Morgunblaðið - 19.03.2012, Side 1
M Á N U D A G U R 1 9. M A R S 2 0 1 2
Stofnað 1913 66. tölublað 100. árgangur
UNGIR MYND-
LISTARNEMAR
MEÐ SÝNINGU
FYRIRLESTRAR
OG UPPISTAND
Á HÚMORSÞINGI
RAUNVERU-
LEIKINN ER
EFNIVIÐURINN
HÚMOR AFAR MIKILVÆGUR 12 KVISS BÚMM BANG 10ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ 29
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Frestur sem Íslenska kísilfélagið fékk til að ljúka
samningum við Landsvirkjun um orkukaup vegna
fyrirhugaðs kísilvers í Helguvík er runninn út en
margt bendir samt til þess að slíkt ver muni rísa.
Fulltrúar Tomahawk Development, sem á 80%
hlut í félaginu, vilja ekki tjá sig við fjölmiðla um
stöðu málsins en heimildarmenn segja að þeir hafi
nú ákveðið að losa sig við bandarískan samstarfs-
aðila, Globe Speciality Metal, sem á 20% hlut en
hefur dregið lappirnar og í reynd haft meiri áhuga
á að kaupa gjaldþrota ver í Kanada.
mun vera orðið ljóst að eigendur Globe, sem hafa
fram til þessa eingöngu tekið yfir gömul ver, voru
með hugann við kanadíska verið Becancour. Hefur
Globe að sögn heimildarmanna þegar gert tilboð
sem sagt er hærra en tilboð annarra aðila.
Atvinnuleysi er mikið í Reykjanesbæ og því
mikið í húfi en um er að ræða verksmiðju með um
90 starfsmenn. Fjárfestingin er áætluð um 17
milljarðar króna. Norðurál hyggst sem kunnugt
er reisa álver í Helguvík en þær framkvæmdir
hafa einnig tafist. Búið er að reisa hús yfir álverið
en ekki búið að ganga frá samningum um orku-
kaup við HS Orku. Fullyrt er þó að nokkuð hafi
þokast í þeim samningum að undanförnu.
Sagðir munu losa sig við Globe
Fullyrt að þótt málið tefjist muni Íslenska kísilfélagið reisa kísilver í Helguvík
Hluthafinn Globe Speciality Metal gerði tilboð í gjaldþrota ver í Kanada
„Menn eru búnir að fá nóg af þessu, það tekur
Tomahawk nokkrar vikur að fleygja þeim út,
samningsákvæðin eru þannig, en annar áhuga-
samur aðili bankar á dyrnar,“ segir heimildarmað-
ur sem ekki vill láta nafns síns getið. Hann segir
verkefnið í Helguvík mjög freistandi fyrir fjár-
festa enda búið að ganga frá lausum endum.
Neituðu ávallt að klára samninginn
Þess má geta að forstjóri Landsvirkjunar,
Hörður Arnarson, segist ekki vera búinn að af-
skrifa hugmyndina um kísilver í Helguvík.
Búið var að semja um orkukaup við Landsvirkj-
un en Globe neitaði ávallt að klára samninginn. Nú
Langur undirbúningur
» Undirbúningur að kísilverinu
hefur staðið yfir í um fimm ár
og hefur Íslandsstofa, sem
annast m.a. markaðssókn fyrir
íslensk fyrirtæki, komið að
honum.
» Raforkusamningur Íslenska
kísilfélagsins við Landsvirkjun
er formlega úr gildi og sömu-
leiðis lóðarsamningur við
Reykjanesbæ vegna 40 þús-
und tonna kísilvers í Helguvík.
Fyrstu fermingarnar fóru fram í Grafarvogs-
kirkju í gær en þar mun á þriðja hundrað ung-
menna fermast í vor.
Það er óhætt að segja að það hafi ríkt mikil
gleði og eftirvænting, í bland við eilítinn tauga-
titring, þegar spennt fermingarbörnin biðu eftir
að ganga inn kirkjugólfið og staðfesta skírnina.
Þá var gott að geta leitað til séra Vigfúsar Þórs
Árnasonar sem var ekki að ferma í fyrsta sinn.
Morgunblaðið/Golli
Gleði og eftirvænting í Grafarvogskirkju
Leggja þarf fram
nýja þingsálykt-
unartillögu um
þjóðaratkvæði
um tillögur
stjórnlagaráðs.
Verður hún að
hljóta samþykki
Alþingis fyrir
mánaðarlok ef
ætlunin er að
halda atkvæðagreiðsluna samhliða
forsetakosningum í lok júní, en slík
tillaga hefur enn ekki verið lögð
fram. Birgir Ármannsson alþing-
ismaður gagnrýnir þá tímaþröng
sem málið er komið í og hið flókna
ferli sem því hefur verið mótað. »2
Stjórnar-
skrármálið í
tímaþröng
Birgir Ármannsson
Vísindamenn hafa fundið skýringu á
því að flestum finnst matur í far-
þegaþotum vondur eða bragðlítill.
Það var Lufthansa sem bað rann-
sóknastofuna Fraunhofer í München
að kanna málið. Oftast er flogið í um
10.000 metra hæð og þá þornar loftið
svo að nefið finnur minni lykt. Þá
dragast einnig bragðlaukarnir sam-
an og matur verður ólystugri. Það
skýrir líka af hverju margir biðja um
tómatsafa; hann er ekki jafn súr í
háloftunum. kjon@mbl.is
Flugvélamatur Ætur en mörgum
þykir hann ekki sérstaklega góður.
Missa af
þotumatnum
Björgunarsveitir á öllu landinu
finna fyrir mikilli fjölgun útkalla
þar sem erlendir ferðamenn lenda í
vandræðum á hálendinu eða á
ógreiðfærari vegum landsins.
Jónas Guðmundsson, verkefna-
stjóri hjá Slysavarnafélaginu
Landsbjörg, segir að aukningin sé
jafnvel þúsund prósent. Hann telur
að þessa aukningu megi rekja til
slæms veðurfars í vetur en miklir
umhleypingar hafa verið og oft
mikið hvassviðri.
„Ég held til að mynda að við
séum búnir að sækja flesta ef ekki
alla þá hópa sem hafa reynt að
ganga á Vatnajökul það sem af er
árinu,“ sagði Jónas. Nú þegar er
búið að aðstoða sex hópa á Vatna-
jökli og er það meira en allt síðasta
ár. Jónas segir að þrátt fyrir að
flestir sem fara upp á hálendið séu
vanir göngum og vel búnir virðist
íslensk náttúra erfið viðureignar.
„Við þurftum til dæmis að hjálpa
manni sem hefur gengið á báða pól-
ana og flest hæstu fjöll heims,“
sagði Jónas. Hann segir að tjöld
sem talin eru til þeirra bestu þoli
oft ekki rokið á hálendinu.
Á laugardaginn lentu tveir vanir
göngumenn frá Belgíu í hættu á
Vatnajökli. Þeir báðu um aðstoð
þar sem tjald þeirra rifnaði og þeir
sáu ekki fram á að geta lifað nótt-
ina af vegna kulda. »6
Útköllum vegna ferðamanna fjölgar
Þaulvanir göngumenn hafa þurft að kalla á aðstoð Tveir vanir lentu í lífsháska