli. Páll er mjög menningarlega sinnaður og blaðið fékk upplýst að þótt hann vilji ekki mikið tilstand á afmæl- um njóti hann þess mjög að eyða deginum á menningarlegum nótum og þá helst í faðmi fjölskyldunnar. ipg@mbl.is Páll Pétursson er 75 ára í dag Morgunblaðið/Jim Smart Hversdagsleiki Páll segist ætla að eyða deginum eins og hverjum öðrum degi á hversdagslegum nótum í rólegheitum heima hjá sér. Hélt upp á afmælið um síðustu helgi K olbrún Björgólfsdóttir fæddist á Stöðvar- firði. Hún lauk gagn- fræðaprófi frá Al- þýðuskólanum á Eiðum 1969. Kogga stundaði nám við Mynd- lista- og handíðaskóla Íslands 1969-73, við Danmarks Design- skole í Kaupmannahöfn 1973-75, við Haystack Mountain School of Art í Maine í Bandaríkjunum 1984, hjá Richard Skåby í Plaster Workshop, Guldagergård, Skæl- skør í Danmörku 2006 og hjá Paul Scott við Vitrified Print Workshop, Guldagergård, Skælskør í Dan- mörku 2010. Kennari í rúm 40 ár Kogga hefur kennt við ýmsa grunn- og framhaldsskóla hér á landi og kennt og haldið fyrirlestra hér á landi, í Bandaríkjunum, Dan- mörku og Japan á árunum 1971- 2012. Hún var yfirkennari keramikdeildar Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1975-80, stofnsetti og starfrækti, ásamt öðr- Kogga 60 ára Morgunblaðið/Kristinn Listakona Kogga á vinnustofu sinni þar sem sjá má ýmsa góða gripi eftir hana. Hún gefur leirnum líf Morgunblaðið/Jim Smart Kogga og Magnús Afmælisbarnið með eiginmanni sínum, Magnúsi Kjart- anssyni myndlistarmanni, sem lést árið 2006. Myndin var tekin í húsi þeirra á Laugarnestanganum, sem var í afar lélegu ásigkomulagi er þau festu kaup á því 1978, en þau endurbyggðu húsið nánast frá grunni. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Ármann Jakob Lárusson glímu- kappi úr Kópavogi varð áttræður 12. mars síðastliðinn. Ármann og Björg eiginkona hans fagna afmælinu með vinum og vandamönnum í Frí- kirkjunni Kefas, Kópavogi, í dag, 17. mars. Árnað heilla 80 ára Árni Rúnar Hólmsteinsson og Bjarni Sigurðsson héldu tombólu í Efra- Breiðholti og söfnuðu 3.134 kr. sem þeir gáfu Rauða krossi Íslands. Hlutavelta „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar verður einnig sagt frá öðrum merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónaböndum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúð- hjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta á netfangið islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Ármúla 32 · 108 Reykjavík · Sími 568 1888 · parketoggolf.is · Þú finnur okkur líka á Facebook Af hverri seldri Hamat mottu í mars rennur 500 kr. til styrktar Krabbameinsfélags Íslands. Parket & gólf - Sérfræðingar í gólfefnum!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.